Bændablaðið - 23.03.2017, Qupperneq 51

Bændablaðið - 23.03.2017, Qupperneq 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 3. Utan úr heimi Þessi málstofa samanstóð af 9 erind- um og lutu sum þeirra að hertum kröfum í Evrópusambandinu varð- andi umhverfismál, sem ekki verður gerður nánari gaumur að hér. Þá voru flutt erindi um breyttar áherslur neyt- enda og mikilvægi upprunavottunar, sérstakra lausna fyrir ólíka neyslu- hópa og hvernig nota megi samfé- lagsmiðla í auknum mæli til þess að tengja saman sveit og borg. Fyrrum landsráðunautur SEGES, Susanne Clausen, flutti þó skemmti- legt erindi sem hún kallaði „Póstkort frá heiminum“ en í því kynnti hún hvernig mjólkurframleiðslan er í Argentínu, í Bandaríkjunum og á Nýja-Sjálandi. Í Argentínu eru nú um 11 þúsund kúabú og er með- albúið að framleiða um 1 milljón lítra árlega með 157 kúm að jafnaði. Meðalnytin er því ekki há, miðað við erlend kúakyn, eða um 6.400 lítrar. Landið er 16. stærsti framleiðandi mjólkur í heiminum í dag og fer um 20% framleiðslunnar til útflutnings. Í Bandaríkjunum eru um 49 þúsund kúabú og nemur framleiðsla þeirra um 95 milljörðum kílóa sem svarar til þess að meðalbúið er að framleiða rétt tæplega tvær milljónir kílóa mjólkur á ári. Meðalbúið er með um 183 kýr en það sem vekur athygli er að 50% allrar mjólkur kemur frá búum sem eru með fleiri en 1.200 kýr. Með öðrum orðum þá eru fá bú, um 4% þeirra, sem standa undir helmingi framleiðslunnar. Landið flytur út um 18% landsframleiðsl- unnar á mjólk. Á Nýja-Sjálandi eru nú um 12 þúsund kúabú og er árs- framleiðsla þeirra 22 milljarðar kílóa eða sem nemur um 1,8 milljónum kílóa að jafnaði á hvert bú. Kýrnar eru, sem flestum er kunnugt, á beit allt árið og eru meðalafurðirnar ekki miklar eða rétt um 4.900 kíló orkuleiðréttrar mjólkur. Fyrir vikið eru búin afar stór, talið í kúm, en að jafnaði eru um 420 kýr á hverju búi. 4. Kjötkálfaeldi Þessari málstofu var stýrt af Per Spleth, landsráðunauti SEGES, en hann er væntanlegur til Íslands nú í apríl til þess að ræða um eldi á nautum, en að öðrum ólöstuðum er hann sá aðili sem á mestar þakkir skildar í Danmörku fyrir að hafa lyft nautakjötsframleiðslu landsins á enn hærra plan en áður. Í þessari mál- stofu voru flutt fimm erindi sem flest lutu að sértækum dönskum aðstæð- um sem ekki eiga við á Íslandi. Í Danmörku eru tiltölulega fá en stór bú sem eru í nautkálfaeldi og á það m.a. við um bú hjónanna Jannie og Kim Nielsen. Þau sögðu frá því hvernig þau búa með 1.100 nautkálfa á ári, sem þau kaupa frá ýmsum kúa- bændum en þau leggja mikla áherslu á smitvarnir og að tryggja nautun- um góðan aðbúnað. Þau sýndu afar áhugaverðar tölur úr rekstri sínum en þau framleiddu 1.072 nautkálfa á síðasta ári. Meðalþungi kálfanna við kaup frá kúabúunum í nágrenninu var 58,2 kíló og fallþunginn 208 kg en þau slátra kálfunum 8-9 mánaða gömlum. Að meðaltali þyngdust þessi Holstein naut hjá þeim um 1.277 grömm á dag og þurfti að jafnaði 4,10 FE á hvert kíló í vexti sem er eftirtektarverður árangur. Framlegðin eftir hvern kálf var 2.704 danskar krónur eða um 42 þúsund íslenskar krónur og heildarframlegð búsins því um 45 milljónir íslenskra króna á síðasta ári. Ástæða er til þess að vekja athygli á því að erindi þeirra hjóna var hlaðið fínum myndum frá búi þeirra, sem hægt er að skoða á heimasíðu fagþingsins. 