Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Halldór Anton Reynisson keppir fyrir HR Racing í powerboat class Formula 4 hraðbátaflokki í Noregi:
Þýtur yfir hafflötinn á 115 km hraða
− Kynnti bát sinn í keppnisgrein á sýningu Íslandsmóts iðn- og verkgreina í Laugardalshöllinni
Akurnesingurinn Halldór
Anton Reynisson var á sýningu
Íslandsmóts iðn- og verkgreina
í Laugardalshöllinni með grip
sem ekki er mjög vanalegt að sjá
hér á landi.
Þetta er lokaður Formula 4
katamaran keppnisbátur með 60
hestafla utanborðsmótor. Halldór
Anton segist vera búinn að stunda
þessa íþrótt í fjögur ár í Noregi en
þjálfari hans, sem er norsk kona,
keppir í formúlu 1 keppni slíkra
báta.
„Mér hefur gengið vel en það
eru keppnir sex sinnum á ári.
Það er hægt að fylgjast með því
á Facebook-síðunni HR Racing.“
Kemst á allt að 130 km hraða
Báturinn hans Halldórs er með 60
hestafla utanborðsmótor. Í keppni er
Halldór að fara á 110 til 115 km hraða.
Hann segir þó mögulegt að komast á
130 km hraða við góðar aðstæður og
með stærri skrúfu. Við stærri skrúfu
missi báturinn að vísu talsverðan við-
bragðshraða og er lengur af stað sem
þykir ekki gott í keppni.
Skrokklögun bátsins, sem er tví-
bytna eða svokallaður katamaran
bátur, gerir hann mjög stöðugan. Því
segist Halldór hiklaust fara í beygjur
á fullri inngjöf.
Bátur Halldórs er ekki ýkja þungur.
Með mótor sem er 110 kg er hann ekki
nema 280 kg með öllu.
Má ekki vera smeykur
– Nú eru þetta hraðskreiðir bátar og
talsvert um að þeir fari upp á endann
eða hvolfi á mikilli ferð. Ert þú ekkert
smeykur að keppa á þessu?
„Maður má ekkert vera smeykur.
Ég hef ekki lent í að hvolfa þessum
bát, en lenti í slíku á hinum tveim bát-
unum sem ég var með.“
Aðspurður hvort þetta væri ekki
dýrt sport, vildi hann ekki meina að
svo væri. Þetta væri alls ekkert dýrara
en t.d krosshjólasportið. „Þetta er ekki
eins dýrt og fólk heldur.“ Það má heita
stórundarlegt hvað sjósportgreinar
hafa fengið lítið pláss á sjónvarps-
stöðvum þessa mikla sjávarútvegs-
lands. Var Halldór sammála því og
sagði að reyndar væri hægt að fylgjast
með honum á Facebook-síðu hans HR
Racing. /HKr.
Hinn mikli keppnismaður Halldór Anton Reynisson við bát sinn í Laugardalshöll. Á honum þeytist hann í keppni á 110 til 115 km hraða, en segist komast á alllt að 130 km hraða. Myndir / HKr.
Halldór á fullri ferð.
Mynd / af vefsíðu HR Raceing
Þegar kappið er mikið getur stundum
farið illa. Mynd / af vefsíðu HR Raceing
Íslandsmót iðn- og verkgreina 2017 fór fram í Laugardalshöllinni 16.–18. mars:
Keppt var í 23 greinum – úrslit í einstaklings- og liðakeppni
Bakaraiðn
1. Gunnlaugur Arnar Ingason.
Kökulist/Valgeirs bakarí
2. Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir.
Sandholt
3. Stefán Pétur Bachmann Bjarna-
son. Passion Reykjavík
Bifreiðasmíði
1. Remek Duda Maríusson. GB-
-Tjónaviðgerðir
2. Runólfur Reyr Klemenzar-
son BL
3. Harpa Dögg Halldórsdóttir
Borgarholtsskóli
Bifvélavirkjun
1. Alexander Svanur Guðmunds-
son. Borgarholtsskóli
2. Brynjar Steinn Magnússon.
Askja
3. Fjóla Dís Viðarsdóttir. Askja
Bilanagreining kælikerfa
1. Sæþór Orrason. Framhaldssk í
Vestmannaeyjum
2. Friðrik Karlsson. VMA
3. Bernhard Anton Jónsson. VMA
Bílamálun
1. Jason Nói Arnarson
2. Borgarholtsskóli
3. Björn Guðmundur Björnsson.
Borgarholtsskóli
4. Tómas Guðmundsson. Borg-
arholtsskóli
Framreiðsla
1. Sigurður Borgar Vox
2. Alma karen Sverrisdóttir
3. Iceland Natura
4. Gréta Sóley Arngrímsdóttir.
Iceland Natura.
Undanúrslit í Norrænu
Nemakeppninni
Þessi Fara áfram í úrslitakeppni
í september í Hörpu:
Axel Árni Herbertsson. Bláa
lónið
Rakel Siva. Radisson SAS Blu
Sandra Óskarsdóttir. Bláa lónið
Sandra Sif Eiðsdóttir. Radisson
SAS Blu, Sigurður Borgar. Vox
Grafísk miðlun
1. Embla Rún Gunnarsdóttir.
Tækniskólinn
2. 2. Símon Norðfjörð Viðarsson.
Tækniskólinn
3. 3.Davíð Snær Jónsson.Tækni-
skólinn
Gullsmíði
1. Guðrún Inga Guðbrandsdóttir.
Tækniskólinn
2. Anna Guðlaug Sigurðardóttir.
Tækniskólinn
3. Linda Ósk Svavarsdóttir.
Tækniskólinn
Hársnyrtiiðn
1. Klara Ívarsdóttir. Tækniskólinn
2. Edda Heiðrún Úlfarsdóttir.
Tækniskólinn
3. Alma Björgvinsdóttir. Tækni-
skólinn
Hönnun vökvakerfa
1. Friðrik Karlsson. VMA
2. Bernhard Anton Jónsson. VMA
3. Sæþór Orrason. Framhalds-
skólinn í Vestmannaeyjum.
Kjötiðn
1. Helga Hermannsdóttir. Norð-
lenska
2. Alex Tristan Gunnþórsson.
Kjöthúsið
3. Rakel Þorgilsdóttir. Kjarnafæði
Leikjaforritun
1. Bernhard Linn Hilmarsson.
Tækniskólinn
2. Anna Bjarnsteinsdóttir. MR
3. Óðinn Eyjólfsson. Tækni-
skólinn
Matreiðsla
1. Kristinn Gísli Jónsson. Dill
2. Íris Jana Ásgeirsdóttir. Fiskfé-
lagið.
3. Kara Guðmundsdóttir. Fiskfé-
lagið
Undanúrslit í Norrænu
Nemakeppninni
Þessi fara áfram í úrslitakeppni
í september í Hörpu:
Bjarki Þorsteinsson. Radisson
SAS Blu
Elmar Ingi Sigurðsson. Radis-
son SAS Blu
Michael Pétursson. VOX
Hinrik Lárusson. Radisson SAS
Blu
Svala Sveinsdóttir. Icelandair
Marina.
Málaraiðn
1. Stefán Örn Ingibergsson
2. Tækniskólinn
3. Bjarki Geir Grétarsson. Tækni-
skólinn
Kjötiðnaðarmennirnir Jóhannes Geir Númason og Fannar Ingi Hrafnsson
voru að vinna við lostætar Pepsí- paprikupylsur með beikonosti fyrir gestina
á sýningunni. Mynd / HKr.