Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Sæt paprika og eldpipar
Paprika, chili, papriku- og
chiliduft er með mest notuðu
aldinum og kryddum í heiminum.
Uppruni plöntunnar er í Mið-
Ameríku. Ræktun á papriku
á Íslandi hófst um 1960.
Chilirúlletta er spennandi og
eldheitur partíleikur.
Samkvæmt heimildum FAOSTAD,
tölfræðideildar Matvæla- og land-
búnaðar stofnunar Sameinuðu
þjóðanna, er árleg heimsframleiðsla
á papriku, bæði sætri og sterkri,
um 34,6 milljón tonn. Kínverjar
eru langstærsti ræktandinn með
tæplega 50% framleiðslunnar, eða
um 16 milljón tonn. Mexíkó er í öðru
sæti, en langt á eftir Kínverjum, og
framleiðir 2,3 milljón tonn á ári.
Tyrkland framleiðir um 2,2 milljón
tonn, Indónesía 1,7 og Spánn um
milljón tonn. Næst þar á eftir eru
Bandaríkin, Nígería, Egyptaland og
Suður-Kórea, sem framleiða um það
bil milljón og niður í 400 þúsund
tonn af paprikum á ári.
Framleiðsla á paprikum og chili
hefur vaxið jafnt og þétt undanfarna
áratugi og gera spár ráð fyrir að
eftirspurn eftir aldininu eigi eftir að
halda áfram að aukast.
Eins og gefur að skilja eru Kína
og Mexíkó stærstu útflytjendur
papriku og chili í heiminum.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru ræktuð 190
tonn af papriku á Íslandi árið 2016 og
sama ár var innflutningur á ferskum
paprikum og chili rúmlega 1.500
tonn. Mest er flutt inn af papriku
og chili frá Spáni og Hollandi.
Ættkvíslin Capsicum
Milli 20 og 35 tegundir plantna
teljast til ættkvíslarinnar Capsicum
og eru fimm þeirra, C. annuum,
C. baccatum, C. chinense, C.
frutescens og C. pubescens,
algengastar í ræktun. Allar tegundir
innan ættkvíslarinnar frjóvgast
auðveldlega sín á milli og skil milli
þeirra því oft óljós.
Ættkvíslin tilheyrir náttskuggaætt
og paprikur því ættingjar eggaldins,
tóbaks, tómata og kartaflna.
C. frutescens er best þekkt sem
aldinið sem notað er í Tabascosósur.
C. baccatum er aðallega ræktað í
Suður-Ameríku og flest yrki
tegundarinnar mjög bragðsterk.
Tegundirnar C. chinense og C.
pubescens eru lítið þekktar utan
Mið- og Suður-Ameríku en aldin
þeirra seinni geta verið epla- eða
perulaga.
Mestur er fjölbreytileiki ræktaðra
papriku- og chiliplantna í Perú en
fjölbreytileiki villtra tegunda af
ættkvíslinni Capsicum í Bólivíu.
Paprikuplöntur eru fjölærar en oft
ræktaðar sem einærar. Plantan sem
er með trefjarætur getur hæglega
náð tveggja metra hæð og fær oft
runnalaga vöxt. Blöðin stakstæð,
fagurgræn, ílöng og heilrennd.
Blómin bjöllulaga, lítil og hvít og
einstaka sinnum bleik, vind- og
skordýra- og sjálffrjóvgandi.
Sú tegund sem er mest ræktuð
í heiminum og við þekkjum
best sem papriku er C. annuum.
Breytileiki innan tegundarinnar er
mikill hvað varðar stærð plantna og
ekki síst stærð, lögun, lit og bragð
aldinanna. Ólík yrki og afbrigði
skipta þúsundum og flokkast í sætar
og sterkar paprikur eða chili, eftir
því hversu bragðsterkt aldinið er.
Óþroskaðar paprikur eru grænar
og eilítið rammar á bragðið en verða
rauðar, gular, brúnar, fjólubláar eða
hvítar og sætari á bragðið við þroska.
Aldin paprikuplantna sem algengust
eru á markaði hér eru hnöttótt eða
eilítið aflöng og auk þeirra sjást
stundum í verslunum paprikur sem
er ílangar og oddmjóar.
Paprikur eru ríkar af C-vítamíni
og eru þroskuð aldin mun
vítamínríkari en græn og óþroskuð.
Þrátt fyrir að aldin papriku- og
chiliplantna flokkist almennt sem
grænmeti eru þau grasafræðilega
ber.
Löng ræktunarsaga
Paprikur koma upprunalega
frá Mexíkó, Mið-Ameríku og
norðurhluta Suður-Ameríku. Talið
er að Indíánar í Mið- og hluta Suður-
Ameríku hafi nýtt sér villtar paprikur
og chili til matar og lækninga allt frá
því sjö þúsund fyrir Krist og hafið
ræktun plöntunnar fimm þúsund
árum fyrir upphaf okkar tímatals.
Paprikur og chili eru því með elstu
ræktunarplöntun Suður- og Mið-
Ameríku.
Fjölmörg yrki papriku og chili
voru komin fram þegar Kólumbus
rambaði á Nýja heiminn og flutti með
sér fræ plöntunnar til Spánar árið
1493. Á sextándu öld skipti spænski
náttúrufræðingurinn Francisco
Hernández paprikum og chili í
sjö hópa eftir stærð, bragðstyrk,
vaxtartíma, lit og það hvernig þessir
þættir spiluðu saman.
Í fyrstu voru papriku- og
chiliplöntur aðallega skrautjurtir
í barrokkgörðum og á heimilum
HELSTU NYTJAPLÖNTUR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Paprikuuppskera í Austur-Evrópu.
Algengustu paprikur á markaði á Íslandi eru grænar, gular eða rauðar á litinn.
Paprika í þurrkun í Ungverjalandi.