Bændablaðið - 23.03.2017, Side 50

Bændablaðið - 23.03.2017, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Dagana 27. og 28. febrúar sl. fór fram hið árlega Fagþing naut- griparæktarinnar í Herning í Danmörku, betur þekkt sem Kvægkongres, eins og greint var frá í síðasta Bændablaði. Alls voru haldnar 11 málstofur á þessu fagþingi og fer hér annar hluti umfjöllunar um fagþingið og gefinn sérstakur gaumur að málstofnun- um „Við skrifborðið“, „Í fjósinu“, „Utan úr heimi“, „Kjötkálfaeldi“ og „Kynbótastarf“. 1. Við skrifborðið Málstofan með þessu skemmtilega heiti snérist fyrst og fremst um bústjórn og hvernig kúabændur geta hlúð að rekstrinum t.d. með auknu skipulagi. Í málstofunni voru flutt átta erindi og voru sum þeirra e.t.v. held- ur dönsk, þ.e. einblíndu á danskar aðstæður og danskar lausnir svo ekki var mikið fyrir erlenda gesti að græða á þeim. Þó voru nokkur erindi einkar áhugaverð fyrir aðra en danska kúabændur og má þar t.d. nefna erindi Martin Hestbech frá SEGES og kúabóndans Niels Hedermann sem fjölluðu um það hvernig það er að vera með hjarð- ir á fleirum en einni bújörð. Þetta þekkist einnig hér á landi. Niels þessi rekur kúabúið Klovborg I/S sem hann á með konu sinni og föður. Þau eru með 1.150 Jersey kýr á fimm jörðum og hafa 920 hektara undir einnig. Þau mjólka Jersey kýrnar sínar á þremur stöðum, þar af með mjaltaþjónum á tveimur stöðum svo það er í mörg horn að líta en upp- bygging búsins hefur fyrst og fremst legið í því að kaupa upp nágrannabú. Helstu vandamálin sem hann glím- ir við er gríðarlega mikill akstur á milli staða en í viku hverri þarf að keyra 3-400 km með fóður, aðföng og annað slíkt á milli þessara búa sem þó standa mjög þétt. Þá nefndi hann kosti þess að vera með marga starfsmenn að það hefur þvingað þau hjónin til þess að vera mun agaðri við bústjórnina, nota nú stimpil- klukku og spá miklu meira en áður í vinnutímann – bæði sinn og annarra. Í málstofunni voru flutt önnur fín erindi m.a. varðandi mikilvægi skrif- legra samninga við fóðurfyrirtæki, hvernig tryggja eigi rétta lagerstöðu, að læra að meta rekstrartölur búsins betur og fleiri mætti nefna en tek hér stuttlega fyrir erindi ráðunautsins Carsten Friis og kúabóndans Claus Drøhse en þeir fjölluðu um hvernig hægt sé að hagnast þrátt fyrir þunga skuldastöðu. Carsten fór almennt yfir efnið og hvað væri til ráða en fyrst og fremst eiga þau bú það sam- eiginleg, sem eru skuldug en með góðan rekstur, að þar er mikið og gott skipulag, afurðasemi kúnna yfir meðallagi og fóðrunarkostnað- ur lágur. Keypti 2009 og skilar alltaf tekjuafgangi Claus er ungur kúabóndi, 33ja ára og rekur búið Alslev I/S og er með 360 kýr. Hann keypti búið árið 2009 og hefur eðlilega allverulega skuldir enda ekki búið lengi. Hann hefur þó getað rekið búið með tekjuafgangi öll árin, óháð sveiflum á afurða- stöðvaverði og það er eitthvað sem aðrir geta lært af honum. Hann sagði lykilinn felast í góðu skipulagi og því að hann gerir sér afar vel grein fyrir eigin veikleikum, sem hann bætir upp með því að vera með gott starfsfólk í kringum sig sem er sterkt á þeim sviðum sem hann er það ekki. Hann var með lífrænan rekstur fram til ársins 2015 en hætti því þá og taldi betra að standa utan þess kerfis og geta náð meiru út úr kúnum með hefðbundnum framleiðsluað- ferðum. Hann hefur nú náð að snar- lækka framleiðslukostnað mjólkur- innar hjá sér og árið 2016 var hann 2,32 danskar krónur á hvert framleitt kíló mjólkur eða um 36,3 íslenskra krónur og hefur þá verið tekið til- lit til alls kostnaðar s.s. afborgana, launa og þess háttar. En hvernig nær hann slíkum árangri? Það felst í nokkrum þáttum að hans sögn en m.a. góðu skipulagi sem skilar sér í lægri kostnaði við viðhald og lítið fer til spillis eins og t.d. fóður. Þá er sjúkdómatíðni afar lág á búinu, framleiðslukostnaður fóðursins lágur og meðalnyt kúnna há. Saman skilar þetta góðum rekstri og fínum launum til hans sjálfs, þrátt fyrir skuldir. 