Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Ummæli Trumps Bandaríkja-
forseta um að sniðganga
Parísarsamkomulagið um lofts-
lagsmál hefur farið fyrir brjóstið
á mörgum evrópskum stjórnmála-
mönnum sem og bandarískum
þingmönnum. Er forsetinn varað-
ur við því að afleiðing meiri lofts-
lagshlýnunar geti orðið styrjöld.
Benda menn á að jarðarbúum
stafi mikil ógn af breytingum á lofts-
lagi. Þær leiði til þess að ís á heim-
skautunum bráðni, sífrerinn þiðni,
yfirborð sjávar hækki og meiri öfgar
verði í veðurfari.
Jonathan Tirone fjallaði um málið
á fréttasíðu Bloomberg nú í febrúar.
Segir hann að evrópskir leiðtogar
vari við því að breytingar á loftslagi
geti framkallað það sem þeir þekkja
allt of vel frá síðustu öld, nefnilega
styrjöld.
Háttsettir embættismenn frá
Evrópu og Sameinuðu þjóðunum
sögðu á öryggisráðstefnu í München
í Þýskalandi um miðjan febrúar að
horft væri of þröngsýnum augum
að loftslagshlýnun út frá forsend-
um umhverfismála. Þar væri stórlega
verið að vanmeta hernaðarógnina.
Bentu þeir á niðurstöður varnar- og
leyniþjónustustofnana sem segja að
loftslagsbreytingar geti hrundið af
stað landamæraerjum.
Vatn og matur lykillinn
að friði og stríði
Vitnað er til skýrslu eftir Solomon
M. Hsiang og Marshall Burke frá
því í júlí 2013 sem heitir: Loftslag,
átök og þjóðfélagslegur stöð-
ugleiki: Hvað segja staðreyndir?
(Climate, conflict, and social stabil-
ity: what does the evidence say?)
Þar komast skýrsluhöfundar að
því að tveir meginþættir geti og
séu að orsaka stríð vegna loftslags-
breytinga. Það sé matur og vatn. Á
þrem áratugum, frá 1980 til 2010,
hafi 9% allra stríðsátaka átt sér
stað í kjölfar hitabylgju og þurrka.
Vopnuð átök eigi sér þó venju-
lega flókin og langan aðdraganda.
Viðtekin venja sé að undanskilja
möguleikann á að öfgar í veðurfari
geti verið orsök styrjalda.
Bent er á að borgarastyrjöldin
í Sýrlandi hafi sprottið upp í kjöl-
far verstu þurrka á svæðinu í 900
ár þó „arabíska vorið“ svokallaða
hafi kynt undir því að átök brutust
út. Þá kunni veðurfarslegar orsak-
ir að verða þess valdandi að efna-
hagsstaða Venesúela fari fram af
hengifluginu. Þar muni átök um
olíu og pólitísk ringulreið líklega
spila stóra rullu. Ekki er annað að
heyra af fréttum en nákvæmlega
þetta sé að eiga sér stað í Venesúela.
Þegar árið 2007 tengdi Ban
Kimoon, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, átök í Darfur við lofts-
lagsbreytingar. Þar hafa hundruð
þúsunda manna verið drepnar.
