Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 47

Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 SOS – Útflutningsskyldu strax Félagar í Landssamtökum sauð- fjárbænda, hvað ætlið þið að gera á komandi LS-þingi? Ætlið þið að hrósa stjórninni fyrir framsýnina? Hún lofaði ykkur 7,5% hækkun á afurðaverði til ársins 2019. Nú stendur verð fyrir sauðfjárafurðir hvergi nærri undir framleiðslu- kostnaði eða rekstri afurðastöðva og framundan er ekkert nema lækkanir. Ætlið þið að storma á LS-þing til að tileinka ykkur sjálfssefjunar- tækni framkvæmdastjórans, Svavars Halldórssonar? Eða ætlið þið að þakka honum fyrir að slá ryki í augun á ykkur og að gera lítið úr erfiðleikum ykkar? Forsendur búvörusamningsins voru brostnar áður en hann tók gildi. Hann virkar ekki og kemur aldrei til með að virka, alveg sama hvað verður reynt. Hins vegar má koma á útflutningsskyldu fyrir haustið. Sú aðgerð mun ekki trufla markaðs- starf innanlands eða í útlöndum. Sú aðgerð kemur í veg fyrir að stuðn- ingur til framleiðslu á kindakjöti fari burt úr landinu. Sú aðgerð gerir bændum mögulegt að hagræða með því að fækka fénu og draga úr fram- leiðslu. Sú aðgerð getur hugsanlega bjargað afurðastöðvunum fyrir horn, svo að einhvers staðar verði hægt að leggja inn í náinni framtíð. Hún kemur ekki í veg fyrir að við töpum, en hún mun ef til vill bjarga því að við stöndum ekki öll uppi án eigna og atvinnu. Þegar útflutningsskyldan var tekin af okkur, háttaði svo heppilega til að bankarnir hrundu og gengið féll stórlega. Munið þið eftir því? Þess vegna kom höggið af afnámi útflutningsskyldunnar ekki á okkur undir eins. En við erum að súpa seyðið af því núna. Og menn þykjast ekki skilja þetta samhengi. Það þarf reyndar að gera fleira, sem kostar vinnu, útreikninga og nýja samninga. Og þetta þarf að gera strax. Ég skora á alla fulltrúa á LS-þingi að hugsa þetta mál. Ég skora á alla fulltrúa á Alþingi að koma lands- byggðinni til bjargar og breyta því sem breyta þarf til að við getum gert nýjan sauðfjársamning. Hann þarf að vera í einhverju sambandi við raun- veruleikann. Ég skora á landbún- aðarráðherra og landbúnaðarráðu- neytið að grípa strax til ráðstafana til að afstýra því stórslysi sem sauð- fjárræktin er komin í. Ég og mitt fólk höfum verið fjár- bændur frá fimm ára aldri og höfum ekki hugsað okkur að hætta því. Þeir sem halda því fram að við getum lifað árum saman af trúnni á þá og þeirra verk, meðan þeir hinir sömu leika fjárhættuspil með líf okkar og afkomu, ættu að endurskoða breytni sína og siðferðisviðmið. Sigríður Jónsdóttir, Arnarholti. Sigríður Jónsdóttir. Um ull og fleira Í 21. tölublaði 2016 eru margar blaðsíður helgaðar ull og úrvinnslu hennar. Mest af þessu efni er gott, en ég finn mig samt knúinn til að hripa niður hugleiðingar mínar um þessi mál. Ég byrja á að gleðjast yfir því að hvergi er þar hnjóðað í tvílitt fé sem lengi hefur verið siður. Það er reyndar hreinlega alls ekki minnst á það. Ég segi nú bara eins og máltæk- ið gamla. Guð láti gott á vita. Þetta vekur veika von um að Ístexmenn séu að byrja að átta sig á því að þetta er ágætis ull þótt hún sé ekki einlit. Ég hef sterkan grun um að einlita ullin sé