2. Í fjósinu Í þessari málstofu voru flutt 10 erindi og var áhersla lögð á samspil húsvistar, bústjórnar og heilbrigðis. Mörg erindi snéru að uppeldi kálfa og var erindi James K. Drackley, prófessors við háskólann í Illinois í Bandaríkjunum einkar áhugavert en hann fjallaði um tímabilið frá mjólkurfóðrun að fyrsta burði og hvernig megi hámarka eldi á kvíg- um. Lagði hann mikla áherslu á að hlúa vel á kvígunum þegar þær eru teknar af mjólk. Einnið að stærðar- flokka kvígurnar þannig að kvígur, sem eru áþekkar að stærð, séu alltaf saman og þær sem ekki passa inn í hópinn séu fluttar í hópa sem henta þeim hvað stærð varðar. Þegar þær eru teknar af mjólk þurfi að gefa þeim vel af þar til gerðum kálfafóðurblöndum svo þær haldi vaxtarhraðanum fyrstu mánuði lífsins. Hætta eigi að gefa mjólkina í áföngum og bæta upp með kálfa- fóðurblöndu þannig að umskiptin við fóðrunina verði sem minnst. Sé það gert þá séu líkurnar mestar á því að þær verði öflugar mjólkurkýr. Eitt af því sem hann hefur tekið eftir er að allt of oft fái kvígukálfar ekki nóg af hreinu og góðu vatni en að hans mati er vatn sem „fóður“ afar vanmetið. Þá hefur hann séð of oft skort á steinefna- og vítamíngjöf kvígukálfa, sem bitnar illa á vexti þeirra, sérstaklega þegar þær eru hafðar á beit á sumrin. Þessu þurfi allir bændur að huga sérstaklega vel að. Sandlegubásar æskilegastir og gangsvæðin með rimlum Annað áhugavert erindi var flutt af Íslandsvininum Önju Juul Freudendal, en Anja er sérfræðing- ur í hönnun fjósa. Anja ræddi um samhengið á milli fjóss og ýmissa framleiðsluþátta en nýverið lauk umfangsmiklu rannsóknaverkefni í Danmörku þar sem skoðuð voru 770 kúabú með það að leiðarljósi að meta framangreint samhengi. Í ljós komu margar áhugaverðar niður- stöður s.s. beint samhengi á milli afurðasemi og fjósgerðar, þar sem legubásafjós voru að jafnaði með mun hærri meðalafurðir en bása- fjós. Þá var afurðasemin einnig mun hærri, heilum 1.000 kg orkuleiðréttr- ar mjólkur á kú, í legubásafjósum sem voru með sand eða mykju- trefjar í legubásunum í stað þess að vera með dýnur eða gúmmímottur. Fjósgerðin hafði einnig áhrif á með- altal frumutölu en hæsta frumutalan var í hálmdýnufjósum, næst hæst í básafjósum en lægst í legubása- fjósum og innan legubásafjósa voru fjós með sand í legubásnum töluvert lægri en t.d. fjós með gúmmímottur eða dýnur. Samandregið mat Anja það svo að niðurstöðurnar bendi ein- dregið til þess að fjós eigi í dag að vera með sandlegubásum og gang- svæðin með rimlum eða föstu gólfi með afrennsli. Breskir svínabændur minnka notkun á sýklalyfjum Nýjar tölur frá breskum fóð- urverksmiðjum sýna að notk- un sýklalyfja hjá smágrísum minnkar töluvert milli ára. Þetta kemur til af átaki fóðurframleið- enda og breskra svínabænda og hefur notkun á sýklalyfjum í fóðri minnkað til muna síðastliðin þrjú ár. Nýjar tölur frá breskum fóður- verksmiðjum sýna að árið 2014 var notað um 37 prósent af sýklalyfjum í seldu smágrísafóðri á meðan magnið hafði fallið niður í 18 prósent í lok síðasta árs. Tveir þriðju af þessari minnkun áttu sér stað árið 2016. Að hluta til er í stað sýklalyfja notað bætiefnið zinkoxid fyrir smágrís- ina í fóðrinu en einnig er mun meiri áhersla en áður á að ná niður sýkla- lyfjanotkuninni