Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 52

Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Verkefnið „Áhrif fóðrunar á efna- innihald í mjólk, með sérstaka áherslu á fitu“ fór af stað í árs- byrjun 2016 og er uppgjöri þess nú lokið. Tilgangur verkefnisins var að skilgreina helstu þætti í fóðrun sem áhrif hafa á efnahlutföll í mjólk, með sérstakri áherslu á fituhlutfallið og þar með einnig hlutfallið fita/prótein. Bæði var leitað upplýsinga úr erlend- um rannsóknum og gerð tilraun á tilraunabúinu á Stóra-Ármóti frá janúar til maí 2016. Umfjöllun um verkefnið hér á eftir skiptist í tvo hluta. Fræðilegi hluti verkefnisins kemur á undan en í seinni hluta eru helstu niðurstöður tilraunarinnar kynntar. 1. hluti Almennt um áhrif fóðrunar á efnahlutföll mjólkur Megin hlutar þurrefnis mjólkurinn- ar eru mjólkurfita, mjólkurprótein og mjólkursykur. Það varð snemma ljóst að mjólkurfitan er sá efnaþáttur í mjólkinni sem auðveldast er að hafa áhrif á með fóðrun, þá bæði á heildarmagn mjólkurfitunnar og fitusýrusamsetningu. Á níunda áratugnum var það mat manna í USA að mjólkurfitu mætti hafa áhrif á á skala upp á 3 prósentu- einingar, mjólkurpróteinið uppá 0,5 prósentueiningar og mjólkursykur- inn væri lítil áhrif hægt að hafa á. Hlutfallið fita/prótein í mjólk Æskilegt er að geta stýrt hlutfallinu fita/prótein með hliðsjón af eftir- spurn markaðarins. Stundum hefur verið skortur á próteini en í seinni tíð hefur frekar verið vöntun á fitu. Hlutfall fitu í mjólk hækkaði sam- fellt frá árinu 1996 (3,90%) til 2013 (4,12%). Það lækkaði svo nokkuð óvænt niður í 3,93% árið 2014. Bæði sumrin 2013 og 2014 voru víða erfið til heyskapar, en á sama tíma var verið að reyna að auka fram- leiðsluna, gjarnan þá með mikilli kjarnfóðurgjöf. Bent var á mögulegt samhengi, að aukin kjarnfóðurgjöf hefði orsakað lækkun fituinnihalds árið 2014. Hvað segja erlendar rannsóknir um þetta? Rannsóknir á áhrifum fóðrunar á mjólkurfituhlutfall hafa m.a. verið drifnar áfram af vandamáli sem á ensku kallast milk fat depression (hér eftir skammstafað MFD). MFD er mikil lækkun á fituhlutfalli mjólkur sem á sér stað við vissar aðstæður í fóðrun. Áður fyrr var þetta vandamál oft rakið beint til mikillar kjarn- fóðurnotkunar en nú hafa helstu kenningar um MFD tekið á sig þá mynd að um sé að kenna sérstökum fitusýrum sem verða til við mettun fjölómettaðra fitusýra í vömbinni. Mest hætta er á þessu þegar saman fer lítið/lélegt tréni í fóðri og hátt hlutfall fjölómettaðra fitusýra. Einnig hefur komið fram í rannsóknum að fita úr fiski og sjávarspendýrum er inniheldur mikið af fjölómettuðum fitusýrum getur framkallað þessar óæskilegu aðstæður í vömbinni og það jafnvel án þess að fóðrið sé sérstaklega lágt í tréni. Lærdómurinn af þessu? Mikil kjarnfóðurgjöf er ekki beinn orsakavaldur lækkunar á fituhlut- falli, heldur miklu fremur lélegt gróffóður. Til auka framleiðslu á hvern grip er fóðrunarstig hækk- að, þ.e. reynt að koma fleiri fóðu- reiningum í hvern grip á dag til að standa undir sem mestri fram- leiðslu. Eftir því sem gróffóðrið er lak- ara (lægri meltanleiki) tekur hver fóðureining í gróffóðri meira pláss/ tíma í meltingu og því er eina leiðin til að ná fóðrunarstigi/afurðum upp að hækka kjarnfóðurhlutfallið. Heildarfóðrið inniheldur þá bæði lítið og lélegt tréni sem er ávísun á lækkað fituhlutfall mjólkur auk fleiri vandamála. Nóg af góðu gróf- fóðri er því alltaf besta tryggingin fyrir árangri varðandi nyt og efna- innihald mjólkur. Hæsta nytin (og hagstæðustu efnahlutföllin) nást með góðu gróffóðri eftir átlyst og réttri kjarnfóðurgjöf samkvæmt vandaðri