lituð og hafi lengi verið, en það er nú svo með litunina að hún vill hafa mörg blæbrigði og í sjálfu sér er það hið besta mál. Það eykur bara fjölbreytnina. Spyrjið þið prjónakon- urnar. Ég heyri þær fullyrða að ekki þýði að kaupa viðbót í peysuna ef lopinn klárast, því þótt hann heiti vera úr sömu lotu, þá sjáist alltaf munur þegar í flíkina er komið. Því þá ekki að auka fjölbreytnina enn? Íslenskar prjónavörur eru sífellt að verða vinsælli. Við verðum líka að varðveita litafjölbreytnina í sauðfénu okkar, eins og í kúm og hrossum. Þessi litafjölbreytni í íslenska búfénu er meira virði en fáeinar krónur. Mig grunar að þessi andúð á tvílitu séu gamlar leifar af hvítum draumum sem uppi voru um miðja síðustu öld, þegar verið var að stofna fjárræktar- félögin. Þá mátti engin kind vera í fjárræktarfélagi nema hún væri hvít. (en hún mátti þó vera kargul.) Það má skilja klausuna um ullar- verðið þannig að öll ull hækki í verði nema flokkurinn H2. Vitund neðar á blaðsíðunni er tafla sem sýnir verð í hverjum flokki. Þar kemur fram að flokkurinn M2 er langlægstur. Ef öll tvílita ullin er sett í hann sem mér var einhvern tímann sagt að væri er ekki að furða að hann sé stór. Tvílita fénu mun fjölga Ég er þess fullvss að tvílita fénu mun fjölga, hvað sem ykkar gam- aldags skoðunum líður. Því hluti af ánæjunni af sauðfénu er fólginn í því að eiga sem fjölbreyttasta liti í stofninum. Það væri stórslys ef þessu yrði útrýmt. Ég er nú reyndar ekki hræddur um það, því alllengi hafa bæði dökkleitir og tvílitir hrútar verið á sæðingarstöðvunum. Minn ágæti vinur, Ari Teitsson, skrifar þarna pistil. Hann hefur þar áhyggjur af snoðkleprum í ullinni. Þetta kemur mér á óvart, því ég hélt að eftir að bændur fóru að rýja haustrúning þá tækju þeir svo snoðið aftur á vorin. Það þýðir ekki að taka það of snemma þá fá þeir bara nýtt snoð aftur. En að láta ærnar ganga í snoðinu allt sumarið er lítið betri meðferð heldur en að hafa þær í alull, því snoðið verður fljótt eins og gamla reyfið, ófært um að hrinda frá sér vatni. Annars hef ég reyndar oft sagt og get haldið því áfram, að ég hef ekki rúið fé ullarinnar vegna heldur vegna kindarinnar því það er ill meðferð að láta þær vera í ullinni inni í hlýjum húsum. Og það er líka ill meðferð að hafa þær í þófinni ull á sumrin hvort sem það er heilt reyfi eða snoð, því hvort tveggja skemmir möguleika ullarinnar til að hrinda frá sér bleytu eða hita, eins og hún er svo meistaralega sköpuð til. Hins vegar finnst mér ágætt að það sé einhver sem vill nýta þetta góða efni sem ullin er, og því látum við hana í poka og sendum til Ístex. Ekki stærri poka en 30 kg Nú kom það fram, ég held í fyrsta sinn, að æskilegt sé að pokarnir séu ekki meira en 30 kg. Máltæki er til sem segir; „batnandi manni er best að lifa“. Hér á það vel við, því þessir stóru pokar eru á allan hátt til leiðinda. Ég læt ullina í litla poka. Notaðir pokar undan heimtökukjöti henta prýðilega, þeir verða ekki mikið yfir 10 kg og eru það litlir að öll meðferð þeirra er verulega auðveldari en á stóru sekkjunum. Þá er það flokkunin. Nútíma rún- ingur sauðfjár er að langmestu leyti framkvæmdur af atvinnumönnum sem eru eldfljótir að