Bændablaðið - 11.01.2018, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Hönnunarvörumerkið WETLAND hlaut viðurkenningu Icelandic lamb:
Skarar fram úr í handverki og hönnun
úr sauðfjárafurðum
Á
dögunum veitti
Icelandic lamb
nokkrum aðilum
viðurkenningar sem
skarað hafa fram úr í
handverki og hönnun
úr sauðfjárafurðum.
Hönnunarmerkið
WETLAND var í
þeirra hópi, en það
er hönnunarmerki sem framleiðir
lífsstílsvörur undir norrænum
áhrifum og sérhæfir sig í vörum
úr íslensku lambaskinni.
Eigendur vörumerkisins
WETLAND eru Sigríður Sunneva
Vigfúsdóttir fatahönnuður,
Elísabet Jónsdóttir, grafískur
hönnuður, og Katrín Dóra
Þorsteinsdóttir MBA, rekstrar-
og viðskiptafræðingur.
Elísabet segir að WETLAND sé
nýtt íslenskt hönnunarmerki sem
framleiði vandaðar og stílhreinar
lífsstílsvörur undir norrænum
áhrifum og sérhæfir sig í hönnun á
vörum úr íslensku lambaskinni eða
svokölluðu mokkaskinni. „Snið
eru einföld og klassísk þar sem
innblásturs er leitað í fegurð og
dulúð íslenskrar náttúru. Hráefni
og hönnun haldast í hendur og
mynda tímalausa vöru sem endist
kynslóð fram af kynslóð,“ útskýrir
Elísabet.
Ullin og skinnið einstök hráefni
Auk WETLAND-samstarfsins
eru Elísabet og Sigríður Sunneva
með önnur verkefni í gangi.
„Ég hef um áratugaskeið rekið
hönnunarstúdíóið VOLKI,
ásamt meðeiganda mínum, Olgu
Hrafnsdóttur,“ segir Elísabet. „Þar
hefur fókusinn verið á hönnun
og framleiðslu á húsgögnum og
munum fyrir heimilið úr íslenskri
ull. Teppi og treflar eru helsta
framleiðsluvaran okkar þar sem
litir og geómetrísk mynstur ráða
ríkjum.
Ég er mjög hrifin af hráefnum
sem tengjast íslensku sauðkindinni
okkar. Ullin okkar og skinnið eru
einstök hráefni sem hefur óteljandi
möguleika. Ég tel að hönnunarvörur
úr þessum séríslensku hráefnum
geti orðið mjög eftirsóknarverðar
úti um allan heim.
Sunneva á vörumerkið
SUNNEVA DESIGN, þar sem
fókusinn er fyrst og fremst að
sérsauma flíkur úr íslensku
mokkaskinni. Hún byrjaði að
framleiða undir því vörumerki
árið 1996 og var Katrín um tíma
framkvæmdastjóri hjá henni,“
segir Elísabet.
Fyrst og fremst áhersla
á íslenska mokkaskinnnið
„Við Sunneva höfum áður unnið
saman,“ segir Elísabet. „Hún
frumsýndi línu á HönnunarMars
2015 þar sem hún notaði litríku
ullarefnin frá VOLKI í bland með
íslenska mokkaskinninu. Íslenska
ullin og skinnið er stórkostlegt saman
og er planið að gera meira af því að
vinna með þessi hráefni saman í nýja
vörumerkinu okkar, WETLAND.
Hjá WETLAND er áherslan fyrst
og fremst á íslenska mokkaskinnið
og þar koma Sunneva og Katrín
sterkar inn. Sunneva hefur margra ára
reynslu í hönnun yfirhafna úr íslensku
skinni og Katrín hefur rekið eigið
fyrirtæki þar sem hún framleiddi
töskur úr leðri og skinni. Fyrsta
vörulínan WETLAND samanstendur
af treflum, slám og töskum úr þessu
dásamlega hráefni.
Mitt hlutverk hjá WETLAND
hefur fyrst og fremst tengst grafískri
hönnun.
Við leggjum áherslu á sjálfbærni
vörunnar, það er að lambaskinnið
– sem er aðalhráefnið í línunni –
er sjálfbært hráefni þar sem það
er aukaafurð sem fellur til við
lambakjötsframleiðslu. Okkur finnst
mjög mikilvægt að fullnýta þetta
frábæra hráefni sem við berum svo
óendanlega mikla virðingu fyrir, með
því að hanna úr því metnaðarfulla
vörulínu.“
Öll framleiðsla enn innanlands
Að sögn Elísabetar er öll framleiðslan
enn á Íslandi. „Við viljum helst af
öllu halda áfram að framleiða allt
hér. Vörurnar eru saumaðar á litlum
saumastofum á höfuðborgarsvæðinu
og úti á landi.
Áhersla er lögð á að nýta hráefnið
sem best, engu er hent. Við teljum að
með vandaðri og sérstæðri hönnun
næst fram glæsileg og einföld flík
sem endist kynslóð fram af kynslóð,
umhverfisvæn úr náttúrulegum
efnum og hentar nútíma fagurkera
sem vill lifa í góðri sátt við
náttúruna.“
WETLAND-vörurnar er hægt að
kaupa á netinu í gegnum vefsíðuna
þeirra, wetland.is, en þar er
einnig að finna upplýsingar um
hönnunarmerkið og sýnishorn af
hönnun þeirra og framleiðslu. /smh
MENNING&LISTIR
Taskan Dimma úr smiðju WETLAND. Myndir / WETLAND