Bændablaðið - 23.03.2017, Page 22

Bændablaðið - 23.03.2017, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Ráðstefnan Búskapur morgun- dagsins var haldin í Hofi 3. mars, að afloknum ársfundi Bændasamtaka Íslands 2017 sem var haldinn fyrir hádegi. Sex fyrirlesarar fluttu erindi um efni ráðstefnunnar, auk þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, ávörpuðu samkomuna. Nýsköpun og sjálfbærni Ari Trausti Guðmundsson alþingis- maður flutti fyrirlesturinn Að stíga feti framar: Nýsköpun, sjálfbærni og kolefnislausnir í landbúnaði. Þar ræddi hann vítt og breitt um fram- tíð landbúnaðar í samhengi við vax- andi fólksfjölda í heiminum. Auknar neikvæðar umhverfisbreytingar, svo sem loftslagsbreytingar, kölluðu á nýjar nálganir í matvælaframleiðslu þar sem sjálfbærni væri lykilatriði. Íslendingar byggju vel að því að hafa fjölskyldubúsgerðina sem uppistöðu landbúnaðar, en FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóð- anna) hefði einmitt lagt áherslu á mik- ilvægi slíkrar landbúnaðarframleiðslu í sinni framtíðarsýn. Hann útlistaði hugmynd sína um hvernig styrkja mætti sjálfbærnivinnu á Íslandi með sameiningu stofnana og verkefna; Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins, skógræktarverk- efni, verkefni hjá Umhverfisstofnun, þjóðgörðunum, ferðaþjónustunni og hjá fleiri aðilum. Hann sagði að slíka stofnun mætti kalla Auðlindastofnun. Ari Trausti ræddi líka um íslensk landgæði og hina mörgu kosti Íslands sem landbúnaðarland. Hann sagði íslenska bændur vera vörslumenn landsins og bæru að taka það hlut- verk alvarlega með því að skila því vel af sér. Hann talaði gegn frekari samþjöppun í búsetu og mæltist til þess að lögð yrði frekari áhersla á dreifðari búsetu. Lykilatriði í þeirri þróun væri frekari stafræn væðing. Þá lagði hann áherslu á lífrænan landbúnað – sagði í raun allt mæla með frekari þróun í þá átt. Efla þurfi einnig nýsköpun og rannsóknir í landbúnaði. Að lokum talaði hann um mikilvægi þess að stofnaður yrði samráðshópur meðal bænda og tengd- um aðilum, að fyrirmynd úr sjávarút- veginum, sem myndi vinna að því að finna leiðir til þess að landbúnaður geti orðið sjálfbær á Íslandi. Tækifæri til aukinnar hagsældar Auður Magnúsdóttir, deildarfor- seti auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ), flutti erindið Sjálfbærni í landbúnaði – tækifæri til aukinnar hagsældar. Hún talaði um skólastarfið á Hvanneyri og mikilvægi bæði mannauðsins og náttúruauðlinda í landinu – og að þessum auðlindum verði að stjórna með heildræna hugsun að leiðarljósi. Auður lagði áherslu á það að mik- ilvægasta samstarfsverkefni bænda og LbhÍ væri uppbygging og viðhald mannauðs og efling sterks landbúnað- arsamfélags. Eins og Ara Trausta var henni hugtakið sjálfbærni hugleikið og loftslagsmálin. Tíndi hún til nokkrar nærtækar aðferðir til minnka kolefn- isspor landbúnaðarins. Í gögnum hennar kom fram að landbúnaður á Íslandi bæri ábyrgð á um 16 prósentum af útstreymi gróðurhúsalofttegunda – sem væri af manna völdum. Hún sagði að leggja ætti áherslu á að framleiða staðbund- in matvæli, svo þyrfti að hyggja að minnkun á losun frá röskuðu landi annars vegar og hins vegar frá býl- unum sjálfum. Endurheimt votlendis, landgræðsla og skógrækt væru leið- ir utan býla, en á býlunum sjálfum mætti leggja meiri áherslu á nýtingu á metangasi, auk þess sem skoða þyrfti leiðir til að minnka losun frá fóður- kerfum og vegna áburðargjafar. Auður sagði að lokum að sjálf- bærni væri eina viðskiptamódelið sem gengi upp til langs tíma í mat- vælaframleiðslu og umhverfismál- um – og verkefnin fram undan hér á Íslandi fælust í að koma slíku fyrir- komulagi á. Það verður ekki gert að hennar mati nema með aðkomu allra og eingöngu af sterku samfélagi þar sem passað er upp á mannauðinn. Gott samtal og öflug samvinna milli LbhÍ og bænda væri því ekki bara skemmti- leg heldur líka mikilvægt skref í átt að sjálfbærari landbúnaði. Markaðurinn vill lífrænt vottað Síðasta erindið fyrir kaffihlé flutti Oddný Anna Björnsdóttir, verk- efnastjóri umhverfis-, samfélags- og lýðheilsumála hjá Krónunni sem hafði yfirskriftina „Þróun á neyt- endamarkaði“. Í erindinu fór Oddný yfir þá þróun sem hefur átt sér stað á neytendamarkaði á undanförnum árum og tiltók dæmi um hvernig Krónan væri að bregðast við þeirri þróun. Hún fjallaði einnig um helstu áhersluatriðin og þau lykilverkefni sem tengjast stefnu Krónunnar um samfélagsábyrgð, en tilgangur hennar er bætt lýðheilsa, umhverfi og sam- félag. Í upphafi erindisins talaði Oddný um að eitt af lykilmarkmiðum Krónunnar væri að eiga samtal og samstarf við bændur og framleiðendur enda væru þeir aðilar að þjónusta sama hópinn, neytendur, og gott og öflugt samstarf væri til þess fallið að uppfylla betur þarfir neytenda. Í erindi Oddnýjar kom fram að ferskvörur væru tveir þriðju af sölu Krónunnar og innlend framleiðsla um 70%. Hún lýst því hvernig Krónan þjónaði mismunandi hópum sem hefðu mismunandi þarfir. Ljóst væri þó að markaðurinn vildi lífrænt vott- aðar vörur. Mesti vöxturinn hefði verið í þeim vöruflokki bæði hér á Íslandi og erlendis á undanförnum árum og sem dæmi hefði hann verið 33% á síðasta ári. Spár gerðu ráð fyrir að sú þróun héldi áfram. Hún talaði sérstaklega um skort á innlendum líf- rænt vottuðum landbúnaðarafurðum og að þróunin erlendis væri í þá átt að eigendur verslana, veitingahúsa og matvælaframleiðendur væru farnir að fjárfesta í lífrænt vottuðum búum til að tryggja framboð. Hún sagði að aukinn áhugi væri á velferðarvottun fyrir dýraafurðir sem trygging fyrir því að vel væri staðið að aðbúnaðarmálum hjá bændum. Þróunin væri mun ríkari krafa um rekjanleika, betri merkingar og inni- haldslýsingar. Oddný ræddi því næst um neyslu- breytingar á markaðinum sem gerðust á ógnarhraða og að allir vöruflokkar væru í mikilli þróun. Neytendur væru orðnir mun meðvitaðri, upplýstari og kröfuharðari og gerðu kröfu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Nú væri tilhneiging markaðarins til að velja gæði, ferskleika og fjöl- breytileika og vörur sem einfölduðu hversdagsleikann, eins og tilbúna og hálftilbúna holla og bragðgóða rétti. Mikil söluaukning væri í ferskum dýraafurðum í stað unninna og krafa um „hreinar“ vörur án fyllingar- og aukefna. Drykkjarmjólk væri að víkja fyrir vatni með mat og aukning væri í sölu á sódavatni og drykkjum með tiltekna virkni á kostnað sykraðs goss og ávaxtasafa. Fita væri ekki lengur úti í kuldanum og að fólk væri í auknum mæli að velja heilsuvörur og fæðu- bótarefni í stað lyfja í leit að bættri heilsu og líðan. Hún sagði loks að umhverfisvit- und væri orðin margfalt meiri í sam- félaginu. Í takt við það væri Krónan á þeirri vegferð að finna leiðir til að lágmarka vistsporið, draga úr sóun á öllum sviðum, minnka umbúðir og hafa þær umhverfisvænni, vera með fjölnota í stað einnota og leggja áherslu á umhverfisvottaðar vörur. Dæmi um árangur væri sá að í dag sé nánast engum ætum matvælum lengur hent í Krónunni, heldur séu þau seld undir merkjunum „Síðasti séns“ sem væri átak í að stöðva matarsóun. Sjálfvirkni tekur í ríkari mæli við af mannshendinni Finnbogi Magnússon, framkvæmda- stjóri