Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 25

Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 of lítið. Við erum því með plön um að stækka verulega við okkur þar. Þar á meðal veitingastaðinn sem nýbúið er að stækka.“ Neyðin kennir naktri konu … Sagðist Þórarinn telja að þegar til kastanna kæmi þá ætti IKEA meira sameiginlegt með sauðfjárbændum en flestir hefðu trúað. Benti hann þar m.a. á að IKEA hafi staðið í miklum vanda í hruninu, með mikinn samdrátt í allt of stóru húsi. Það hafi fengið menn til að hugsa dæmið á annan veg. Þeir hafi ekki getað selt hluta af húsinu, ekki frekar en bændur að selja hluta af sínum fjárhúsum til að mæta sínu mótlæti. IKEA hafi heldur ekki talið sig geta fækkað starfsfólki í vægðarlausum niðurskurði, ekki frekar en að bændur gætu fækkað hjá sér í heimili þegar illa áraði. Hvatti hann bændur til að kafa djúpt, velta fyrir sér öllum möguleikum og velta við öllum steinum varðandi innkaup og rekstur til að stoppa blæðinguna. „Neyðin kennir naktri konu að spinna.“ Sagði Þórarinn að þegar búið væri að skera af allan óþarfa kostnað og hætta úthýsingu verkefna, þá hafi IKEA ákveðið að reyna að draga fleiri viðskiptavini inn í verslunina í gegnum veitingastaðinn. Fyrsta skrefið var að bjóða barnafólki upp á ókeypis mat, alls 500 þúsund skammta. Í framhaldinu var boðið upp á saltkjöt og baunir á túkall sem frægt varð. Þetta heppnaðist og aðsókn að versluninni og velta jókst hröðum skrefum. Nú er stefnan að kynna fólki þjóðlegar matarhefðir og bjóða fólki að kynnast að nýju íslenskum mat eins og fólk þekkti í gamla daga. Bendir Þórarinn á ríka hefð í þeim efnum í öðrum löndum svo Íslendingar eigi ekki að skammast sín fyrir sína hefð í matargerð. Það sé eitthvað sem útlendingar vilji líka ólmir kynna sér. Þeir væru ekki hingað komnir til að kaupa hamborgara, taco og pitsur. Sagðist hann vera tilbúinn að stíga dansinn með bændum, en spurði um leið hvað þeir vildu gera. Kjötkompaníið með íslenskar landbúnaðarafurðir í öndvegi Ísfirðingurinn og núverandi Hafn- firðingur, Jón Örn Stefánsson, eigandi Kjötkompanísins, lýsti því í sínu erindi hvað hann og hans starfsfólk hefur verið að gera. Þar á bæ er höfuðáherslan lögð á gæði og er þar enginn kjötbiti seldur úr húsi nema hann hafi fengið rétta meðhöndlun og fulla meyrnun. Er lambakjötið t.d. látið hanga í tvær vikur áður en það er sett í sölu. Nautakjötið er látið hanga enn lengur, eða allt að 3 til 5 vikur, við fullkomnar aðstæður í sérstökum kælum. Eigum besta lambakjöt í heimi „Það þarf ekkert að ræða það að við eigum besta lambakjöt í heimi. Nautakjötið er einnig frábært, en þar vantar stöðugleika í framleiðsluna. Við þurfum að geta keypt nautavöðva frá afurðastöðvunum sem flokkað er í gæðaflokka í samræmi við fituinnihald. Það er að mínu viti ekkert vit í því að vera með flott fitusprengt nautakjöt á sama verði og gjörsamlega fitusnautt kjöt. Þetta þarf að laga. Við þurfum meiri gæðastýringu. Við erum daglega á höttunum eftir fitusprengdu kjöti.“ Fyrirtækið hóf starfsemi 12. september 2009 og sagði Jón Örn að margir hafi haldið hann vera að ganga af göflunum að fara í slíkan rekstur í miðju hruninu. Sagðist hann hafa skynjað að þá hafi verið kjörið tækifæri á markaðnum til að opna „gourmet“ búð sem gerði íslenskum landbúnaðarafurðum hátt undir höfði. „Hugmyndafræðin var einfaldlega að búa til bestu kjötverslun landsins og þótt víðar væri leitað. Verslun þar sem viðskiptavinurinn gæti komið inn og fengið allt sem hann þyrfti til að búa til góða máltíð. Einnig að viðskiptavinurinn gæti farið út með mat sem stæðist kröfur bestu veitingahúsa,“ sagði Jón Örn. „Við vildum gera hlutina öðruvísi en gert var í stórmörkuðunum og með örðuvísi nálgun á mat og gera vöruna meira tilbúna fyrir neytandann. Við leggjum mikið upp úr að bjóða upp á hátt þjónustustig og elskum að geta upplýst kúnnann um hvaðan kjötið kemur.