5. Kynbótastarf Að síðustu, í þessari umfjöllun, skal getið málstofunnar um kynbótastarf en hér voru flutt tvö erindi. Bæði fjölluðu um val á holdanautum við framleiðslu á blendingsnautum, en með tilkomu kyngreinds sæðis nota nú margir kúabændur holdasæði á þær kýr sem þeir vilja ekki rækta undan. Hér þarf að vanda valið og var farið yfir helstu þætti sem líta þarf til, þegar sett er upp kynbóta- áætlun sem byggir á notkun kyn- greinds sæðis. Í næsta Bændablaði verður farið í stuttu máli yfir síðustu málstof- ur fagþingsins: „Í mjaltabásnum“, „Vinnufundir“, „Holdanautarækt“, „Frá akri í stæðu“, „Samvinna“ og „Sérfundir kúakynja“. Þeir sem geta ekki beðið þeirrar umfjöllunar má benda sérstaklega á að bæði útdrætt- ir og flest erindi, þ.e. afrit af glær- um fyrirlesara, má hlaða niður af heimasíðunni www.kvaegkongres. dk, en rétt er að geta þess að mest allt efni er á dönsku en þó er hluti þess á ensku. Snorri Sigurðsson sns@seges.dk Sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs Dýralækninga- og gæðadeild SEGES í Danmörku Fjölnota inngjafabyssa, hentar bæði í bólusetninga, ormalyfsgjöf og AB-mjólk. 1/2 líters plast- flaska passar á byssuna. Egilsholti 1, 310 Borgarnesi Afgreiðsla, sími 430 5500 Opið virka daga 8-18 laugardaga 10-15 www.kb.is, margret@kb.is Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Gúmmíbelti - Fyrir smágröfur Mikið fjölmenni var á fagþingi nautgriparæktarinnar í Herning. UTAN ÚR HEIMI Kallað eftir róttækum breytingum á sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB Slow Food-hreyfingin og fleiri en 150 önnur evrópsk félagasamtök skoruðu fyrir skemmstu á leiðtoga Evrópusambandsins (ESB) að beita sér fyrir róttækri endurskoðun á sameiginlegri landbúnaðarstefnu sambandsins (CAP). Félagasamtökin eru frá 25 lönd- um ESB og koma úr ýmsum áttum; tengslanet umhverfis- og félagslegs réttlætis, bændur í lífrænt vottuðum búskap, hirðingjar, bændur, sjálfbærir skógarbændur, heilsusamtök, dýravel- ferðarsamtök, neytendaréttarsamtök, handverkshópar, samtök um sjálfbæra ferðaþjónustu, neytendasamlög, sam- tök um þróun dreifbýlis, samtök um menningararfleifðir og samtök um sanngjörn viðskipti. Áskorunin var sett fram þegar landbúnaðarráðherrar ESB-ríkjanna hittust í Brussel á dögunum til að ræða endurskoðun á landbúnaðarstefnunni, en einnig í samhengi við yfirlýsingu framkvæmdastjórnar ESB þess efnis að vilji væri til að eiga samtal við almenning um framtíð málaflokksins. Verjum smáframleiðendur Carlo Petrini, forseti Slow Food, sagði af þessu tilefni að þörf væri á róttæk- um breytingum á þróun evrópsks land- búnaðar og til þess að það geti gerst verði að breyta þeim grundvallarregl- um sem eru í umgjörð CAP. „Við þurf- um landbúnaðarstefnu sem verndar hagsmuni smáframleiðenda, sem verja líffræðilega fjölbreytni og koma í veg fyrir hnignun jarðvegs og annarra nátt- úruauðlinda, sem verksmiðjubúskapur getur haft í för með sér.“ Í yfirlýsingu félagasamtakanna kemur fram að núverandi landbún- aðar- og matvælaframleiðslukerfi virki ekki lengur, þar sem það festi núverandi fyrirkomulag verksmiðju- búskapar í sessi. Því kalla þau eftir grundvallarbreytingum á sameigin- legri landbúnaðarstefnu Evrópu, sem sé úr skorðum gengin. Brýn þörf sé á að koma slíkri endurskoðun á, til að auðvelda breytingar á búskaparháttum og matvælaframleiðslu sem styðja við réttlátt og fjölbreytt landbúnaðar- og matvælahagkerfi. Renna má stoðum undir slík hagkerfi með áherslum á lífrænan landbúnað og visthyggju – sem ber með sér virðingu fyrir umhverfinu og dýravelferð, eflir lýð- heilsu og er samfélagslega ábyrgt. /smh Aðalfundur Geitfjárræktarfélag Íslands heldur aðalfund sinn laugardaginn 25. mars kl 13 í Tryggvaskála á Selfossi. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Félagar kvattir til að mæta á fundinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.