Bændablaðið - 11.01.2018, Side 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
FRÉTTIR
Náttstaður
Frá Jötni Byggingum
Austur vegur 69 - 800 Selfoss
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
4 herbergja eining - 88,15m2 utanmál
Tilbúið undir tréverk
Útveggir og milliveggir á milli gistiherbergja ásamt þaki. Gluggar og
útihurðir komnar í. Hönnun húsanna er samkvæmt íslenskum kröfum
og uppfylla ákvæði byggingarreglugerða.
Einnig hægt að fá húsið fullbúið.
Verð á húsi afhent í Árborg:
12.940.000 án vsk
16.045.600 m/vsk
Lýsing á húsi
Gólf: Aðalburðarbitar gólfs eru úr límtré, á milli þeirra koma
steinullareiningar. Efra gólf er 45x145 mm dregarar klæddir nótuðum
spónaplötum, 22 mm þykkum.
Útveggir: Útveggir eru gerðir úr stálsamlokum með stein ullareinangrun.
Að utan er húsið klætt með lituðu bárustáli, litir samkvæmt litakorti. Að
innan eru veggir klæddir með gifsplötum.
Þak: Steinullareiningar sem bornar eru uppi af límtrés bitum og ásum við
veggi. Þakrennur og rör niður veggi eru innifalin í verði.
Gluggar: Ál/trégluggar eru í húsunum. Hægt er að velja um aðrar gerðir.
Útihurð: Ál/tréhurðir
Milliveggir: Veggir milli herbergja eru tvöfaldir úr stein ullareiningum
með loftrúmi á milli til að hámarka hljóð einangrun. Milliveggir eru hluti af
burðarvirki hússins og því eru ákveðnar takmarkanir á því hversu mikið má
opna milliveggi nema aðrar styrkingar komi til.
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
BÍLAR
Kæli- & frystibúnaður
frá Carrier í miklu úrvali.
Fyrir allar gerðir af sendi- og flutningabílum.
HURÐIR
Hentar afar vel fyrirtækjum
í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði.
fyrir kæla
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Íbúum í Skútustaðahreppi hefur
frá árinu 2013, eða undanfarin
fjögur ár, fjölgað úr 370 í 490,
eða um 120 manns, sem er
hvorki meira né minna en 32%.
Ekki er ólíklegt að um eins konar
Íslandsmet í fólksfjölgun sé að
ræða.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri í Skútu staðahreppi, gerir
fólksfjölgun að umtalsefni í pistli
sem hann skrifar á heimasíðu
hreppsins. Þar nefnir hann að á einu
ári hafi íbúum fjölgað um 16%, úr
425 árið 2016 í 493 nú í lok árs
2017. Um 120 manns hafa annað
ríkisfang en íslenskt, eða um 24%.
Fólksfjölgunin endurspeglast m.a.
í mikilli aukningu leikskólabarna
undanfarin misseri en ungt
fjölskyldufólk er í nokkrum mæli
að snúa til baka í heimahagana.
Sveiflast upp og niður
Íbúafjöldi í Skútustaðahreppi hefur
sveiflast nokkuð í gegnum tíðina.
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands
voru þeir fæstir 276 talsins árið 1910
en flestir árið 1980, eða 547, sem
var í miðjum Kröflueldum. Þetta
var á árum Kísiliðjunnar og hélst
fólksfjöldinn yfir 500 allt til ársins
1994 en þá fór hann niður í 497
íbúa. Eftir það fækkaði íbúum smátt
og smátt. Kísiliðjunni var lokað í
nóvember 2004 en þá voru íbúar
442. Í kjölfarið fór að halla verulega
undan fæti og fór fólksfjöldinn niður
í 370 árið 2013. Þróunin hafi því til
allrar hamingju snúist við.
Ferðaþjónusta heilsárs
atvinnugrein
Íbúafjölgunina undanfarin ár segir
sveitarstjóri að megi án nokkurs
vafa fyrst og fremst rekja til
uppgangs ferðaþjónustunnar og að
hún er orðin að heilsárs atvinnugrein
í meira mæli en áður. Tvö stór hótel
hafa verið byggð í Skútustaðahreppi
og stofnuð afþreyingarfyrirtæki í
ferðaþjónustu sem þarfnast meiri
mannafla. Þá hafi Jarðböðin
brugðist við aukinni eftirspurn á
fasteignamarkaði með því að byggja
sjö íbúðir í tveimur raðhúsum í
Klappahrauni.
Sveitarfélagið vinnur nú að gerð
húsnæðisáætlunar til næstu 10 ára til
að reyna að kortleggja eftirspurnina.
Afrakstur þeirrar vinnu mun liggja
fyrir á næstu vikum. Þessi mikla
fólksfjölgun þrýstir á innviði
sveitarfélagsins, sérstaklega á
leikskólann þar sem mikil aukning
hefur verið undanfarin misseri.
Þorsteinn segir það fyrst og fremst
jákvæða áskorun að takast á við og
segir sveitarfélagið hafa brugðist
við með talsverðum breytingum á
leikskólanum undanfarin misseri.
/MÞÞ
Íbúum í Skútustaðahreppi fjölgað
um 32% á fjórum árum
– Endurspeglar uppgang í ferðaþjónustu
Jarðhiti við Mývatn. Mynd / HKr.
