Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
UTAN ÚR HEIMI
Í skugga drottins:
Af Guðs ráðstöfunum og náttúru-
legum harmi ungra kvenna
Vaka Helgafell gaf út undir
lok síðasta árs bókina Í
skugga drottins eftir Bjarna
Harðarson. Hér er á ferðinni
söguleg skáldsaga sem segir frá
leiguliðum Skálholtsstóls á 18.
öld. Aðalpersóna er húsfreyjan
María á Eiríksbakka sem leyfir
vorsultinum að tálga sig ár hvert
á meðan óguðlegur og skemmtinn
niðursetningur fyllir líf hennar af
sögum og þvættingi.
En yfir um og allt um kring er
Guðsótti. Óttinn við hinn reiða
Krist og eilífan helvítiseld. Við
sögu koma misgóðir Guðsmenn,
hljóðfæraleikarar, maurapúkar og
litskrúðug mannlífsflóra alþýðunnar.
B l a ð i ð
grípur hér
ofan í búsorgir
á Eiríksbakka
þegar kýrin
dregst upp af
sýkingu og
það er ekki
einu sinni til
salt svo bjarga
megi ketinu.
Nautpeningur
Hvernig á hún
að treina sér
eitthvað af besta
heyinu til vors.
Hún sem aldrei
hefur ráðið yfir
heyi. Hún á
nóg af því sem
Greipur hennar
hafði sagt að væri
hálfgerður ruddi.
En fái kýrin þetta
tvennt í hæfilegum
skömmtum ætti
hún að mjólka fram
undir sauðburð. Þá fengi Katrín litla
nóg og þau Jón syltu ekki heldur.
En nú eru ekki nema einhverjir
dagar í að kýrin geldist og kvígan
virðist reisa af sulti. Getur verið að
hún hafi farið svona gáleysislega
að þessu öllu þegar ósköpin gengu
yfir? Framan af sá strákurinn
Yngrijón um þessar gjafir og hann
kunni þetta vitaskuld.
Jón Skrifari hefur fyrir löngu
ráðlagt henni að skera kvíguna en
nú er það orðið of seint. Samt hefði
það engu breytt, kvígan fékk lítið
nema ruddann en var alla tíð léleg
við átið.
Henni verður oft hugsað til þess
sem Eldrijón sagði um gripina áður
en hann fór. Það vantar bara að
kýrnar drepist útaf hjá
henni og hún má þá vera fegin að
halda barninu.
Einn daginn ber þau að garði
Einar á Iðu og Höllu dóttur hans
eftir að fréttir hafa borist milli bæja
um ástandið á skepnunum.
- Ósköp er mér klén skemmtan
að komum Einars á Iðu hér og
Greipur ekki heima, nöldrar
kararmaðurinn en María biður hann
blessaðan að halda kjafti. Eftir að
síðustu kornskeppurnar átust upp
og ekki annað eftir en skemmdur
súr og örlítið af slepjuðu kjöti eiga
þau vinirnir sjaldnast aðrar gjafir
að gefa hvort öðru en geðvonsku
og köpuryrði.
Þau feðgin Einar á Iðu og Halla
fara beint í Eiríksbakkafjósið að
líta á kýrnar en María má til að
fara inn til að vera yfir barninu
sem er með svengdargráti. Það er
ólund yfir þeim öllum, Katrínu,
Skrifaranum og húsmóðurinni.
Konan lætur móðan mása um
það hvað hann Einar sé orðinn
utangátta og beygjulegur, hreint
eins og hann viti ekki hvað eigi
að gera við kvenmannsvæflu þó
hann sæi hana.
- Nema þá að ég sé orðin
svona ljót, tautar hún og snýr sér
á baðstofugólfinu þar sem hún
hefur arkað um fram og aftur með
sífrandi barnungann. Í sama bili
gengur hún í flasið á Iðubóndanum
og það slær á konuna roða og
vandræðagangi. En Einar lætur sem
hann hafi ekkert heyrt og snarar
sér innar í baðstofuna. Halla dóttir
hans á eftir.
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins kallar
eftir umsóknum 2018
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins er leiðandi stuðningsaðili
við þróunar- og nýsköpunarstarf landbúnaðarins og kallar
nú eftir umsóknum um styrki í eftirfarandi flokkum:
# Umsóknir um styrki til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar
á bújörðum á vegum bænda (B flokkur). Forgangs njóta þau
verkefni sem fela í sér verulega nýbreytni og sem líkleg eru til
að leiða af sér umtalsverða atvinnusköpun.
