Bændablaðið - 23.03.2017, Side 35

Bændablaðið - 23.03.2017, Side 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 módel fyrirtækisins og vöfflurnar hennar oft og tíðum komið sterkar inn við þróun fyrirtækisins. „Okkur þykir mjög vænt um landið okkar og heimabæ okkar, Stryn, sem hefur leikið stórt hlutverk við uppbyggingu og þróun á Moods. Allir merkimiðar eru til dæmis gaml- ar fjölskyldumyndir af ömmu minni og afa og búðirnar okkar eru blanda af gömlum norskum sumarbústöð- um og alþjóðlegum tískuverslunum. Vörurnar fá heiti eftir fólki frá Stryn og við hyllum Noreg í gegnum þemu í fatalínunum okkar,“ segir Simen og bætir við: „Við höfum trú á að það gangi að blanda gamalli þjóðernisróman- tík með nýjum áhrifum og að pakka því inn saman á nýjan hátt. Þannig fáum við fína og einstaka blöndu. Núna erum við með verslanir um allan Noreg og það er mjög mikil- vægt fyrir okkur að geta sagt norskar sögur frá norðri og til suðurs í okkar frábæra heimalandi.“ Gott samstarf við bændur Bændamenningin spilar einnig mikilvægt hlutverk hjá Moods og hafa drengirnir notað tákn úr heimi bænda óspart í vörum sínum eins og heygaffla, hlöður, kartöflur, korn, kýr, kindur og fleira. Þeirra aðals- merki er þó bleiki traktorinn sem er orðið helsta tákn vörumerkisins. „Traktorinn var eitt af því fyrsta sem við teiknuðum á blað og þegar við seldum boli með honum mjög vel ákváðum við að gera hann að aðalmerkinu okkar. Það eru þrjár ástæður fyrir því og fyrsta er sú að traktorinn hefur á margan hátt verið með í að byggja upp landið, í öðru lagi er hann vinnuhestur og í þriðja lagi er einhver nostalgía yfir honum og hann umbylti auð- vitað landbúnaði á þeim tíma sem hann kom fram. Síðan er líka svo- lítið fyndið þegar maður hugsar um tísku að þá kemur París, Mílanó og New York upp í hugann og því fannst okkur miklu skemmtilegra að hafa merki sem táknaði sveitina. Okkur finnst líka sérstaklega gaman að spila með andstæður, því þegar við málum hann bleikan eða til dæmis gulllit- aðan þá er þetta tákn sem enginn hefur séð áður. Einfaldlega glaði traktorinn mættur á svæðið!“ segir Simen og hlær við en það er skemmtilegt frá því að segja að frá stofnun fyrirtækisins hafa drengirnir alltaf átt gott samstarf við norsku Bændasamtökin: „Norsku Bændasamtökin voru okkar fyrsti samstarfsaðili á tískusýningum, sem við erum mjög þakklátir fyrir. Við höfum einnig tekið mikið af myndum á sveitabæj- um út um allt í Noregi til að kynna vörurnar okkar svo okkur finnst frá- bært og gott að eiga samstarf við bændur!“ /ehg Strákarnir í Moods of Norway hafa frá upphafi átt í góðu samstar við norsku Bændasam- tökin en kúaplakatið fengu þeir einmitt hjá samtökunum og settu saman fyrir kynningarupp- ákomu á fatnaði þeirra. Sýnishorn af þeim fjölmörgu smávörum sem strákarnir hafa hannað og sett í sölu þar sem traktorinn er aðalmerkið og söluvaran. FR U M - w w w .f ru m .is Getum við orðið að liði? – Við seljum m.a. Hótel-lín í mörgum gæðaflokkum, handklæði, baðmottur, sængur, kodda, sloppa, borðdúka og munnþurrkur. Viskastykki, microklúta, netpoka, gufustraujárn o.fl. Þvottavélar, þurrkara, strauvélar, pressuvélar, gufukatla, gufupressur, ýmis frágangstæki fyrir tau, fatnað og lín, rykmottur, tauvagna, -grindur, -poka, ýmsar rekstravörur og merkingakerfi. Frábærar vélar fyrir m.a. þvottahús, hótel og gistiheimili. McCormick X5.50, 113 hö, ný vél með tækjum og skóflu. Mjög vel útbúin. Verð kr. 7.400.000 + vsk. McCormick C-Max, 105 hö, árg. 2007, notkun 2500 tímar. Mikið yfirfarin, góð dekk, ámoksturstæki og skófla. Verð kr. 3.100.000 + vsk. Sturlaugur Jónsson & Co. Sími 412-3000 Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.