“ Komnir með útibú á Grandanum í Reykjavík „Frá fyrsta degi fundum við fyrir miklum meðbyr og sjáum það síðan glögglega með fastakúnnum sem fóru að koma til okkar reglulega. Fyrirtækið óx og dafnaði og 2013 opnuðum við 450 fermetra stóreldhús að Bæjarhrauni 10 í Hafnarfirði. Þetta jók fjölbreytni okkar til muna og gaf okkur gríðarlega tæknimöguleika,“ sagði Jón Örn. Þetta hafi einnig verið nauðsynlegt skref fyrir veisluþjónustuna sem fyrirtækið rekur samhliða versluninni. Auk þessa þá opnaði Kjötkompaníið nýja verslun að Grandagarði 29 í Reykjavík í nóvember 2017. Í sama mánuði opnaði fyrirtækið einnig nýja kjötvinnslu í 330 fermetra húsnæði að Bæjarhrauni 4 í Hafnarfirði. Vöruþróun er snar þáttur í starfseminni og er um 20% af kjötborðinu lagt undir það daglega að bjóða upp á nýjar vörur. Sumt gengur og annað ekki. „Aðalatriðið er að þora að prófa,“ sagði Jón Örn og nefndi það sem þeir kalla lambakonfekt (lambakóróna að hætti Kjötkompanísins) sem dæmi. Hann hafi sjálfur ekki haft nokkra trú á hugmynd Halla, kjötstjórans í fyrirtækinu, fyrir nokkrum árum, að skera kórónuna öðruvísi en hefðbundið var. Kjötstjórinn gaf sig ekki og nú selst lambakonfektið í bílförmum. Jón Örn hefur telur að virkja þurfi aukið samstarf á milli kjötiðnaðarmanna og kokka landsins varðandi vöruþróun. Hann hefur líka miklar áhyggjur af stöðu kjötiðnaðarnáms í landinu. Þar þurfi að fara í verulegt átak og telur hann að leita ætti í smiðju matreiðslumanna í þeim efnum, einnig í samvinnu við kjötverslanir landsins. Fullir bjartsýni „Við erum fullir bjartsýni á nýbyrjuðu ári og líst vel á framvinduna. Neyslumynstur þjóðarinnar hefur verið að breytast mjög mikið og er Wellington- steikin, sem við komum með á markað fyrir sjö árum, gott dæmi um það. Fyrst vorum við sigri hrósandi með 20 steikur seldar yfir jólin, en nú um jól, og áramót vorum við að selja vel yfir þrjú tonn. Við verðum því að vera á tánum og fylgjast með hvað kúnninn vill og vera sífellt tilbúnir að leita að nýjum lausnum. Jón Örn nefndi einnig gott samstarf við ítalska kjötsala og veitingamenn sem hafi tekið ástfóstri við Ísland. Nú væru Ítalirnir að gera tilraunir með salami úr íslensku lambakjöti í vöruþróunarverkefni með Kjötkompaníinu. Verður fyrsta varan úr þessari tilraun tilbúin til sölu á Ítalíu í apríl. „Ítalirnir eru hrikalega hrifnir af íslenska lambakjötinu,“ sagði Jón Örn Stefánsson. Öll erindin sem flutt voru á fundinum verð aðgengileg á næstunni á heimasíðu Bændablaðsins, bbl.is byko.is YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁLKLÆDDAR SAMLOKU- EININGAR SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA STEINULLARKJARNA. Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást með mismunandi yfirborði og litum að eigin vali. Helstu kostir þess að nota samlokueiningar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem skipta þarf út þak- og eða vegg jaklæðningum. BALEX yleiningar eru framleiddar undir ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum evrópskum stöðlum. Hafðu samband: bondi@byko.is YLEININGAR Gestum var boðið upp á gómsætar lambalokur að hætti IKEA, lambahambor- gara og niðursneitt lambakjöt frá Kjötkompaníinu ásamt grænmeti og sósum. eigum besta lambakjöt í heimi. Er hann m.a. kominn í samstarf við ítalska kjötiðnaðar- og veitingamenn, sem eru mjög hrifnir af kjötinu og eru að þróa vörur úr íslensku lambakjöti í samvinnu við Kjötkompaníið.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.