Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
UTAN ÚR HEIMI
Þegar norsku félagarnir Simen
Staalnacke og Peder Børresen
fengu þá hugmynd í eftirpartíi
fyrir rúmum 15 árum að hanna
og framleiða fatnað undir norsku
vörumerki, innblásið af fallegum
fjörðum og bændarómantík,
héldu flestir í kringum þá að þeir
væru algjörlega gengnir af göfl-
unum. Nú, 14 árum eftir að þeir
stofnuðu Moods of Norway, er
enginn sem efast lengur um við-
skiptahugmynd þeirra og frum-
kvöðlagetu, því í dag eru þeir með
350 starfsmenn í vinnu og velta
um fjórum milljörðum íslenskra
króna árlega.
Það er þessi litríki sköpunarkraft-
ur sem hefur slegið í gegn og með
mikilli eljusemi, úthaldi og heilum
hellingi af andvökunóttum hefur
Moods of Norway vaxið jafnt og
þétt undanfarin ár og eru nú þekkt-
ir um allan heim og þá ekki síst í
tískuheiminum. Fljótlega kom Jan
Egil Flo inn í myndina sem skipu-
leggjandi og bókhaldsmaður og
síðar Svíinn Stefan Dahlkvist sem
hefur sinnt ýmsum verkefnum hjá
fyrirtækinu, meðal annars að koma
því áfram á Ameríkumarkaði. Þegar
blaðamaður Bændablaðsins sló á
þráðinn á dögunum til Moods var
Simen Staalnacke við og sat fyrir
svörum.
„Aloha, svo skemmtilegt að
heyra frá íslensku Bændablaði,
við vorum einmitt með verslan-
ir í Reykjavík áður en allt hrundi
árið 2008. Á þeim tíma ákváðum
við að draga okkur út úr Evrópu-
markaðnum og reyna fyrir okkur
í Ameríku, það hafði alltaf verið
draumurinn,“ segir Simen og hlær.
Segja sögur í gegnum fötin
Strákarnir hafa aldrei misst trúna á
sjálfa sig og þrátt fyrir að hafa unnið
launalausir að ævintýrinu fyrstu árin
þá gáfust þeir aldrei upp.
„Það má segja að þetta hafi allt
byrjað þegar ég nam markaðsfræði á
Havaí fyrir rúmum 14 árum. Þá upp-
götvaði ég að landið sem ég kem frá,
Noregur, er mjög framandi. Þetta á
við um staðsetningu landsins, sögu
þess, hefðir og menningu. Þá kom
upp þessi hugmynd hjá mér og Peder
að segja norskar sögur í gegnum
fötin okkar og að spila með þetta
einstaka sem við höfum í Noregi,“
útskýrir Simen og segir jafnframt:
„Þegar ég kom heim úr náminu
þá byrjuðum við að hanna fyrstu
fatalínuna okkar með 24 vörum.
Móðir mín, sem hefur verið hönnuð-
ur frá því ég man eftir mér, hjálpaði
okkur með að finna verksmiðjur til
að framleiða vörurnar. Frá þessum
tíma hefur allt gengið á yfirsnúningi
og núna er merkið okkar orðið bæði
þjóðlegt og alþjóðlegt fatamerki.“
Jakkaföt úr gardínuefni
Strákarnir voru aldrei í vafa um að
Stryn, heimabær þeirra, yrði höfuð-
staður fyrir nýja fyrirtækið en þessi
litli bær með rúmlega tvö þúsund
íbúa hafði allt sem þeir vildu sýna
í fötunum sínum, það er, firði, fjöll,
jökul, laxveiði og bóndabæi.
„Moods byrjaði sem hreint herra-
merki en í dag er þetta lífsstíls-
merkjavara þar sem við hönnum
og seljum fyrir herra, dömur, börn,
íþróttir, ilmvötn, rakspíra og fleiri
fylgihluti. Við höfum meira að segja
hannað og látið framleiða fyrir okkur
eigið traktoravöfflujárn sem okkur
finnst mjög töff.“
Þegar strákarnir byrjuðu höfðu
þeir ekki hundsvit á því hvernig ætti
að skissa upp snið, hvað þá að sauma
upp úr þeim. Það voru ekki margir
sem höfðu trú á því að jakkafötin í
fyrstu línunni, sem þeir létu sauma
úr gardínuefni í Búlgaríu, ætti eftir
að koma þeim langt en með tíð og
tíma náðu þeir að vinna markaði og
gera enn.
„Þetta hefur gengið svakalega vel
undanfarin ár og heldur bara áfram
að vaxa og við erum mjög þakklátir
fyrir þessa velgengni. Í fyrra keypt-
um við fatakeðjuna Brandstad og
núna erum við með 40 verslanir í
Noregi ásamt flaggskipinu okkar
í hinni stóru borg englanna, Los
Angeles. Okkar aðalmarkaðir eru
Noregur, Skandinavía og Bandaríkin.
Núna eru um 350 starfsmenn hjá fyr-
irtækinu og veltan er í kringum 300
milljónir norskra króna.“
Fjölskyldumyndir af ömmu og afa
Fjölskylda drengjanna hefur ekki
síður verið mikilvæg í þessu ferli eins
og hefðirnar og þjóðernisrómantíkin.
Þannig er amma Simen, mest nýtta
Peder, Simen og Stefan hoppa ofan af einum bleikum traktor fyrirtækisins en hann er einn af 26 sem þeir eiga, stilla út og nota til markaðssetningar í Stryn, heimabæ þeirra Peder og Simen. Þó
eru ekki allir traktorar fyrirtækisins bleikir, hér eru þeir á einum ljósbláum fyrir utan verslun þeirra í Los Angeles.
Þegar félagarnir opnuðu verslun í New York leigðu þeir þrjár kindur af sveitabæ og vakti það verðskuldaða athygli
í tískuháborginni.