Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 33

Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Verð á 500 kg stórsekk aðeins 56.277 m/vsk Kraftblanda 30% fiskimjöl Óerfðabreytt hráefni Lífrænt selen karakterar verða áberandi í þjóðfé- laginu. Að sjálfsögðu eltir maður þá og reynir að túlka með jákvæð- um hætti. Guðni Ágústsson telst til dæmis alls ekki normaaa…l, …ééég meina, alls ekki venjulegur. Hvorki í orðfæri né öðru. Hann myndi því passa seint í það mót sem nú er verið að steypa allan fjöldann í. Guðna er því gott að eiga við, enda kall með gott hjarta og talar ekki illa um fólk.“ Nú vantar í pólitísku flóruna svona litríka karaktera sem þora að segja hlutina umbúðalaust. Það má ekki mismæla sig án þess að allt verði vitlaust.“ Óborganlegir stjórnmálafundir Jóhannes minnist framboðs- fundanna vestur á fjörðum í gamla daga þar sem afar litríkir persónuleikar tókust á í troðfull- um félagsheimilum. Slíkt þótti hin mesta skemmtun. „Ég myndi kaupa mig inn á slík- an framboðsfund fyrir stórfé ef hann væri í boði í dag,“ segir Jóhannes. „Enda lærði ég það í stjórnmála- fræðinni hjá Ólafi Ragnari Grímssyni, að stjórnmálaflokkar hefðu skemmtigildi. Ég hugsa að hann hafi þá fremur átt við fyrri tíð, því vart er það svo lengur. Þá var skemmtigildið eitt af helstu gild- um stjórnmálaflokkanna. Ég man eftir héraðsmótunum og fram- boðsfundunum í gamla daga, í og með voru þetta hreinar skemmti- samkomur. Menn mega nefnilega aldrei gleyma því að gaman og alvara er hluti af sama pakkanum. Annars hef ég bara gaman af þessu. Maður hittir marga og það er athyglisvert að í þeim stóra hópi er bara gott fólk. Ég hef aldrei hitt slæmt fólk, eða orðljótt fólk sem kemur fram eins og margir þekkja á fésbókinni. Sjálfur reyni ég mjög mikið að passa mig á því að móðga ekki fólk þegar ég kem fram. Þá tek ég gjarnan fram að fólk láti mig þá vita ef einhverjum sé misboðið. Það er helst að ég fái kvörtun yfir að hafa skilið einhvern útundan í gríninu,“ segir Jóhannes Kristjánsson. /HKr. Orginalinn Guðni Ágústsson frá Brúnastöðum og og eftirherman Jóhannes Kristjánsson frá Ingjaldssandi. Mynd / GVA Á myndinni má sjá f.v. Jónas Jónasson, bónda á Héðinshöfða, með forystuána Hosu og Halldór Sigurðsson, bónda á Syðri-Sandhólum, með forystuána Lipurtá, en Halldór aðstoðaði Jónas ásamt eirum við að ná fénu. Þess má geta að Lipurtá átti hrútana og við fósturtalningu sem fór fram á Héðinshöfða rétt eftir að féð náðist kom fram að báðar forystuærnar ganga með tvö lömb og hvíta ærin frá Hóli í Kelduhver er með þrjú. tigönguærnar þrjár ganga því með sjö lömb. Mynd / Atli Vigfússon Héðinshöfði á Tjörnesi: Fyrirhöfn að ná forystukindum í hús Það var mikil fyrirhöfn fyrir bændur á Héðinshöfða á Tjörnesi að ná forystukindum sínum í hús um helgina, en tvær ær þaðan hafa verið úti í allan vetur og erfitt að ná þeim. Lengi vel voru þær í fjallgarðin- um, en upp á síðkastið voru þær farn- ar að sjást við bæi og þá aðallega í landi Hringvers og Syðri-Tungu. Með þeim var ein hvít ær frá Hóli í Kelduhverfi og tveir hrútar undan annarri forystuánni. Allar þessar kindur náðust og tók eltingaleik- urinn upp undir sex klukkutíma að því er fram kemur í frásögn Atla Vigfússonar á Laxamýri á vefnum 641.is. Þreyttur en glaður Ærnar náðust að lokum við Héðinshöfða með hjálp nokkurra manna og tíkurinnar Pöndu frá Ketilsstöðum, en hún er mjög þjálf- aður og þekktur fjárhundur. Jónas Jónasson, bóndi á Héðinshöfða, sagðist hafa verið mjög þreyttur þegar viðureigninni lauk, en jafn- framt ákaflega glaður með það að hafa náð kindunum. Forystuærnar eru upphaflega tvílembingar saman, en Hosa slapp út úr réttinni við Héðinshöfða sl. haust og skildi sín lömb þar eftir og fór til fjalls. Líklega hefur hún hitt Lipurtá systur sína einhvers staðar, en til þeirra hafði sést og héldu þær hópinn. Tíðarfar hefur verið þannig að ekkert amaði að kindunum og tiltölulega vel í holdum miðað við aðstæður. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.