Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Angus-kynið er það sem kallað er
„ekstensiv rase“; harðgerðir gripir
sem henta vel þar sem búskapur-
inn byggir á nýtingu beitar og
gróffóðurs.
Slík nýting er eitt af ræktunar-
markmiðunum, auk þess er lögð
áhersla á góða móðureiginleika
(mjólkurlagni og léttan burð) og
mikil kjötgæði; meyrt og fitusprengt
kjöt.
Þessi markmið koma fram í
áherslum í heildareinkunn sem gefin
er út fyrir nautin.
Áherslurnar eru reiknaðar út frá
efnahagslegu virði hvers eiginleika
fyrir sig, jafnframt sem tekið er
tillit til neikvæðs erfðasamhengis
framleiðslueiginleikanna og
móðureiginleika.
Meðaltal kynsins er sett á 100,
einkunn þar ofan við segir til að
gripurinn er yfir stofnmeðaltali,
einkunn þar fyrir neðan segir að
gripur sé undir stofnmeðaltali.
Heildareinkunn skiptist í þrennt:
• Einkunn fyrir burðareiginleika,
þ.e. gangur burðar hjá kvígum
og kúm; lífsþróttur kálfsins
og þungi hans við burð.
Vægi burðareiginleika í
heildareinkunn er 25%
• Einkunn fyrir framleiðslu-
eiginleika, þ.e. þungi við
200 og 365 daga aldur,
fallþungi og flokkun fyrir
holdfyllingu og fituhulu.
Vægi framleiðslueiginleika í
heildareinkunn er 50%.
• Einkunn fyrir móðureiginleika,
þ.e. gangur burðar hjá kúnum;
eiginleiki kúnna til að bera
lifandi kálfi og mjólkurlagni
þeirra (þungi kálfs v. 200 daga
aldur). Vægi móðureiginleika í
heildareinkunn er 25%.
40 fósturvísar úr 10 kvígum
Í þeim hugmyndum sem hafa verið
ræddar varðandi innflutning á
fósturvísum frá Noregi, hefur verið
gert ráð fyrir að í upphafi verði fluttir
inn 40 fósturvísar.
Gert er ráð fyrir að kúafjöldinn
í einangrunarstöð Naut gripa-
ræktarmiðstöðvar Íslands á Stóra-
Ármóti verði á bilinu 16-20 talsins.
Reikna má með að um tvo fósturvísa
þurfi að jafnaði fyrir hvern kálf
sem kemur í heiminn, þar sem um
helmingur fósturvísanna misfarist.
Gert er ráð fyrir að fósturvísarnir verði
teknir í apríl n.k. og verði komið fyrir
í fósturmæðrunum í einangrunar-
stöðinni næsta sumar, eftir því sem
byggingarframkvæmdum vindur
fram.
Tillaga NautÍs um nautaval
Í Nautaskrá TYR fyrir árið 2017
stendur bændum til boða sæði úr sex
Angus nautum, þar til viðbótar geta
þeir sérpantað sæði úr öðrum sex.
Til að fá 40 fósturvísa, er gert ráð
fyrir að skola þurfi 10 kvígur, þar
sem hver þeirra gefi um 3-6 nothæfa
fósturvísa.
Öll nautin hafa farið í gegnum
svipfarsmælingar í prófunarstöð
félagsins á Staur í Guðbrandsdalnum.
Á þeim 147 dögum sem nautin eru á
stöðinni er m.a. mældur vaxtarhraði,
gróf- og kjarnfóðurát, fóðurnýting,
þykkt bakvöðva og fituhula, útlit
metið og skapferli athugað.
Sérfræðingar TYR velja
kvígurnar en NautÍs leggur línurnar
í nautavalinu og hefur stjórn
stöðvarinnar gert tillögu til fagráðs
í nautgriparækt að vali á eftirtöldum
nautum. Fagráð samþykkti tillöguna
á fundi sínum þann 21. febrúar sl.
Með vali á þessum nautum er
tekið tillit til flestra eiginleika í
ræktunarstarfi holdanautgripa,
auk þess sem ætterni er mjög
fjölbreytt. Með innflutningi
á fósturvísum undan þessum
gripum er stigið langþráð skref í
uppbyggingu á öflugu ræktunarstarfi
holdanautgripa; bændur munu
njóta þeirra miklu framfara sem
orðið hafa í ræktun þessara gripa
undanfarinn aldarfjórðung. Það
mun skjóta styrkari stoðum undir
nautakjötsframleiðsluna hér á landi,
sem hefur það að markmiði að breyta
íslenskum jarðargróða í ljúffeng
matvæli. /BHB
Angus – beitargripir með léttan burð og rómuð kjötgæði
NOR 74029 Horgen Erie, f. 2. apríl 2009 hjá Gudbrand
Johannes Qvale, Auli í Romerike.