sem hefur haft sín áhrif. Það sem hefur einnig hjálpað til er að á síðasta ári fór Félag svína- bænda í Bretlandi í herferð um betri stjórnun á sýklalyfjum sem hefur hjálpað bændum við að minnka notkunina meðal annars með kvót- um og takmörkun á notkun á verstu tegundum sýklalyfja. /Landbrugsavisen - ehg Smitandi fuglainnflúensa greinist á Spáni Eftir að smitandi fuglaflensa, af tegundinni H5N8, greindist á Spáni á dögunum þurfti að aflífa 17 þúsund endur. Smitið uppgötvaðist á andabú- garði í norðurhluta Katalóníu. Að auki fannst önnur tegund veirunnar í dauðum stork rétt hjá búgarðinum. Núna eru níu bóndabæir í norður- hluta Katalóníu til rannsóknar í var- úðarskyni. H5N8 er banvæn fyrir fiðurfénað en hefur ekki fundist hjá manneskjum. Síðastliðið ár er vírusinn orðinn töluvert útbreidd- ur í Evrópu og Mið-Austurlöndum sem hefur leitt af sér slátrun á mörg þúsund fuglum. Heimssamtökin fyrir dýraheilbrigði, OIE, hefur varað við að fleiri smita sé að vænta í Evrópu á næstu misserum. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hafa um 40 lönd staðfest ný smit af fuglainflúensu hjá sér. /Landbrugsavisen - ehg Hveitibirgðir hafa aukist á heimsvísu Samkvæmt tölum landbúnað- arráðuneytis Bandaríkjanna (USDA) hveitibirgðir verið að aukast á heimsvísu í kjöl- far framleiðsluaukningar og þrátt fyrir verulega aukin kaup Indverja á hveiti. Heimsframleiðsla á hveiti á síðasta ári var 751,1 milljón tonna og jókst um 2,8 milljónir tonna. Aukningin kom að mestu frá Ástralíu og Argentínu og gerði meira en að vega upp sam- drátt í Evrópusambandslöndum. Metuppskera var á hveiti í Ástralíu sem skilaði 35 milljón- um tonna og jókst um 2 milljónir tonna. Dugar þar ekki til að Indverjar hafa aukið verulega innflutning á hveiti nú í mars í kjölfar þess að þeir voru farnir að ganga mjög á sínar birgðir. Hafa hveitibirgðir Indverja stöðugt verið að minnka síðan 2012. Indverjar leiða nú inn- flutning á hveiti á heimsvísu og hafa flutt inn 5,5, milljónir tonna í þessum mánuði. Er þetta mesti hveitiinnflutningur Indverja síðan 2006. Þrátt fyrir að eftirspurn í Indlandi hafi aukist, þá hafa hveitibirgðir á heimsvísu verið að hlaðast upp. Þannig hafa birgð- ir aukist um 1,3 milljónir tonna og voru um síðustu áramót 249,9 milljónir tonna. /HKr. UTAN ÚR HEIMI Búist við verðhækkunum á korni og sojabaunum Samkvæmt frétt North Star Genetics er búist við hækkandi verði á korni og sojabaunum á þessu ári eftir nokkuð langvar- andi stöðnun. „Ef við horfum fram á veginn, þá erum við nú að upplifa gríðar- lega eftirspunaraukningu á korni og sojabaunum um allan heim. Það á sérstaklega við um Kína,“ segir Al Kluis, forstjóri Kluis Commodities. „Í Kína hefur orðið aukin eftir- spurn eftir próteini í takt við auknar tekjur landsmanna. Það hefur verið erfitt að ná einhverri framlegð út úr þessari framleiðslu á síðustu tveim árum, en með aukinni eft- irspurn eru líkurnar góðar um að verð hækki og hagnaður aukist á árinu 2017.“ Vegna tregðu á markaði og birgðasöfnunar hefur aukinn hluti kornframleiðslunnar, ekki síst í Bandaríkjunum, farið í framleiðslu á lífeldsneyti eða etanóli. Búist er við að slík framleiðsla aukist enn frekar á þessu ári þrátt fyrir tiltölu- lega lágt verð og samdrátt í ræktun á korni. Gera má ráð fyrir að m.a. vegna þessa muni fljótlega skapast sú staða að gengið verði á birgðir og verð fari að hækka. /HKr. Fagþing nautgriparæktarinnar í Danmörku 2017 – annar hluti: Sandlegubásar æskilegastir og gangsvæðin með rimlum Frá Fjóni. Mynd / HKr. Á FAGLEGUM NÓTUM

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.