Trúarbrögð og náttúruhamfarir
eru uppskrift að átökum
Í greininni í Bloomberg segir að
nýjar þýskar rannsóknir styrki þá
skoðun að loftslagsbreytingar og
náttúruhamfarir ýti oft undir upp-
lausn sem leiði til þess að nágrann-
ar taka upp á því að fara að skjóta
hverjir aðra. Ekki er endilega verið
að fullyrða að það sé beint orsaka-
samhengi á milli veðurfars og
stríðsátaka. Þegar málin séu skoðuð
yfir langt tímabil, þá sé það samt
undarlega mikil tilviljun hversu
oft þessir þættir tengjast gjarnan
trúarbragðadeilum. Átök trúarhópa
samfara náttúruhamförum er mun
líklegri uppskrift að átökum en
þegar náttúruhamfarir tengdust
eingöngu fátækt og ójafnri efna-
hagsstöðu fólks. Trúarlega sundur-
laus samfélög verði oft sorglega illa
úti þegar náttúruhamfarir blandast
þar inn í. Þetta kemur líka fram í
skýrslu PNAS (Proceedings of the
National Academi og Sience of the
United States of America). Í fyrir-
sögn þeirrar skýrslu segir:
„Áhættan af vopnuðum átök-
um magnast með loftslagstengdum
hamförum í trúarlega brothættum
löndum.“
Í ritrýndri skýrslu PNAS segir
einnig:
„Trúarhópar hafa leikið stærstu
rulluna í margvíslegum vopnuð-
um átökum víða um heim. Í kjölfar
náttúruhamfara geta átök trúarhópa
kynt undir stighækkandi spennu.
Við höfum fundið sannanir þess í
tölulegum gögnum á heimsvísu að
hættan á því að vopnuð átök brjótist
út eykst í tengslum við hamfarir
vegna loftslagstengdra viðburða
í trúarlega brotnum samfélögum.
Samt höfum við ekki fundið nein-
ar vísbendingar um að umhverfis-
hörmungar leiði einar og sér bein-
línis til vopnaðra átaka. Okkar
niðurstaða er að náttúruhamfarir
geti samt haft margfeldisáhrif á
mestu átakasvæðum heims.“
Trúarágreiningur
orsök 23% átaka
Í skýrslunni segir líka að rannsókn-
ir hafi leitt í ljós að í 23% tilvika
þar sem átök brjótast út, þá sé það
vegna trúarástæðna í brothættum
samfélögum og undarlega oft í sam-
hengi við loftslagsbreytingar. Er
þar m.a. vísað til átaka í Sýrlandi,
Afganistan, Norður-Afríku og í
Mið-Austurlöndum.
Í evrópsku rannsóknunum
er gengið enn lengra. Höfundar
þeirra eru m.a. Hans Joachim
Schellnhuber, yfirmaður Potsdam
Institute for Climate Impact
Research. Hann hefur jafnframt
verið aðalráðgjafi Francis páfa í
loftslagsmálum. Þar var reynt að
meta efnahagsleg áhrif náttúruham-
fara á framleiðslu ríkja. Skoðuð
voru 18 þúsund loftslagstengd til-
vik á 30 ára tímabili.
Saga átaka byggir á gögnum
Uppsalaháskóla í Svíþjóð, um 241
tilvik þar sem meira en 25 einstak-
lingar voru drepnir í hverjum
átökum fyrir sig. Það er svokallað
átakaupplýsingaverkefni Uppsala.
Það er stofnun um rannsóknir á
friði og átökum. Þessar rannsókn-
ir stemma furðu vel við reynslu
og fullyrðingar fólks utan vís-
indasamfélagsins eins og í varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna.
Þar fengu slíkar hugmyndir aukið
vægi þegar hópur yfirmanna í hern-
um sem hættir voru störfum gaf
út yfirlýsingu árið 2007 þar sem
loftslagsbreytingar voru tengd-
ar við þjóðaröryggi. Það rataði
síðan inn í skýrslu Pentagon 2014
(Quadrennial Defense Review) þar
sem skýrð var áhættan af loftslags-
breytingum. Það segir beinlínis
að veðurfarslegar breytingar hafi
magnað upp átök á fjölmörgum
svæðum í heiminum.
Pottþétt uppskrift að vænni styrjöld í kraumandi potti þjóða og loftslagsbreytinga:
Fjarlægið vatn og mat, bætið út í
það trúarbragðaátökum og hrærið
– Ótti vex um að loftslagsbreytingar muni kynda undir trúarátökum og leiða til styrjaldar
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Vatnið hor ð og maturinn með. Dæmigert ástand sem leitt getur til stríðsátaka.
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta - Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
20%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 201
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Jeppadekk
35x12,5x15
Double Star
vörbíladekk
Double Star
Vinnu- og
dráttarvéladekk