Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Töluvert var um fundi og
námskeið í hrossarækt haustið
2017, bæði hér innanlands og
utan enda lifum við í alþjóðlegu
umhverfi í íslenskri hrossarækt
og nauðsynlegt að rækta tengslin
við erlenda hestamenn.
Fyrst er að telja aðalfund Félags
hrossabænda sem haldin var í lok
október og árlega ráðstefnu Fagráðs í
hrossarækt sem haldin var 28. október.
Þar voru veittar viðurkenningar fyrir
framúrskarandi árangur í hrossarækt,
fimm hryssur hlutu heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi, 11 bú sem tilnefnd
höfðu verið sem hrossaræktarbú
ársins fengu viðurkenningar og
afar áhugaverðir fyrirlestrar um
nýjustu rannsóknarniðurstöður
fluttir. Í byrjun nóvember fóru þeir
Jón Baldur Lorange, verkefnastjóri
WorldFengs, og Þorvaldur
Kristjánsson, ábyrgðarmaður
hrossaræktar, á aðalfund sænska
Íslandshestafélagsins sem haldinn
var í Linköping. Jón Baldur hélt
erindi um sögu WorldFengs og þróun
hans til framtíðar en WorldFengur er
ein þungamiðjan í hinu alþjóðlega
samstarfi um íslenska hestinn.
Margt er þar spennandi á döfinni.
Þá hélt Þorvaldur erindi um
þróun ræktunarmarkmiðsins og
dómskalans, það er vinna sem er í
gangi þessa dagana og nauðsynlegt
að kynna hana sem víðast og fá
góðar hugmyndir. Þorvaldur steðjaði
einnig til Noregs í lok nóvember og
hélt þar námskeið um hrossarækt.
Í byrjun desember var svo haldinn
á Íslandi fundur og námskeið fyrir
ræktunarleiðtoga FEIF-landanna
sem var vel sóttur. Nauðsynlegt
er fyrir þennan hóp að hittast og
samræma vinnubrögð á milli landa
en einnig var boðið upp á fræðslu
um hrossarækt og stöðu þekkingar
á íslenska hestinum. Hið alþjóðlega
samstarf um ræktun íslenska hestsins
er afar verðmætt og í raun einstakt
á heimsvísu og nauðsynlegt fyrir
Ísland sem upprunaland hestsins að
halda vel utan um það.
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Hrossaræktarfundir haustið 2017
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Áttu hugmynd
þar sem mjólk kemur við sögu?
Hér er tækifæri til að fá stuðning.
Auðhumla og Matís ætla að vinna saman að því að styðja og styrkja frumkvöðla
til að þróa og koma nýjum hugmyndum byggðum á mjólk á framfæri.
Opið er fyrir allskonar hugmyndir og eina skilyrðið er að mjólkin gegni lykilhlutverki.
Kostur er ef hugmyndin stuðlar að jákvæðum umhverfisáhrifum og aukinni sjálfbærni.
Styrkir eru að hámarki 3 milljónir. Stuðningurinn felst í sérfræðiráðgjöf t.d. við að koma vöru á
markað, aðstoð við uppsetningu vinnsluferla, vöruþróun, umbúðahönnun, matvælaöryggi og
mælingar (t.d. geymsluþols-, næringargildis-, efnamælingar- og/eða lífvirknimælingar).
Einnig kemur til greina að standa fyrir námskeiðum fyrir smáframleiðendur
mjólkurafurða eða afla nýrrar þekkingar á annan hátt.
Það verður ekki greitt fyrir eigin vinnu umsækjanda, hráefni eða tækjakaup.
Gert er ráð fyrir að verkefnin hefjist í mars 2018 og séu til eins árs.
Umsóknafrestur er til 15. Janúar 2018.
Frekari upplýsingar á www.mimm.is og
www.facebook.com/mjolk.i.morgum.myndum
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
sp
ör
e
hf
.
Vor 1
Á vorin skartar Prag sínu allra fegursta. Borgin er afar
skemmtileg þar sem andi miðalda ræður ríkjum í bland við
blómstrandi listalíf. Í þessari ferð skoðum við t.d. Karlsbrúna
og Hradcanykastalann. Við byrjum ferðina í borginni Pilsen en
síðustu dagana njótum við í hinni fallegu og líflegu Regensburg.
24. - 31. mars
Fararstjóri: Pavel Manásek
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 179.700 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Páskaveisla í Prag