hjá Jötunn, fór yfir nýjustu tækni í landbúnaðartækjum og orkuskipti í landbúnaði. Hann sagði að mikil þróun hefði orðið í þeim efnum, sjálf- virk tækni hefði tekið við af manns- hendinni í æ ríkari mæli. Áherslan væri á aukin afköst með minni til- kostnaði og þá hefði vitund manna aukist á því að umferð þungra tækja um ræktarland á stundum í för með sér uppskerutjón. Eins nefndi Finnbogi að áhersla væri lögð á að bæta nýtingu hráefna, svo sem fóðurs, áburðar og eiturefna og rafrænt eftirlit með t.d. mjöltum og fóðrun færi vaxandi. Finnbogi kom víða við í erindi sínu og fjallaði um nýjungar t.d. hvað varð- ar dráttarvélar, metangas, raf- magn, þjarka, dróna, Yara N skynjara og vigtarbúnað á ámoksturstæki, sem og nefndi hann að stutt væri í að sjálfkeyrandi drátt- arvélar, t.d. að 2–3 vélar gætu unnið á sama svæði með einn ökumann. Dísilolía hefur verið allsráðandi orkugjafi á dráttarvélum í áratugi og þróunin orðið sú að þær eru nú hag- kvæmar og endingargóðar. Íblöndun lífdísils hefur dregið úr kolefnisspori orkugjafans en er háð ákveðnum tak- mörkunum. Hærra verð á dísilolíu nú sé ein forsenda þess að fjárfesting í nýjum orkugjöfum aukist. Finnbogi sagði áhuga fyrir að nota gas frá búfjáráburði sem orkugjafa heima á býlunum, en kostnaðarsöm hreinsun á hauggasi gerði framleiðslu á met- ani ekki raunhæfa nú. Kyrrstaða hefði verið í þessum efnum undanfarin ár þar sem menn bíða nýrrar reglugerðar ESB um staðla fyrir tvíorkumótora. Ör þróun í gangi á öllum vígstöðvum Finnbogi nefndi að dráttarvélar færu stækkandi sem og hjólbarðar en hvoru tveggja valda aukinni jarðvegsþjöpp- un sem leiðir til minni uppskeru. Þróun hefði orðið í framleiðslu á dekkjum sem virka vel með lágum loftþrýstingi. Sama er upp á teningnum þegar kemur að þróun þjarka, hún hefur verið ör undanfarin ár, en þeir eru um þessar mundir helst hugsaðir til hreinsunar á illgresi og til að hlúa að plöntum. Telur Finnbogi að þeir muni á næstu árum þróast í átt að stærri tækjum með fjölbreyttara notagildi. Þá nefndi hann dróna, sem eins hafa verið í örri þróun, t.d. hvað varðar flugþol og burðargetu. Drónar geta nú fundið illgresi og eytt því með úðun. Þeir eru í auknum mæli notaðir til myndatöku til að greina skortsein- kenni plantna. „Drónar eiga eftir að verða mikilvægt hjálpartæki hér- lendis við smölun og eftirlit,“ sagði Finnbogi. Vélaverktaka til sveita Bessi Freyr Vésteinsson, vélaverktaki og bóndi í Hofsstaðaseli í Skagafirði, fjallaði um vélaverktöku til sveita, tæknilausnir og hagkvæmni. Hann hefur um árabil ásamt konu sinni, Sólrúnu Ingvadóttur, rekið fyrir- tækið Sel ehf. sem sérhæfir sig í vélaverktöku og flutningum tengd- um landbúnaði. Samhliða stunda þau búskap á Hofsstaðaseli. Upphafið má rekja til ársins 1987 þegar rúllupökkunarvélin var að ryðja sér til rúms, tækninýjung á þeim tíma sem gjörbylti heyverkun og verklagi við heyskap hér á landi. Bessi sagðist strax hafa séð að mikil þörf væri fyrir þessa tækni í sveitum landsins, hann hafi 17 ára gamall, árið 1988, farið á fund bankastjóra og fengið lán til kaupa á notaðri rúlluvél og pökkunarvél með þá hugmynd í farteskinu að bjóða bændum að binda fyrir þá bagga og pakka inn í plast. Markmiðið hafi verið að skapa sér sumarvinnu. Frá þeim tíma hefur starfsemi á hans vegum vaxið og dafnað og er orðin æði umfangsmikil, stöð- ugur vöxtur hefur verið þegar að verk efnum kemur og eru þau marg- vísleg. Starfsmannafjöldinn síð- astliðið sumar var á bilinu 8–9, en færri eru að störfum yfir veturinn. Hagkvæmni og afkastageta skipta verulegu máli Bessi