# Umsóknir um námsstyrki til nema í landbúnaðarvísindum (MSc.
eða PhD). Forgangs njóta þeir umsækjendur sem sýna fram á í
umsókn sinni að viðkomandi sé líklegur til að starfa að eflingu
landbúnaðar í náinni framtíð. Í því samhengi er horft bæði til
vals námslínu, sem og efnisvals lokaverkefna.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum
sem er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is. Eyðublöð
sjóðsins hafa nýlega verið uppfærð og ekki verður tekið við
umsóknum á eldri eyðublöðum. Mikilvægt er að vanda til
gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum
sem farið er fram á í umsóknareyðublöðunum.
Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2018 (póststimpill gildir).
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins, Hvanneyri. Sími 430-4300 / netfang fl@fl.is.
Styrkir þessir eru auglýstir með fyrirvara um fjárheimildir
Alþingis til sjóðsins fyrir árið 2018.
Tyson ætlar að
rækta kannabis
Mike Tyson, fyrrverandi
heimsmeistari í boxi, hefur
ákveðið að söðla rækilega um og
hefur nú uppi áform um að hefja
stórfellda kannabisrækt á búgarði
Kaliforníuríki.
Áform Tyson eru stórtæk og
er markmið hans að rækta eigið
kannabisyrki, TYSON OG sem
mun vera blendingur yrkjanna Mike
Tyson og OG Kush, á rúmlega sextán
hekturum. Tyson og samstarfsmenn
hans segja ræktunina mögulega þar
sem búið er að lögleiða kannabis í
Kaliforníu.
Í yfirlýsingu vegna ráðahagsins
segir að Tyson hafi lengi verið
stuðningsmaður þess að lögleiða
kannabis í lækningaskyni og til
einkanota og að hann vonist til að
búgarðurinn verði til að auka skilning
manna á gagnsemi plöntunnar.
Helmingur búgarðsins verður
lagður undir kannabisrækt og munu
garðyrkjumenn með sérþekkingu í
þeim fræðum sjá um ræktunina.
Hugmyndin er einnig að á
búgarðinum verði aðstaða fyrir
gesti til að skoða og fræðast um
framleiðsluna og gista, beri svo
við. Fyrsta skóflustungan að
húsakynnunum voru tekin fyrir
skömmu. /VH
Mike Tyson, fyrrverandi heimsmeistari í boxi, hefur uppi áform um stórtæka
kannabisræktun á búgarði í Kaliforníu.
MENNING&LISTIR
Bjarni Harðarson.
Bókin Þrautgóðir á raunastund
– 1975–2000 eftir Steinar J.
Lúðvíksson kom út nú fyrir
jólin.
Á árunum 1975–2000 fórust
384 Íslendingar í sjóslysum.
Mun fleirum var þó bjargað úr
sjávarháska, stundum eftir langa
og skelfilega atburðarás þar sem
líf sjómanna og björgunarmanna
hékk á bláþræði. Hér er fjallað
um níutíu af þeim sjóslysum
sem áttu sér stað á þessu
tímabili og má þar nefna þegar
Suðurlandið fórst langt úti í
hafi 1986, Helliseyjarslysið
1984, strand Pelagusar 1982,
hetjudáðina í Vöðlavík
1993 og frækilega björgun
þyrluáhafnar TF LÍF sem
bjargaði 39 mönnum úr
sjávarháska á nokkrum
dögum 1997.
Mörgum atburðanna lýsa menn
sem hlut áttu að
máli, ýmist sem björgunarmenn
eða þeir sem
bjargað var. Hér er á
ferðinni áhrifamikil
og oft átakanleg
samtíðarsaga, einn af
sviplegustu þáttum
Íslandssögunnar.
S t e i n a r J .
Lúðvíksson er höfundur
ritraðarinnar Þrautgóðir
á raunastund sem kom út
í nítján bindum á árunum
1969–1988 og naut
fádæma vinsælda. Hér
tekur hann upp þráðinn
þar sem frá var horfið og
fjallar um síðasta fjórðung
tuttugustu aldarinnar.
Þrautgóðir á rauna stund
er 369 blaðsíður að lengd.
Eyjólfur Jónsson braut
bókina um og Jón Ásgeir
hannaði kápu. Bókin er
prentuð í Finnlandi.
Átakanleg samtíðarsaga