Sterkustu hliðar hans eru
móðureiginleikar og þykja dætur
hans sérlega mjólkurlagnar, einnig
er hann jákvæður í fallþunga og
holdfyllingu. Hann er arfblendinn
fyrir rauðu, undan honum geta því
komið rauðir kálfar.
Faðir er NOR 55754 Horgen
Bror, frá Noregi og móðurfaðir
er GBR UK560308 Wedderlie
Netmark A281, frá Bretlandi.
Heildareinkunn 114
Burðareiginleikar 99
Burður hjá kvígum 94
Burður hjá kúm 113
Þungi kálfa við burð 106
Framleiðslueiginleikar 107
Þungi kálfa við 200 daga aldur
(fráfærur) 89
Þungi kálfa
við 365 daga aldur 98
Fallþungi 111
Holdfylling 125
Fita 92
Mæðraeiginleikar 145
Gangur burðar hjá dætrum 108
Mjólkurlagni dætra 133
NOR 74029 Horgen Erie er
yfirburða gripur varðandi
móðureiginleika og verði því
notaður á þrjár kvígur.
NOR 74039 Li‘s Great Tigre, f. 3. janúar 2011 hjá Steinar
Schanke, Marifjøra í Sogndal.
Hann er alhliða kynbótanaut
með 122 í heildareinkunn, gefur
tæplega meðalstóra kálfa sem
bæði kvígur og kýr eiga létt með að
bera, móðureiginleikar eru góðir,
sem og framleiðslueiginleikar.
Faðir er CAN 1469322 HF
EL Tigre 28U, frá Kanada og
móðurfaðir er NOR 74017 Betong
av Dagrød, frá Noregi.
Heildareinkunn 122
Burðareiginleikar 124
Burður hjá kvígum 116
Burður hjá kúm 139
Þungi kálfa við burð 97
Framleiðslueiginleikar 111
Þungi kálfa við 200 daga aldur
(fráfærur) 100
Þungi kálfa
við 365 daga aldur 103
Fallþungi 109
Holdfylling 121
Fita 131
Mæðraeiginleikar 111
Gangur burðar hjá dætrum 100
Mjólkurlagni dætra 107
NOR 74039 Li‘s Great Tigre er
besta alhliða nautið sem í boði
er og verði því notaður á fjórar
kvígur.
NOR 74033 First-Boyd fra Li, f. 15. janúar 2010 hjá
Steinar Schanke, Marifjøra í
Sogndal. Gefur létta burði, bæði
hjá kvígum og kúm og er einnig
sterkur í vaxtargetu og flokkun,
með mikla átgetu. Veika hlið hans
eru móðureiginleikar, gangur
burðar dætranna og mjólkurlagni
þeirra.
Faðir er USA 15347911
BOYD NEXT DAY 6010, frá
Bandaríkjunum og móðurfaðir er
NOR 55344 Kronborg Apollo, frá
Noregi.
Heildareinkunn 118
Burðareiginleikar 108
Burður hjá kvígum 105
Burður hjá kúm 112
Þungi kálfa við burð 102
Framleiðslueiginleikar 119
Þungi kálfa við 200 daga aldur
(fráfærur) 114
Þungi kálfa
við 365 daga aldur 112
Fallþungi 120
Holdfylling 112
Fita 103
Mæðraeiginleikar 90
Gangur burðar hjá dætrum 92
Mjólkurlagni dætra 91
NOR 74033 First-Boyd fra Li er
sterkur í framleiðslueiginleikum
og verði því notaður á tvær
kvígur.
NOR 74068 Kid av Vølstad, f. 13. mars
2015 hjá Onar Lima, Vølstad
í Rogaland. Hann er óreyndur
og kynbótaeinkunnir hans
því með lágt öryggi enn
sem komið er. Kom vel
út úr svipfarsmælingum
va rðand i vax ta rh raða ,
átgetu og byggingu. Þá er
fitusprenging í vöðvum mikil.
Væntingar eru um að hann
komi vel út í vaxtargetu og
burðareiginleikum.
Faðir er AUS VLYG1730
LAWSONS GENERAL G1730,
frá Ástralíu og móðurfaðir er
USA 13084963 J W K SLEEPY
BOY 8134, frá Bandaríkjunum.
NOR 74068 Kid av Vølstad er
ekki með öruggt kynbótamat og
verði því aðeins notaður á eina
kvígu, til að auka fjölbreytni í
ætterni.
Stóra-Ármót. Nýja einangrunarstöðin fyrir holdanautgripina er nú að rísa á svæðinu hér nær þjóðveginum. Mynd / HKr.
Á FAGLEGUM NÓTUM