sagðist vera duglegur að fylgj- ast með straumum og stefnum, því sem nýjast er í heimi landbúnaðar- tækja og tekur nýjungar sem gagn- ast að hans mati íslenskum landbún- aði fljótt í notkun. Hagkvæmni og afkastageta skipta verulegu máli og hefur hann það til hliðsjónar í sínum vélakaupum. „Þannig trúi ég að íslenskur landbúnaður geti lifað af vaxandi samkeppni og alþjóða- væðingu,“ segir hann. Eðli flestra verkefna á þessu sviði eru háð veðri og hafa flest afmarkaðan tímaramma, því telur Bessi farsælast að ráða fyrir afkastamiklum tækjum og öflugum mannskap. Hann segir samskipti við bændur ganga vel. „Það er mik- ilvægt að nýta ávallt þau bestu tæki sem völ er á hverju sinni, þar gegna verktakar lykilhlutverki, að þeir velja þau tæki sem stuðla að aukinni fram- leiðni fyrir sína viðskiptavini.“ Þróun hátæknibúnaðar í matvælavinnslu Brynjar Már Karlsson, fram- kvæmdastjóri vöruþróunar hjá Marel kjötiðnaði, fjallaði um tækni við úrvinnslu búvara, rekjanleika og upplýsingagjöf til neytenda og sagði að mikil og jákvæð þróun hefði orðið í matvælavinnslu undanfarin 30 ár. Marel þykir í fararbroddi á heims- vísu í þróun hátæknibúnaðar og kerfa til úrvinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Félagið, sem hófst sem hugmynd nemenda við Háskóla Íslands árið 1977, byggir nú á sterkum grunni og teygir starfsemin anga sína víða, félagið á í samstarfi við um 100 aðila, í yfir 30 löndum víða um heim og starfsmenn eru í allt um 4.600 tals- ins. Marel samanstendur af mörgum smáum, sérhæfðum fyrirtækjum og frumkvöðlum. Brynjar sagði að Marel væri um þessar mundir leiðandi sem framleið- andi á háþróuðum vinnslukerfum og þjónustu í kjúklinga,- kjöt- og fisk- iðnaði, en tekjur félagsins skiptast þannig að ríflega helmingur, 53%, eru vegna kjúklinga, kjötiðnaður er með um 33% og fiskiðnaður 13%. Brynjar nefndi í erindi sínu á árs- fundi BÍ að unnið væri að hönnun og framleiðslu lausna fyrir mat- vælavinnslu innan fyrirtækisins og væri þá um að ræða allt frá stökum tækjum og upp í heildarlausnir með tengingu við Innova, gagnagrunns- og rekstrarkerfi. Stefna fyrirtækisins væri að afhenda heildarkerfislausnir í þeim greinum sem félagið hefði einbeitt sér að, kjúklingi, kjöt- og fiskiðnaði. Gæðamatvara unnin á sjálfbæran og hagkvæman hátt Mikil vöruþróun hefur átt sér stað innan fyrirtækisins og sem dæmi nefndi hann að fjárfest hefði verið í vöruþróun fyrir um 60 milljónir evra árið 2015. Sýn félagsins væri á þá lund að umbreyta matvælavinnslu: Okkar sýn er heimur þar sem gæða matvara er unnin á sjálfbæran og hagkvæman hátt, sagði Brynjar. Kjötvinnsla sem áður hefði einkennst af fjöldafram- leiðslu væri meira í líkingu við þekk- ingarframleiðslu nú um stundir. Brynjar gerði einnig aukna verslun í gegnum netið að umtalsefni, en fjöldi þeirra sem slíkt stunda eykst ár frá ári. Þá fjallaði hann einnig um rekj- anleika matvörunnar, sem auðveldara er að fást við í nútímanum en áður var og hvernig tæknilausnir Marel gera að verkum að hráefni nýtist betur, hreinlæti hafi aukist og vinnsluhraði einnig. Heildartæknilausnir félagsins geri einnig kleift að fylgjast betur með öllu vinnsluferlinu og hámarka virði hráefnisins. Ráðstefnustjóri var Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri. /smh og MÞÞ Ráðstefnan Búskapur morgundagsins í Hofi: Sjálfbærni íslensks landbúnaðar til umræðu Í pallborðsumræðum: Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, Brynjar Már Karlsson, Bessi Freyr Vésteinsson og Finnbogi Magnússon. Myndir / smh

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.