Bændablaðið - 23.03.2017, Page 26

Bændablaðið - 23.03.2017, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Bændur í Norður-Þingeyjarsýslu gerðu sér glaðan dag „Nokkur fyrirtæki hér á svæðinu lögðu okkur lið og gerðu okkur mögulegt að eiga hér saman góðan dag,“ segir Sigþór Þórarinsson, bóndi í Sandfellshaga 1. Bændur í Norður-Þingeyjarsýslu, innan Búnaðarsambands Norður- þingeyinga (BSNÞ), hafa skipst á heimboðum undanfarin ár. Starfssvæði sambandsins nær frá Kelduhverfi austur í Bakkafjörð og innan þess svæðis eru fjögur þorp auk dreifbýlisins, Kópasker, Raufarhöfn, Þórshöfn og Bakkafjörður. Keldhverfingar riðu á vaðið og buðu bændum á svæði BSNÞ í heim- sókn til sín árið 2012 og ári síðar voru það Þistlar og Langnesingar sem stóðu fyrir heimboði á sitt svæði. Nú var röðin komin að svæðinu í Öxarfirði, Núpasveit og á Sléttu, en bændur á svæðinu buðu heim nú á dögunum og var þátttaka góð líkt og áður hafði verið, um 100 manns hafa þegið heimboðin. Venjan er sú að heimsækja fyrir- tæki á svæðinu, bæði stór og smá, líta heim á bæi og skoða útihús eða annað markvert og dagurinn endar yfirleitt í viðeigandi húsnæði, félagsheimili eða reiðhöll. Íslandsbleikja í hópi stærstu landeldisstöðva í heimi Vel var að venju mætt í heimboðið á dögunum þar sem bændur úr Norður- Þingeyjarsýslu gerðu sér glaðan dag. Mæting var við Íslandsbleikju í Öxarfirði og lék veður við gesti, sólskin, hlýtt í veðri og örlítil sunn- an gola. Arnar Freyr Jónsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsbleikju, sem áður hét Silfurstjarnan, tók á móti hópnum og greindi frá starfsemi félagsins. Fiskurinn er alinn upp í slát- urstærð, eða allt upp í 4 kíló og er vinnsla starfrækt samhliða eldinu. Þar fer slátrun einnig fram, slæging og pökkun á heilum ferskum fiski. Framleiðsla fyrirtækisins er um 1.400 tonn af laxi á ári og er félagið í hópi stærstu landeldisframleiðenda á laxi í heiminum. Stefnt er að því að auka framleiðsluna á næstu árum. Eldisstöðin í Öxarfirði hefur nokkra sérstöðu þar sem töluverður jarðhiti er á svæðinu og hægt að ala laxinn upp við 10 til 11 gráðu heitt ísalt vatn. Bændur fóru um svæðið og skoðuðu fiska og aðbúnað, nýframkvæmdir og fleira auk þess að þiggja veitingar. Heimsins bestu gulrætur í Akurseli Frá Íslandsbleikju var haldið niður austursand og heim að Akurseli. „Þar eru heimsins bestu gulrætur ræktaðar,“ segir Sigþór. Ábúendur, Sara Stefánsdóttir, Árni Sigurðsson og Sigurbjörg Jónsdóttir, móðir Söru, tóku á móti bændum og fræddu um starfsemi býlisins, en foreldrar Söru keyptu jörðina árið 2002 og þar hefur m.a. verið stunduð umfangsmikil ræktun á gulrótum. Sýnikennsla í rúningi Næst lá leiðin í Ærlækjarsel þar sem þau Eyrún Egilsdóttir og Bernharð Grímsson búa með um 400 fjár og nokkrar hænur. Farið var í fjárhús, tæki og tól skoðuð og notið veitinga. Loks lá leiðin í Sandfellshaga 1 þar sem bræðurnir Rúnar og Sigþór Þórarinssynir búa ásamt sambýl- iskonu þess síðarnefnda, Kristínu Gunnarsdóttur. Á búinu eru um 670 kindur á húsi og örfáar hænur. Verið er að byggja 350 fermetra vélaskemmu sem varð fokheld á þorranum. Þar eru einnig nýleg 400 kinda fjárhús. Fram fór sýnikennsla í rúningi á meðan gestir stöldruðu við, um hana sáu þeir Klifshagabræður, Baldur og Daníel Stefánssynir. Gestir þáðu súpu og brauð, kaffi og með því áður en haldið var út á Sléttu. Í Leirhöfn var fyrsta fjárhúsið með vélgengum kjallara Hópurinn hélt þá að Leirhöfn og Nýhöfn þar sem m.a. var skoðuð fjárrétt við bæinn. Á Leirhöfn var á sínum tíma reist fyrsta fjárhús hér á landi með vélgengum kjallara. Þá var haldið heim að Snartarstöðum og skógrækt ábúenda, Helga Árnasonar og Sigurlínu Jóhannesdóttur, og fræðst um hana, en þau hjónin rækta skóg á um 100 hektara lands. Veglegur kvöldverður í Feykishöll Dagsferðinni lauk með vegleg- um kvöldverði í reiðhöllinni á Snartarstöðum, Feykishöllinni, lambasteik með öllu tilheyrandi. Sigþór segir ýmsa hafa lagt sitt lóð á vogarskálar til að gera daginn eft- irminnilegan, auk Búnaðarsambands Norður-Þingeyinga tóku Bústólpi, Búvís, Fjallalamb, Guðmundur Arason smiðja, Jötunn vélar, SS, VB Landbúnaður og Vökvaþjónustan Kópaskeri þátt. Allir lögðust sælir á koddann um kvöldið „Þessi dagur tókst í alla staði mjög vel verð ég að segja og örugglega flestir ef ekki allir sem lögðust sælir og ánægðir á koddann um kvöldið,“ sagði Sigþór. /MÞÞ Bændur og búalið í Norður-Þingeyjarsýslu í heimsókn hjá Íslandsbleikju í Öxar rði. Myndir / Kristín Gunnarsdóttir og Nanna Steinunn Höskuldsdóttir Starfsmenn Fjallalambs að græja steikina. Sigurður Árnason, Presthólum, við mækinn, að halda ræðu. Tæki og tól frá Vökvaþjónustunni fjær. Séð y r salinn í Feykishöll. „Spekingar spjalla“ í skemmunni hjá Benna í Seli. F.v. Stefán Pétursson, Klifs- haga, Eggert Stefánsson, Laxárdal, Steingrímur Þorsteinsson, Hóli, Stefanía Snorradóttir, Marinó Jóhannsson, Tunguseli og Reimar Sigurjónsson, Felli. Stuðboltarnir Tryggvi Sigurðsson, Birkifelli og Hafsteinn Hjálmarsson, Gilsbakka héldu uppi fjörinu í Feyk- ishöll. Ungir sem aldnir að fylgjast með snillingum að rúningi í fjárhúsunum í Sandfellshaga. Marinó í Tunguseli liklega að dást í huganum að fénu í Sandfellshaga. Slappað af fyrir matinn. Fv. Alda Jónsdóttir, Presthólum, hjónin í Mið- fjarðarnesi, Sigríður Indriðadóttir og Kr ys tof Krawc yk, Ha iði Jónsson, Bakka og Sigurlína Jóhannessdóttir, Snartarstöðum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.