„Alþingi tók tillit
ti l athugasemda
okkar, en í meðförum
fjárlaganefndar var
ákveðið að veita
400 mi l l jónum
króna aukalega til
heilbrigðisstofnana á
landsbyggðinni. Það
framlag bætir stöðuna
talsvert þótt það leysi
ekki alla fjárþörf
þessara stofnana,“ segir Jón Helgi
Björnsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðis stofnunar Norður-
lands, HSN.
Hann segir ekki liggja fyrir nú
hvað hver og ein stofnun fær í sinn
hlut af þessu fjármagni. Til viðbótar
fái heilbrigðisstofnanir í landinu
einnig 200 milljónir króna aukalega
til tækjakaupa. „Almennt má segja
að allar heilbrigðisstofnanir á
landsbyggðinni finni fyrir auknu
umfangi, sem m.a. má rekja til
fjölgunar ferðamanna og einnig
því að íbúar eru að eldast.“
Framkvæmdastjórn HSN lýsti
vonbrigðum með fjárlagafrumvarp
það sem leit dagsins ljós skömmu
fyrir jól og sendi frá sér tilkynningu
af því tilefni. Þar segir að í
þeim auknu fjárframlögum sem
ætluð eru til að styrkja rekstur
heilbrigðisþjónustu í landinu sé
litið framhjá heilbrigðisstofnuninni
og í staðinn sett 20 milljóna króna
hagræðingarkrafa á hana.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
veitir öfluga þjónustu á mörgum
sviðum og reksturinn er í jafnvægi.
Starfssvæði stofnunarinnar nær frá
Blönduósi til Þórshafnar og sinnir
hún allri heilsugæslu á því svæði.
Íbúar eru rúmlega 35.000. Einnig
er stofnunin með fjögur almenn
sjúkrahús með 149 hjúkrunar-,
sjúkra- og dvalarrýmum.
Minni sérfræðiþjónusta
eykur álag á
heilsugæslu
Fram kemur að líkt
og annars staðar séu
íbúar að eldast og
skjól stæðingar veik ari
þegar þeir út skrifast af
sjúkrahúsum. Samkvæmt
lýðheilsuvísum landlæknis 2016
og 2017 séu marktækt fleiri íbúar
á Norðurlandi sem meta bæði
líkamlega og andlega heilsu sína
slæma eða lélega samanborið við
landsmeðaltal. Það sé staðreynd
að aðgengi íbúa á Norðurlandi að
sérfræðiþjónustu lækna sé mun
minna en á höfuðborgarsvæðinu.
Minni sérfræðiþjónusta eykur
álag á heilsugæsluna og því sé
nauðsynlegt að efla heilsugæslu
og alla þjónustu í kringum hana
fyrir íbúa á svæðinu. Til þess þurfi
að veita auknum fjármunum m.a. til
heimahjúkrunar og geðþjónustu og
til að bæta aðgengi að læknum og
öðru fagfólki.
Endurspegla ekki gefin loforð
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar tekur í sama streng
og hvetur til fjárveitingar til HSN,
svo unnt verði að efla þjónustu
stofnunarinnar, meðal annars við
íbúa Skagafjarðar.
„ H e i l b r i g ð i s s t o f n u n
Norðurlands á Sauðárkróki gegnir
lykilhlutverki í samfélagi okkar
hér í Skagafirði og þá grunnstoð
má ekki veikja umfram það sem
orðið er á undanförnum árum. Það
framlag sem stofnuninni er ætlað í
þeim fjárlögum sem nú hafa verið
birt endurspeglar ekki þau loforð
sem gefin voru fyrir kosningar
og í stefnuræðu forsætisráðherra
um eflingu heilbrigðisstofnana á
landsbyggðinni,“ segir í bókun
frá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Jafnframt er bent á að stjórnvöld
á hverjum tíma verði að leitast
við að aðgengi landsmanna að
heilbrigðisþjónustu sé sem jafnast,
óháð búsetu.
Þjónustuþörf hefur aukist
Sveitarstjórn Norðurþings skorar
einnig á heilbrigðisráðherra og
alþingismenn að bregðast við
og sjá til þess að á Norðurlandi
verði innviðir styrktir og
heilbrigðisþjónusta efld með sama
hætti og annars staðar.
Bent er á að í sáttmála
ríkisstjórnar sé sérstök áhersla
lögð á heilbrigðismál og að
allir landsmenn óháð búsetu
eigi að njóta góðrar þjónustu í
heilbrigðiskerfinu.
Norðurþing hvetur til
þess að vikið verði alfarið
frá hagræðingarkröfunni og
fjárheimildir auknar með
áþekkum hætti og ráðgert er fyrir
höfuðborgarsvæðið. Þjónustuþörfin
hefur aukist verulega bæði
vegna aðstæðna á starfssvæði
heilbrigðisstofnunarinnar, svo
sem fjölgun íbúa og breyttri
aldurssamsetningu, en einnig
vegna þjónustu við sívaxandi fjölda
ferðamanna. Þá vill sveitarstjórn
einnig benda á nauðsyn þess að
Sjúkrahúsið á Akureyri verði eflt til
þjónustu við íbúa með sambærilegum
hætti og Landspítalinn, enda gegnir
það afar mikilvægu hlutverki
í heilbrigðisþjónustu íbúa á
norðanverðu Íslandi. /MÞÞ
Heilbrigðisstofnun Norðurlands:
Framlagið bætir stöðuna en
leysir ekki alla fjárþörfina
– segir Jón Helgi Björnsson framkvæmdastjóri
Jón Helgi Björnsson