Bændablaðið - 23.03.2017, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Hestamenn undirbúa stórhátíð í Reykjavík:
Miðasala á Landsmót 2018 hafin
Miðasala fyrir Landsmót hesta-
manna 2018 mun hefjast þann 25.
mars, en miðasalan verður form-
lega opnuð á stærstu hestasýningu
Þýskalands, Equitana. Fulltrúar
frá Landsmóti og markaðsverk-
efnisins Horses of Iceland munu
sjá til þess að viðburðurinn verði
þar vel kynntur. Áskell Heiðar
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Landsmótsins, segir að stór sam-
starfshópur undirbúi nú glæsi-
legan vikulangan viðburð.
Landsmót hestamanna verð-
ur haldið á félagssvæði hesta-
mannafélagsins Fáks í Reykjavík
daganna 1.–8. júlí 2018. Rekstrar-
fyrirkomulagi mótsins hefur verið
breytt en nú verður mótið alfarið
skipulagt og haldið af hestamanna-
félagi sem hýsir mótið en ekki af
Landssambandi hestamanna eins og
verið hefur.
„Ég er nýlega kominn til starfa
en núna erum við að setja af stað
markaðsmálin og miðasöluna,“
segir Áskell Heiðar, sem einnig
stýrði Landsmótinu sem haldið var
á Hólum í Hjaltadal í fyrra.
„Áður en ég kom að þessu eru
öflugir aðilar búnir að ýta ýmsum
verkefnum af stað og mitt verk-
efni næstu vikurnar er að vinna að
fjárhagsáætlun, læra inn á svæðið
og síðast en ekki síst að kynnast
öllu því frábæra fólki sem ætlar
að leggja mótinu til krafta sína en
svona risaviðburður er hópverkefni
og að þessu mun koma áhugafólk
um hestamennsku, ekki bara úr Fáki
heldur alls staðar að.“
Kostir og áskoranir staðsetningar
Vegna nálægðar við höfuðstaðinn
býður Landsmót í Víðidal upp á
nokkuð ólíka möguleika en aðrir
staðir.
„Ég lít þannig á að allir staðir
hafi kosti en tek ekki þátt í umræð-
um um hvort eitt svæði sé betra en
annað. Mitt verkefni er að búa til
góðan viðburð þar sem fólki líður
vel, er öruggt og fær þá þjónustu
sem það vill. Svæðið sannaði sig
2012 og aðstaða þar hefur bara
batnað síðan. Viðburður í þéttbýli
verður alltaf frábrugðinn viðburði í
dreifbýli þar sem viðbúið er að fleiri
muni hafa aðsetur utan mótssvæð-
isins. En það er bara eitthvað sem
við vinnum með og við erum stað-
ráðin í að halda frábært Landsmót
í Reykjavík,“ segir Áskell Heiðar.
Auk þess geti staðsetningin laðað
að fleiri erlenda ferðamenn.
„Landsmót hefur lengi verið
viðburður sem dregur að sér fjölda
erlendra gesta sem kemur sérstak-
lega til landsins og á mótið vegna
áhuga á íslenska hestinum. Hlutfall
erlendra gesta hefur verið í kringum
20% á síðustu mótum. En staðsetn-
ingin í Reykjavík þar sem gríðarleg-
ur fjöldi ferðamanna dvelur opnar
auðvitað á möguleika varðandi t.d.
styttri heimsóknir inn á svæðið og
það er eitthvað sem við munum
skoða vel í samráði við ferðaþjón-
ustuna.“
Ný áhorfendabrekka
Þá segir Áskell Heiðar að uppi séu
ýmsar hugmyndir um nýjungar
í dagskrá, sem gætu höfðað til
annarra en gallharðra hestamanna.
„Það eru ýmsar hugmyndir þegar
komnar fram og við munum leggja
okkur fram við að fólki líði vel, líka
þeim sem eru ekki límdir við brekk-
una. Einn af kostum Reykjavíkur
er auðvitað að það er stutt í fjöl-
breytta þjónustu og afþreyingu og
við munum örugglega bæði bjóða
upp á afþreyingu inn á svæðinu og
líka hjálpa fólki sem vill skreppa
út af svæðinu og kíkja t.d. í golf,
hvalaskoðun eða á söfn.“
Nú þegar eru hafnar framkvæmd-
ir á mótssvæðinu í Víðidal. „Nú
stendur yfir vinna við nýja áhorf-
endabrekku við Hvammsvöll sem
mun breyta ásýnd vallarins nokkuð
og auka enn á stemninguna á vellin-
um. Við munum svo leggjast ítarlega
yfir svæðið og gera aðstöðu eins vel
úr garði og mögulegt er, bæði fyrir
hesta og mannfólk,“ segir Áskell
Heiðar.
Fjölskylduvænn viðburður
Opnað verður fyrir miðasöluna á
Landsmótið 2018 á hestasýningunni
Equitana í Essen í Þýskalandi um
helgina en þátttaka í sýningunni er
liður í kynningu á verkefninu Horses
of Iceland.
„Þetta er risastór sýning þar sem
fólk alls staðar að í heiminum kemur
saman og það sem sameinar það er
áhugi á hestum. Okkur fannst því
upplagt að búa til lítinn viðburð
þarna þar sem miðasalan mun opna
formlega,“ segir Áskell Heiðar sem
sér stórkostlega hátíð í uppsiglingu.
„Ég sé fyrir mér glæsilegan
vikulangan viðburð þar sem íslenski
hesturinn er í aðalhlutverki, frábæra
gæðingakeppni og kynbótasýningar
sem verða örugglega í hæsta gæða-
flokki. Svo ætlum við okkur að búa
til aðstæður þar sem þú sem gestur
getur notið bæði afþreyingar og
góðrar þjónustu þegar þú ert ekki
að fylgjast með hestunum. Eftir að
keppni lýkur á kvöldin munum við
svo skemmta okkur, en í grunninn er
þetta fjölskylduhátíð fyrir fólk sem
hefur áhuga á íslenska hestinum og
það verður okkar leiðarljós.“
Framkvæmdastjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson sem stýrði einnig Landsmótinu sem haldið var á Hólum í Hjaltadal í fyrra.
HROSS&HESTAMENNSKA
Séð y r svæði hestamannafélagsins Fáks í Víðidal í Reykjavík þegar Landsmót hestamanna var haldið þar árið 2012.
Frá Landsmóti hestamanna 2012. Mynd / HKr.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com