Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Bændur í Norður-Þingeyjarsýslu gerðu sér glaðan dag
„Nokkur fyrirtæki hér á svæðinu
lögðu okkur lið og gerðu okkur
mögulegt að eiga hér saman góðan
dag,“ segir Sigþór Þórarinsson,
bóndi í Sandfellshaga 1.
Bændur í Norður-Þingeyjarsýslu,
innan Búnaðarsambands Norður-
þingeyinga (BSNÞ), hafa skipst
á heimboðum undanfarin ár.
Starfssvæði sambandsins nær frá
Kelduhverfi austur í Bakkafjörð og
innan þess svæðis eru fjögur þorp auk
dreifbýlisins, Kópasker, Raufarhöfn,
Þórshöfn og Bakkafjörður.
Keldhverfingar riðu á vaðið og
buðu bændum á svæði BSNÞ í heim-
sókn til sín árið 2012 og ári síðar voru
það Þistlar og Langnesingar sem
stóðu fyrir heimboði á sitt svæði.
Nú var röðin komin að svæðinu í
Öxarfirði, Núpasveit og á Sléttu, en
bændur á svæðinu buðu heim nú á
dögunum og var þátttaka góð líkt og
áður hafði verið, um 100 manns hafa
þegið heimboðin.
Venjan er sú að heimsækja fyrir-
tæki á svæðinu, bæði stór og smá, líta
heim á bæi og skoða útihús eða annað
markvert og dagurinn endar yfirleitt
í viðeigandi húsnæði, félagsheimili
eða reiðhöll.
Íslandsbleikja í hópi stærstu
landeldisstöðva í heimi
Vel var að venju mætt í heimboðið á
dögunum þar sem bændur úr Norður-
Þingeyjarsýslu gerðu sér glaðan
dag. Mæting var við Íslandsbleikju
í Öxarfirði og lék veður við gesti,
sólskin, hlýtt í veðri og örlítil sunn-
an gola. Arnar Freyr Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsbleikju, sem
áður hét Silfurstjarnan, tók á móti
hópnum og greindi frá starfsemi
félagsins.
Fiskurinn er alinn upp í slát-
urstærð, eða allt upp í 4 kíló og er
vinnsla starfrækt samhliða eldinu.
Þar fer slátrun einnig fram, slæging
og pökkun á heilum ferskum fiski.
Framleiðsla fyrirtækisins er um
1.400 tonn af laxi á ári og er félagið
í hópi stærstu landeldisframleiðenda
á laxi í heiminum. Stefnt er að því að
auka framleiðsluna á næstu árum.
Eldisstöðin í Öxarfirði hefur nokkra
sérstöðu þar sem töluverður jarðhiti
er á svæðinu og hægt að ala laxinn
upp við 10 til 11 gráðu heitt ísalt vatn.
Bændur fóru um svæðið og skoðuðu
fiska og aðbúnað, nýframkvæmdir og
fleira auk þess að þiggja veitingar.
Heimsins bestu gulrætur
í Akurseli
Frá Íslandsbleikju var haldið niður
austursand og heim að Akurseli.
„Þar eru heimsins bestu gulrætur
ræktaðar,“ segir Sigþór. Ábúendur,
Sara Stefánsdóttir, Árni Sigurðsson
og Sigurbjörg Jónsdóttir, móðir
Söru, tóku á móti bændum og
fræddu um starfsemi býlisins,
en foreldrar Söru keyptu jörðina
árið 2002 og þar hefur m.a. verið
stunduð umfangsmikil ræktun á
gulrótum.
Sýnikennsla í rúningi
Næst lá leiðin í Ærlækjarsel þar sem
þau Eyrún Egilsdóttir og Bernharð
Grímsson búa með um 400 fjár og
nokkrar hænur. Farið var í fjárhús,
tæki og tól skoðuð og notið veitinga.
Loks lá leiðin í Sandfellshaga 1 þar
sem bræðurnir Rúnar og Sigþór
Þórarinssynir búa ásamt sambýl-
iskonu þess síðarnefnda, Kristínu
Gunnarsdóttur.
Á búinu eru um 670 kindur á húsi
og örfáar hænur. Verið er að byggja
350 fermetra vélaskemmu sem varð
fokheld á þorranum. Þar eru einnig
nýleg 400 kinda fjárhús.
Fram fór sýnikennsla í rúningi á
meðan gestir stöldruðu við, um hana
sáu þeir Klifshagabræður, Baldur
og Daníel Stefánssynir. Gestir þáðu
súpu og brauð, kaffi og með því
áður en haldið var út á Sléttu.
Í Leirhöfn var fyrsta fjárhúsið
með vélgengum kjallara
Hópurinn hélt þá að Leirhöfn og
Nýhöfn þar sem m.a. var skoðuð
fjárrétt við bæinn. Á Leirhöfn var
á sínum tíma reist fyrsta fjárhús hér
á landi með vélgengum kjallara. Þá
var haldið heim að Snartarstöðum og
skógrækt ábúenda, Helga Árnasonar
og Sigurlínu Jóhannesdóttur, og
fræðst um hana, en þau hjónin rækta
skóg á um 100 hektara lands.
Veglegur kvöldverður í Feykishöll
Dagsferðinni lauk með vegleg-
um kvöldverði í reiðhöllinni á
Snartarstöðum, Feykishöllinni,
lambasteik með öllu tilheyrandi.
Sigþór segir ýmsa hafa lagt sitt lóð
á vogarskálar til að gera daginn eft-
irminnilegan, auk Búnaðarsambands
Norður-Þingeyinga tóku Bústólpi,
Búvís, Fjallalamb, Guðmundur
Arason smiðja, Jötunn vélar, SS,
VB Landbúnaður og Vökvaþjónustan
Kópaskeri þátt.
Allir lögðust sælir á koddann
um kvöldið
„Þessi dagur tókst í alla staði mjög
vel verð ég að segja og örugglega
flestir ef ekki allir sem lögðust sælir
og ánægðir á koddann um kvöldið,“
sagði Sigþór. /MÞÞ
Bændur og búalið í Norður-Þingeyjarsýslu í heimsókn hjá Íslandsbleikju í Öxar rði. Myndir / Kristín Gunnarsdóttir og Nanna Steinunn Höskuldsdóttir
Starfsmenn Fjallalambs að græja steikina. Sigurður Árnason, Presthólum,
við mækinn, að halda ræðu. Tæki og tól frá Vökvaþjónustunni fjær.
Séð y r salinn í Feykishöll.
„Spekingar spjalla“ í skemmunni hjá Benna í Seli. F.v. Stefán Pétursson, Klifs-
haga, Eggert Stefánsson, Laxárdal, Steingrímur Þorsteinsson, Hóli, Stefanía
Snorradóttir, Marinó Jóhannsson, Tunguseli og Reimar Sigurjónsson, Felli.
Stuðboltarnir Tryggvi Sigurðsson,
Birkifelli og Hafsteinn Hjálmarsson,
Gilsbakka héldu uppi fjörinu í Feyk-
ishöll.
Ungir sem aldnir að fylgjast með snillingum að rúningi í fjárhúsunum í
Sandfellshaga. Marinó í Tunguseli liklega að dást í huganum að fénu í Sandfellshaga.
Slappað af fyrir matinn. Fv. Alda Jónsdóttir, Presthólum, hjónin í Mið-
fjarðarnesi, Sigríður Indriðadóttir og Kr ys tof Krawc yk, Ha iði Jónsson,
Bakka og Sigurlína Jóhannessdóttir, Snartarstöðum.