Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Á FAGLEGUM NÓTUM
Val á nautum vegna innflutnings á fóstur-
vísum úr Angus-holdagripum frá Noregi
Á Stóra-Ármóti í Flóa eru
fram kvæmdir við byggingu
einangrunarstöðvar fyrir holda-
nautgripi í fullum gangi.
Stöðin er í eigu Nautgriparæktar-
miðstöðvar Íslands ehf. (NautÍs), sem
aftur er í jafnri eigu Landssambands
kúabænda, Bændasamtaka Íslands
og Búnaðarsambands Suðurlands.
Í stjórn NautÍs sitja þeir Sigurður
Loftsson sem fulltrúi LK,
Sveinbjörn Eyjólfsson, fulltrúi BÍ
og Gunnar Kr. Eiríksson sem full-
trúi BSSL. Sigurður er formaður
stjórnar. Framkvæmdastjóri félags-
ins er Sveinn Sigurmundsson, sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
Búnaðarsambands Suðurlands.
Þorsteinn Ólafsson er dýralækn-
ir stöðvarinnar og Baldur Indriði
Sveinsson er starfsmaður henn-
ar. Undirritaður, Baldur Helgi
Benjamínsson, búfjárerfðafræðingur
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
LK, hefur verið félaginu til ráðu-
neytis undanfarna mánuði.
Í nýjum búvörusamningi var
samið um sérstakt 100 m.kr.
framlag til uppbyggingar á stöðinni.
Einnig er gert ráð fyrir að hluta
af stuðningi búvörusamningsins
við nautakjötsframleiðslu verði
ráðstafað til að reka stöðina á
komandi árum.
Gífurlegar sóttvarnarkröfur
Samkvæmt reglugerð um innflutning
erfðaefnis holdanauta og kröfur
um útbúnað einangrunarstöðva nr.
850/2015, með síðari breytingum
er einungis heimilt að flytja inn
erfðaefni frá Noregi. Sú skipan
byggist alfarið á þeirri staðreynd, að
heilsufar nautgripa í Noregi er með
því besta sem þekkist í heiminum.
Sýklalyfjanotkun í landbúnaði
er til að mynda hvergi minni
en þar. Jafnframt var gefið út
heilbrigðisvottorð vegna þessa
innflutnings í nóvember sl.
sem samþykkt hefur verið af
matvælastofnunum Íslands og
Noregs.
Í vottorðinu eru tekin fram
margvísleg skilyrði sem foreldrar
fósturvísanna þurfa að uppfylla; að
þeir séu fæddir í Noregi og hafi þar
alið allan sinn aldur.
Að engir þeir sjúkdómar sem
tilgreindir eru í 2. og 3. gr. íslenskrar
reglugerðar nr. 52/2014 um
tilkynningar- og skráningarskylda
dýrasjúkdóma (alls 34 sjúkd.) hafi
greinst á viðkomandi búi fyrir og
eftir töku fósturvísanna.
Að þeir sem taka og meðhöndla
fósturvísana uppfylli skilyrði norskra
stjórnvalda þar um og að kvígurnar
sem fósturvísar verði teknir úr
séu heilsuhraustar, hafi ekki verið
bólusettar fyrir neinum sjúkdómi á
undanförnum 12 mánuðum.
Að þær hafi verið prófaðar
vegna eftirtalinna sjúkdóma,
með neikvæðum niðurstöðum:
Q-hitasótt, E. coli O157:H7,
smitandi slímhúðarpest, gulusótt,
garnaveiki, nautgripaberklum og
fósturláti í kúm.
Enginn af þessum sjúkdómum
finnst í Noregi, fyrir utan garnaveiki
sem greindist á einu nautgripabúi
árið 2015.
Líða þurfa minnst 60 dagar frá því
að fósturvísarnir eru teknir, þangað
til þeir eru settir upp í fósturmæður.
Eftir að fósturvísarnir hafa verið
settir upp í kýr í einangrunarstöðinni
á Stóra-Ármóti, er gerð krafa um að
fósturmæðurnar verði prófaðar m.t.t.
framangreindra sjúkdóma, og fleiri.
Þá verða tekin sýni úr kálfunum
eftir að þeir koma í heiminn og
þau skimuð fyrir margvíslegum
sjúkdómum.
