Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Matvælastofnun:
Veira finnst í agúrkurækt
– Ekki skaðleg mönnum en berst milli plantna með áhöldum og við snertingu
Matvælastofnun hefur borist
tilkynning um veirusmit á tveimur
búum í agúrkurækt á Suðurlandi.
Óljóst er hve útbreidd veiran er
eða hve mikið tjón getur hlotist
af sýkingu á þessum tímapunkti.
Matvælastofnun skipuleggur
nú sýnatökur til að kanna frekari
útbreiðslu og beinir þeim tilmælum
til ræktenda að gæta ýtrustu
smitvarna.
Veiran sem um ræðir nefnist
cucumber green mottle mosaic
virus (CGMMV) og er af ættkvísl
Tobamoveira. Veiran hefur greinst
víða í Evrópu. Hún smitar ekki menn
og stafar almenningi ekki hætta af
neyslu agúrka.
Veiran getur smitast milli plantna
með snertingu (hendur, föt og
áhöld) og getur einnig dreifst með
fræi. Aðrar smitleiðir eru sýktar
ungplöntur, afskornir plöntuhlutar,
pökkunarefni og ávextir. Veiran
getur lifað á fatnaði í allt að mánuð.
Ekki er ástæða til að ætla að veiran
breiðist út fyrir gróðurhúsarækt.
Einkenni sýkingar eru breytileg
milli árstíða en meðal einkenna
eru gulleit laufblöð, gult og grænt
mósaík-munstur á laufblöðum,
misvöxtur ávaxta og dauði plantna.
Mikilvægt er að takmarka
útbreiðslu veirunnar eins og
mögulegt er og vill Matvælastofnun
beina því til ræktenda, sem og
annarra sem við á, að gæta fyllsta
hreinlætis þegar komið og farið er
frá ræktunarstöðum. Forðast skal
allan samgang milli ræktunarstaða.
Matvælastofnun birti nýlega
leiðbeiningar um sóttvarnir við
ræktun garðyrkjuafurða og hvetur
stofnunin alla ræktendur til að kynna
sér sóttvarnir og innleiða þær eftir
fremsta megni. /VH
Nýr landbúnaðarráðherra,
Kristján Þór Júlíusson, er
hvattur til að standa með
íslenskum bændum, búfénaði
og neytendum í kjölfar EFTA-
dóms varðandi innflutning á
fersku kjöti, með því að tryggja
að sjúkdómavarnir landsins og
þar með áframhaldandi heilnæmi
þeirrar vöru sem til boða stendur
á íslenskum markaði.
Hvatningin kemur fram í bókun
landbúnaðarráðs Húnaþings vestra
sem samþykkt var á dögunum.
„Heilbrigði hinna íslensku
búfjárstofna, sem og hverfandi
notkun sýklalyfja í landbúnaði hér
á landi, er auðlind sem ekki ber að
vanmeta og getur skipt sköpum
þegar litið er til framtíðar, bæði
varðandi afkomu bænda sem og
kostnað við heilbrigðiskerfi landsins
í framtíðinni,“ segir jafnframt í
bókun ráðsins. /MÞÞ
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra:
Hvetja nýjan ráðherra til dáða
Cucumber green mottle mosaic vírus:
Skæð vírussýking
Þriðja vírussýking á skömmum
tíma er komin upp í matvælarækt
í gróðurhúsum hér á landi.
Fyrir skömmu greindist sýking
í agúrkum en áður höfðu tvenns
konar sýkingar greinst í tómötum.
Vírusinn, sem kallast Cucumber
green mottle mosaic vírus, er ekki
hættulegur mönnum.
Einkenni agúrkusýkingarinnar
sjást helst á yngri blöðum sem
grænir, ljósgrænir eða gulir blettir.
Sýktu blettirnir vaxa hægar en
laufið og stundum haldast æðar
sýkta hluta blaðsins grænar. Sé
um alvarlega sýkingu að ræða
afmyndast laufblöðin. Ekki er
óalgengt að sýktar plöntur felli blóm
og aldinvísa og að þau aldin sem
ná að þroskast verði minni en hjá
ósýktum plöntum.
Vírusinn getur borist á milli
plantna með vökvunarvatni í
jarðvegi, við meðhöndlun og með
sýktu fræi. Vírusinn getur einnig
borist í verslanir utan á aldinum og
breiðst þannig út.
Allt að 25% uppskerutap
Sýking af völdum vírussins er talin
alvarleg og getur uppskera aldina
dregist saman um 25% og jafnvel meira
vegna sýkingarinnar auk þess sem
markaðsvirði uppskerunnar minnkar.
Vírusinn er mjög þolinn og getur
viðhaldist í gróðurhúsum í marga
mánuði og getur ein sýkt planta leitt
til sýkingar í öllu húsinu. Einnig getur
vírus sem leynist í jarðvegi eða annars
staðar í gróðurhúsi leitt til sýkingar
seinna meir.
