Bændablaðið - 23.03.2017, Side 15

Bændablaðið - 23.03.2017, Side 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Ríkisstjórn Ernu Solberg í Noregi kynnti á dögunum nýja samgöngu- áætlun og upplýsti að ákveðið hefur verið að verja þúsund milljörðum norskra króna, um 14 þúsund milljörðum íslenskra króna, til samgöngumála í landinu næstu 12 árin. Erna Solberg sagði þetta sögulega stund, enda aldrei áður varið jafn miklu fjármagni í málaflokkinn þar í landi. Eftir að hafa skoðað hvernig á að verja upphæðinni eru ekki allir á eitt sáttir um ráðahaginn og þannig finnst mörgum í dreifbýlinu þeir vera sniðgengnir. Um 45 prósent af fjármagninu á að nota í lestar- kerfið, eins og ný lestargöng undir Osló, minnka á ferðatímann milli Bergen og Osló og bæta á lestarspor í Neðra-Rómarríki svo fátt eitt sé nefnt. Margir hafa gagnrýnt þessa nýju áætlun og benda á að það séu fleiri þættir mikilvægir en að komast hratt á milli áfangastaða, eins og að hafa örugga vegi og að bæta þurfi allar almenningssamgöngur, ekki einungis lestarkerfið. Erna Solberg og flokksfélagar hennar hafa þó ekki alveg gleymt landsbyggðinni þar sem hún setur nú mikið fjármagn til byggingar á nýjum flugvelli í Bodø í Norður-Noregi og á nokkrum hættu- legum þjóðvegum. /Dagbladet - ehg Heldur betur slegið í samgönguklárinn í Noregi: Stjarnfræðileg upphæð til samgöngumála á 12 árum Á sama tíma og íslenska hagker ð er í mikilli uppsvei u og Íslendingar kvarta undan því að vegaker ð sé að eyðileggjast, leggjast Normenn í vega- framkvæmdir sem aldrei fyrr, þrátt fyrir gríðarlegan samdrátt í olíutekjum. Vesturbyggð: Mótmælir niður- skurði í vegagerð Bæjarráð Vesturbyggðar hefur mótmælt boðuðum niðurskurði samgönguráðherra í vegagerð í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði. Bæjarráð hefur samþykkt bókun þar sem fram kemur að Vestfirðingar hafi um áratugaskeið barist fyrir bættum vegasamgöngum um sunnanverða Vestfirði. Bent er í bók- uninni á ákall Vestfirðinga til stjórn- valda um að staðið verði við fyrirheit um framkvæmdir í Gufudalssveit og hversu mikilvægar þær séu. Vilja að ákvörðun verði hnekkt Fjöldi Vestfirðinga hefur skrif- að undir áskorun til stjórnvalda um að hnekkja ákvörðun sam- gönguráðherra um að fresta fram- kvæmdum við nýjan Vestfjarðaveg í Gufudalssveit. Fyrirhugað var sam- kvæmt samgönguáætlun að verja 1.200 milljónum króna til verksins á þessu ári, en enn er beðið eftir áliti Skipulagsstofnunar á umhverfismati framkvæmdarinnar. Veglína gegnum Teigsskóg féll í umhverfismati fyrir 11 árum, en Vegagerðin fékk heimild fyrir tveimur árum til að endurskoða umhverfismatið. Í liðinni viku fóru bæjarstjóri Vesturbyggðar, formaður bæjarráðs og verkefnastjóri samfélagsupp- byggingar í Vesturbyggð á fund Jóns Gunnarssonar ráðherra þar sem m.a. var farið yfir jákvæða þróun í uppbyggingu atvinnulífs á sunnan- verðum Vestfjörðum. Mikilvægt að eyrnamerkja verkefnið Einnig voru fyrirhugaðar vegafram- kvæmdir í Gufudalssveit ræddar. Fór ráðherra yfir sína hlið málsins en var jákvæður, að því er fram kemur á vef Vesturbyggðar á að vera unnt að bjóða verkið út á þessu ári. „Mikilvægt er að tryggt sé að fjárveiting verði eyrnamerkt verk- efninu þannig að hægt verði að fara af stað innan ársins. Það er samt sem áður háð því að málið komist án frekari tafa í gegnum skipulags- ferlið. Fulltrúar Vesturbyggðar ítrekuðu mikilvægi þessarar vega- framkvæmdar og að málið verði leitt til lykta með farsælum og skjótum hætti,“ segir á vef Vesturbyggðar. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.