Sóttvarnarkröfur vegna þessa
innflutnings eru því gífurlega miklar
og eiga sér líklega fáar hliðstæður í
veröld víðri, enda er markmiðið að
varðveita einstaka sjúkdómastöðu
íslenskra nautgripa.
Ræktunarstarf holdanautgripa
í Noregi
TYR (www.tyr.no) er ræktunar- og
hagsmunafélag holdanautabænda
í Noregi og ber ábyrgð á kynbóta-
starfi holdanautgripa þar í landi.
Félagsmenn eru um 1.600 talsins.
Í Noregi er stundað ræktunarstarf
(svipfarsmælingar og skýrsluhald,
ættbók, innflutningur erfðaefnis og
útreikningur kynbótagilda) á kynj-
unum Aberdeen Angus, Charolais,
Hereford, Limousin og Simmental.
Þá annast félagið innflutning á
erfðaefni úr nokkrum öðrum holda-
kynjum.
Félagið gefur út nautaskrá í
desember ár hvert þar sem nauta-
kosturinn er kynntur fyrir félags-
mönnum.
Sæðingum með holdanautasæði
hefur farið mjög fjölgandi í Noregi
undanfarin ár. Aukningin milli
áranna 2015 og 2016 var 24%; fóru
úr 20.602 í 25.597.
Ef litið er sérstaklega til Angus,
þá fjölgaði sæðingum með slíkum
gripum úr rúmlega 2.100 í rúm-
lega 2.500 milli áranna 2015 og
2016. Langmest af kálfum koma
þó til með náttúrulegri pörun.
Heildarfjöldi holdakúa var 76.180
þann 1. janúar 2016. Hafði þeim
fjölgað um ríflega 20.000 á tíu
árum.
300 kg fallþungi á 18 mánuðum!
Árið 2016 komu 1.751 hreinrækt-
uð ungnaut af Angus til slátrunar
í Noregi, skv. tölum frá Animalia.
Um 60% gripanna flokkuðust í R+,
R og R-, meðal fallþungi var 292 kg
og að jafnaði voru þeir 17,8 mánaða
gamlir við slátrun.
Til samanburðar er fallþungi
ungnauta hér á landi um 230-240
kg að meðaltali, við 24-25 mánaða
sláturaldur.
Nánar má sjá dreifingu flokk-
unarinnar á myndinni og töflunni
hér til hliðar; bestu föllin fara í U
flokk en þau lökustu í P+.
Myndin af R skrokknum er úr
kynningarbæklingi MAST vegna
innleiðingar á EUROP kjötmati,
sem er á döfinni. /BHB
Aldur v. Slátrun,
Flokkur Fjöldi Hlutfall Fallþ., kg mánuðir
U
U-
R+
R
R-
O+
O
O-
P+
LESENDABÁS
Opið bréf til stjórnar LK – veltutengt félagsgjald
Veltutengt félagsgjald, hvað er
það? Í mínum huga er eitthvað
sem er veltutengt skattur. Við
erum búin að vera að borga bún-
aðargjald í fjöldamörg ár, veltu-
tengt gjald til að reka landbún-
aðarbatteríið. Kúabændur hafa
í gegnum tíðina borið hitann og
þungann af því, og nú loks er
það farið en þá kemur veltutengt
félagsgjald.
Við erum því að borga skatt til
að fá að vera með í félaginu. Hverja
viljum við fá í félagið? Helst alla
en ef það er ekki hægt, hvort viljum
við þá hafa þá sem ætla að stunda
búskap til framtíðar eða þá sem eru
á leið út úr greininni á allra næstu
árum? Helstu rökin fyrir veltutengdu
félagsgjaldi sem ég hef heyrt eru tvö:
það þarf að verja hagsmuni okkar,
það gerir enginn fyrir okkur, já lík-
lega er það rétt og að stærri bú með
meiri rekstur hafi meiri hagsmuni að
gæta ... get ekki séð það, hvort sem
við erum lítil eða stór, þá er þetta
lífsviðurværi okkar og við eigum allt
undir, hvort sem við erum lítil eða
stór, ef við ætlum á annað borð að
halda áfram í þessum rekstri.
Í félögum, þar sem fólk borgar
misháar upphæðir, fær það mismik-
inn rétt, mismikinn atkvæðisrétt,
ræður því mismiklu, viljum við hafa
það svo, nei ég held ekki en ...