Nauðsynlegt að grípa til
aðgerða strax
Cucumber green mottle mosaic vírus,
CGMMV, var fyrst greindur árið
1935 í agúrkum. Vírusinn var orðinn
algengur í Evrópu á 6. og 7. áratug
síðustu aldar og í dag þekkist hann í
agúrku- og melónurækt um allan heim.
Nauðsynlegt er að grípa til aðgerða
strax og grunur um sýkingu kemur
upp. /VH
FRÉTTIR
Heilbrigðar íslenskar agúrkur.
Einkenni agúrkusýkingarinnar sjást helst á yngri blöðum sem grænir,
Skömmu fyrir áramót greindist
áður óþekkt veirusýking á
agúrkum hér á landi. Sýkingin
hefur greinst á tveimur býlum
á Suðurlandi. Vírusinn sem
getur smitast mjög hratt út er
sá þriðji sem greinst hefur í
gróðurhúsagrænmeti á stuttum
tíma. Vírusinn smitar ekki menn.
Helgi Jóhannesson, garðyrkju-
ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, segir að vírusinn
sem greindur var í agúrkum hér
á landi 30. desember síðastliðinn
kallist cucumber green mottle
mosaic virus (CGMMV).
„Vírusinn er leiðinlegur í alla
staði, dregur úr vexti og leiðir til
uppskerutaps. Í versta falli gætu
gúrkubændur þurft að henda út
plöntunum, sótthreinsa og byrja
upp á nýtt.
Tjón vegna vírussins er misjafnt
eftir því á hvaða vaxtarstigi
plönturnar smitast. Ungar plöntur
fara verr út úr smiti en eldri.
Einkennin eru oftast sýnileg á
blöðunum en ekki á vörunni sjálfri.
Líklega borist með innfluttu
grænmeti
Vírusinn er mjög lífseigur og
getur lifað árum saman í jarðvegi,
plöntuleifum og annars staðar í
gróðurhúsum.
Að sögn Helga er ekki vitað
hvernig sýkingin barst til landsins.
„Líklegast er að það sé með
innfluttu grænmeti, agúrkum
eða skyldum tegundum eins og
melónum eða kúrbít, eða fræi.
Líkur á smiti með fræjum eru
litlar en til staðar og ekki hægt að
útiloka það alfarið og slíkt er þekkt
erlendis.
Berst hratt út
Eins og er hefur vírusinn greinst
á tveimur garðyrkjubýlum á
Suðurlandi.
„Vírusinn getur smitast mjög
hratt út með afurðum, mönnum
eða umferð sé ekki ýtrustu varúðar
gætt. Búið er að grípa til aðgerða á
báðum stöðum til að hindra aukna
útbreiðslu vírussins og til að draga
úr smiti innan stöðvanna tveggja.“
Helgi segir að tvær ólíkar
vírussýkingar hafi komið upp í
tómötum á síðasta ári og þá hafi
verið ákveðið að fara yfir lög og
reglur um sýkingar í matjurtarækt
en að þeirri vinnu sé ekki lokið
þrátt fyrir að hún sé löngu orðin
tímabær.
„CGMMV-vírusinn er ekki
tilkynningaskyldur hér á landi né
hjá EPPO, Samtökum um plöntur
og plöntuheilbrigði í Evrópu og
við Miðjarðarhafið, einhverra hluta
vegna.“
Helgi segir að reyndar
sé orðið löngu tímabært að
uppfæra þann lista hér á landi og
endurskoða allt regluverk kringum
plöntusjúkdóma, en langt sé síðan
að það var gert síðast. /VH
Þriðja veirusýkingin á gróðurhúsagrænmeti á skömmum tíma:
Agúrkuveira greind á tveimur
býlum á Suðurlandi
Aðalfundur Eyþings:
Læknanám hefjist við HA
Aðalfundur Eyþing, samtaka
sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, skorar á
stjórnvöld að stuðla að því að
læknanám hefjist vð Háskólann
á Akureyri.
Þetta kemur fram í ályktun um
menntamál frá fundinum. Þar segir
einnig að mikilvægt sé að auka
fjárveitingar til iðn- og tæknináms,
bæði á framhalds- og háskólastigi
á svæðinu og stuðla að kynningu á
iðn- og tækninámi á grunnskólastigi.
Þá bendir Eyþing á að brýnt
sé að hefja byggingu legudeilda
við Sjúkrahúsið á Akureyri, en
það sé lykillinn í að viðhalda og
byggja upp þjónustu sjúkrahússins.
Jafnframt sé nauðsyn að tryggja
fjármagn til að efla heilsugæslu
og geðheilbrigðisþjónustu í
nærsamfélaginu. Nefnt er í ályktun
að tryggja þurfi fjármagn til reksturs
hjúkrunarheimila og að daggjöld séu
miðuð við þær kröfur sem gerðar eru
til rekstrarins.
Hvað atvinnumálin varðar segir
Eyþing brýnt að grípa þegar í stað til
aðgerða vegna stöðu sauðfjárræktar
í landinu. /MÞÞ