fóðuráætlun. Það árar misvel til gróffóðurverkunar -hvað með tréni úr kjarnfóðri? Kýrin hefur ákveðnar lágmarks- þarfir fyrir tréni (NDF) til að viðhalda eðlilegri vambarstarfsemi – og mjólkurfituhlutfalli. Ef slæmt árferði leiðir til almennt lélegra gróffóðurgæða eru ekki óeðlileg viðbrögð að hækka kjarnfóðurhlut- fall til að halda uppi nyt. Dæmi um kjarnfóðurhráefni sem inniheldur mikið NDF er sykurrófuhrat (sugar beet pulp). Notkun slíkra hráefna í kjarnfóður er leið til að nota meira kjarnfóður án þess að skaða vamb- arheilsu og fituhlutfall mjólkur. Þó verður að hafa í huga að kjarnfóð- ur- NDF hefur oftast hlutfallslega minni virkni í vömbinni en gróf- fóður- NDF vegna meiri mölunar o.fl. Gott gróffóður leiðir til minni hættu á óeðlilegri lækkun mjólkurfitu (MFD) Þegar gróffóðrið er gott er fátt sem bendir til þess að sérstak- ur ávinningur sé að því að gefa trénisríkt kjarnfóður í stað hluta gróffóðursins. Sérstaklega ekki ef gróffóðrið er mun ódýrara en kjarnfóðrið. Til að byggja ofan á „eðlilegt“ mjólkurfituhlutfall – þ.e. auka fituhlutfallið fram yfir það hafa sjónir manna beinst að því að bæta við fitu í fóðrið. Eldri erlendar rannsóknir sýndu að viðbót fitu í fóður leiddi til minnkaðs heildaráts en aukinnar framleiðslu orkuleið- réttrar mjólkur. Fituprósentan ýmist hækkaði eða lækkaði en próteinprósentan lækkaði oftast. Fitusýrur í mjólkurfitu eiga sér tvenns konar uppruna: Júgur: Nýmyndaðar fitusýrur, eru byggðar upp frá grunni í júgr- inu, aðalhráefni eru edikssýra og smjörsýra – sem báðar eru afurðir vambargerjunar. Blóðrás: Fitusýrur sem eru teknar upp úr blóðrás, komnar úr fóðri og örverumassa og forðafitu en sá hluti er breytilegur eftir stöðu á mjaltaskeiði. Nýlegar tilraunir í USA sýna að fituviðbót á formi pálmasýru (16:0) skilar sér vel í hækkun á fitu- hlutfalli í mjólk. Sterínsýra (18:0) virkar ekki eins vel hvað þetta varðar. Það skýrist nánast alfarið af því að þegar fituviðbótin er á formi pálmasýru skilar hún sér í veru- legum mæli beint í mjólkurfituna en sterínsýran gerir það aðeins að mjög litlu leyti. Pálmasýran er meðallöng (16 C-atóm), mettuð fitusýra sem að hluta til er fram- leidd í júgri en líka tekin beint upp úr fóðrinu inn í blóðrás og þaðan til júgurs. Til að tryggja hátt fituhlutfall í mjólk þarf m.a. eftirfarandi: Góða samsetningu kolvetna í fóðri (m.a.nægt tréni) og fara varlega í fjölómettuðu fitusýrurnar. Einnig að ef nýta á takmarkaða en afar verðmæta getu kýrinnar til að melta og nýta fituviðbót í fóðri þarf að velja þá fitusýrusamsetningu sem skilar sér best úr fóðri í mjólk. Þar hefur pálmasýra (16:0) gefið besta raun. Virkni trénis Í löndum þar sem maísvothey er grunnhráefni (t.d. USA) og stór hluti af tréni fóðursins kemur úr maísnum, eru meiri vandamál með lágt mjólkurfituinnihald en í lönd- um þar sem gras er grunnhráefni í gróffóðrið (sbr. Ísland). Virkni trénisins er lykilatriði, fremur en magn þess. Til eru ýmis hugtök sem mæla virkni trénisins, svo sem tyggitími sem notaður er í Norfor-kerfinu sem mælikvarði á þetta. Þegar eðlilegt hlutfall af góðu íslensku gróffóðri er í heildar- fóðrinu ætti lítið eða lélegt tréni ekki að þurfa að vera vandamál hérlendis, nema í jaðartilvikum. Helst er hætta á að slík staða komi upp þegar heygæði eru léleg og mjólkurframleiðsla er keyrð upp með mjög háu kjarnfóðurhlutfalli. Bergafat Feitur Róbót Kontról Áhrif fituviðbótar á át og afurðir LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS Áhrif fóðrunar á efnainnihald mjólkur, með sérstakri áherslu á fituinnihald Frá Hvanneyri. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.