rýja. Ef á að flokka reyfið beint af kindinni þá þarf að vera fjöldi aðstoðarmanna á skákinni, til að draga í sundur reyfið og koma því af vettvangi. Líka þarf mannskap í að færa rúningsmannin- um kindina og leggja hana. Það getur orðið erfitt að ná saman vinnuflokki í þetta, ef hvergi má neitt skjöplast. Óvíða eru margir verkamenn til- tækir á sauðfjárbúum. Við nennum ekki að vesenast neitt með ullina, setjum hvern lit sér í poka, merkjum H2 á það hvíta, nema lambaullina merkjum við sem slíka. Ég hef alltaf haft lítinn áhuga á peningum, og mun senda ykkur ullina, hvað mikið sem þið lækkið verðið. En þó er ég að hvetja til þess að farið sé að hugsa meira um gæði ullarinnar burt séð frá lit hennar! Og víst getur munað um fáeinar krónur þótt maður dýrki þær ekki. Hér á mínu svæði eru flestir sauðfjárbændur reyndar með stóran hluta af sínum tekjum af öðru en sauðfénu, en eiga kindur aðallega sér til ánægju. Maðurinn fremur en aðrar skepn- ur getur ekki lifað á einu saman brauði, þótt hann hafi æfinlega verið allra kvikinda gráðugastur. Svo þykist hann vera með eitthvað fram yfir aðrar dýrategundir. Ég er hræddur um að það sé bara græðgin og grimmdin sem hann er fremstur í. Þá er ég nú kominn út úr ullinni, enda ætlaði ég líka að agnúast út í einar tvær klausur á þessum ullarsíð- um, báðar sagðar teknar af erlendri netsíðu. Þar á að heita að verið sé að hæla kindinni fyrir greind. Sagt er að þær geti borið kennsl á andlit allt að 50 kinda! Í mínum huga er þetta ósköp bjánalegt hól, sem lýsir fyrst og fremst vanþekkingu þess sem lætur þetta frá sér fara. Ég hef umgengist sauðfé hátt í þrjá aldar- fjórðunga og bjó sjálfur lengi með kringum 300 fjár. Ég fullyrði að þær þekktu allar hver aðra, og þar að auki annað fé úr nágrenninu sem þær kynntust. Auk þess þekkja þær það mannfólk sem þær umgangast, og gera sér verulegan mannamun. Þessi þekking þeirra er ekki nema að hluta til gegnum sjónina, því þær hafa bæði góða heyrn og afbragðs þefskyn. Svo er hitt atriðið sem ég ætla að finna að. Þar er talað um kindur og lömb. Ég stend í þeirri meiningu að lömb séu líka kindur, alveg eins og börn eru líka fólk. Þetta er eitthvað nýtt, komið af því að búið virðist að týna ánni. Mín mál- kunnátta segir um kindina. Hrútur, ær og lamb, í sömu röð og um fólk er sagt. Karl, kona og barn, eða svo maður haldi áfram með fleiri tegund- ir. Hani, hæna og ungi, og lengi mætti áfram telja, en mál er að linni. Davíð Herbertsson. Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla New Holland - Fiat - Ford - Case - Steyr - Zetor - Fendt Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir. BAJA STZ JEPPADEKK Icetrack ehf. · Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is Hljóðlátt heilsársdekk, með ótrúlega endingu Sérhannað mynstur tryggir betra grip við allar aðstæður Vörunr. Stærð Listaverð Afsl. Afsl. verð 1485 MT 245/70R17 STZ 42.690 50% 21.345 50731 MT 265/70R17 (32”) STZ 40.390 30% 28.273 50760 MT LT285/70R17 (33”) STZ 51.990 30% 36.393 50780 MT LT315/70R17 (35”) STZ 54.490 30% 38.143 50831 MT LT265/60R18 STZ 43.190 30% 30.233 50840 MT LT275/70R18 STZ 54.490 30% 38.143

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.