Hvað er þá sanngjarnt við það
að sumir borgi 1.000 kr. og aðrir
350.000 kr.? Það er verið að borga
fyrir sama hlutinn, sá sem borgar
meira eða mest fær ekkert meira en
sá sem borgar minnst.
Jón bóndi, sem á tvær holdakýr
sér til ánægju og leggur inn 2 gripi á
ári, getur gerst félagi í LK og ræður
jafn miklu um framgang og stefnu
félagsins og Gunnar bóndi sem fram-
leiðir 1 milljón lítra mjólkur og legg-
ur inn 100 gripi á ári. Ef að bóndinn
sem á þessar tvær holdakýr labb-
ar inn í Jötunn vélar á Selfossi og
vill kaupa Massa Ferguson þá segir
Finnbogi ekki við hann: Heyrðu,
þú leggur bara inn tvo gripi á ári,
þú færð Massann á 1 milljón, hann
Gunnar sem framleiðir milljón
lítrana og leggur inn 100 gripi, hann
borgar bara mismuninn, læt hann
borga 30 millur þegar hann kemur að
kaupa Masssann. Það er verst fyrir
Finnboga ef Gunnar kemur aldrei
til að kaupa Massann, þá fer hann
líklega á hausinn. Nei, allir þurfa að
borga alveg sama verð fyrir Massa
Ferguson, hvort sem þeir eru litlir
eða stórir, ef þeir vilja fá vélina.
Þannig á það líka að vera í félags-
aðildinni, þeir sem vilja vera með
borga sama gjald, það mun kosta
ef við viljum halda þessu félagi
áfram. En það þarf líka að endur-
skoða rekstur félagsins og einnig
félagskerfið í heild, hvað geta þess-
ir fáu bændur á Íslandi haldið uppi
mörgum félögum og hvað þurfum
við mörg félög til að verja hagsmuni
okkar? Það er stóra málið, verja
hagsmuni okkar, það gerir enginn
fyrir okkur, en þurfum við mörg
félagasamtök til þess?
Ef margir bændur eru farnir að
borga stórar fjárhæðir inn í félagið,
þá vilja þeir fá eitthvað fyrir sinn
snúð, og það verður jafnvel hagur
félagsins að stóru bændurnir séu
með, því það eru hærri fjárhæð-
ir sem fylgja þeim. Hvers eiga þá
minni bændurnir að gjalda, verður
eitthvað hugsað um þá? Hver mun
tala rödd þeirra? Þess vegna eiga allir
að borga það sama, vera jafn réttháir
og félagið er rödd allra bænda, jafnt
stórra sem smárra.
Á undanförnu ári þurfti að sam-
eina bændur eftir hamfarir í kringum
gerð búvörusamninga, þetta var eitt
stóra verkefni stjórnarinnar. Rétti
uppstillinganefnd síðasta aðalfund-
ar formanninum spil í hendur með
stjórnarmönnum úr sem flestum
áttum svo allir gætu fundið sinn tals-
mann. Að mínu mati hefur stjórninni
ekki tekist það nægjanlega vel sem
kemur best í ljós í þátttöku í félags-
aðild LK, þar sem sumum finnst þeir
engan veginn eiga neina samleið.
Þeir sem gefa sig í stjórnarstörf
þurfa á hverjum tíma að vinna fyrir
hagsmuni heildarinnar og greinar-
innar til framtíðar. Einnig er stjórn-
armönnum skylt að koma eins fram
við alla, hvort sem fólk er á sömu
skoðun eða einhverri annarri.
Nú hverf ég af þessum vettvangi
þar sem ég er ekki lengur félagi í
LK og þykir mér það miður, en mína
rödd í þessu máli hefur ekki verið
svo glatt hlustað á, hef ég þó boðið
formanni og framkvæmdastjóra
í heimsókn til að ræða þessi mál.
Óska ég ykkur öllum velfarnaðar í
starfi og félaginu og félagsmönnum
öllum heilla.
Vil ég þakka stjórninni fyrir sam-
starfið og öllum aðalfundarfulltúum
sem ég hef kynnst og starfað með í
gegnum tíðina fyrir góð kynni.
Með kveðju,
Bóel Anna Þórisdóttir
1. varamaður í stjórn LK
Bóel Anna Þórisdóttir.