Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
nú í fyrstu a.m.k., sinna um 50 kúm
og eru þrír saman með einn kúahóp
upp á um 150 mjólkandi kýr. Til
að taka svo við allri mjólk búsins
hefur verið komið fyrir tveimur
sílótönkum og tekur hver þeirra
40 þúsund lítra af mjólk. Stærstu
tankbílar Arla, sem búið leggur inn
mjólk hjá, taka 38 þúsund lítra og
má því segja að hér sé gert ráð fyrir
að bíllinn komi tómur og fari fullur
í hvert skipti.
Með frjálsa umferð
Líkt og algengast er í dag þá er
aðstaðan skipulögð þannig að
umferð kúnna er frjáls, þ.e. þær
geta sjálfar valið hvort eða hvenær
þær fara í mjaltaþjóninn. Eins og
alltaf er þá þarf að sækja nokkrar
kýr í mjaltir og er vinnuaðstaðan
fyrir það afar heppileg með sérstaka
biðstíu við mjaltaþjónana sem er
með sjálfvirkum hliðum og eftir
að hún er tóm, þ.e. búið að mjólka
biðkýrnar, opnast stían fyrir allar
aðrar kýr. Þá eru þeir mjaltaþjónar
sem sinna hverjum hópi kúa
samtengdir þannig að ef kýr kemur
inn í mjaltir og á t.d. að fara í
sæðingu eða einhverja athugun þá
vinna mjaltaþjónarnir saman og
senda kúna inn í eina sameiginlega
biðstíu. Þetta er gert með sérstökum
tengihliðum sem eru á milli allra
þriggja mjaltaþjónanna og virkar
þannig að þeir eru staðsettir hver
við endann á öðrum og ef t.d. kýr
kemur inn í mjaltaþjóninn lengst til
hægri og á að fara í biðstíu sem er
lengst til vinstri þá er hún send út
úr mjaltaþjóninum til hægri og inn
í mjaltaþjóninn í miðjunni og svo
áfram inn í mjaltaþjóninn lengst
til vinstri og þar út í biðstíu. Þetta
er afar heppilegt kerfi sem er nú
orðið víða í notkun og sparar mikla
vinnu.
Hagkvæmni stærðarinnar
Vallens gård er í dag með um tvö
þúsund nautgripi og 750 mjólkandi
en stefnt er að því að fjölga kúnum
upp í 900 á komandi árum.
Nautgripahluti búsins velti árið
2017 um 725 milljónum króna en
þeir feðgar eru einnig í skógrækt og
skilaði timbur- og kurlframleiðsla
búsins um 120 milljónum íslenskra
króna í veltu í fyrra. Þegar búið
hefur náð að fjölga kúnum má
reikna með því að velta búsins verði
í kringum einn milljarð íslenskra
króna og aðspurður um mikilvægi
stærðarinnar sagði Jan-Erik að það
fylgi því ótvíræður kostur að vera
með umfangsmikinn rekstur. Þeir
feðgar geti í krafti stærðarinnar gert
afar hagstæða innkaupasamninga.
Sem dæmi má nefna að búið kaupir
í dag kjarnfóður fyrir um 100
milljónir króna á ári svo dagljóst
er að búið er eftirsóknarverður
viðskiptavinur kjarnfóðursalans.
Þrír meginþættir borga
fjárfestinguna
Að sögn Jan-Erik áætla þeir feðgar
að þessi nýja fjárfesting skili sér
á grundvelli þriggja megin þátta:
með bættu heilbrigði gripanna,
auknum afurðum og lægri
launakostnaði. Búið er í dag með
15 manns í vinnu, 11 sem vinni með
gripina og 4 sem eru vélamenn,
auk þeirra Jan-Erik og Henrik
og er ekki áætlað að bæta við
mannskapinn þrátt fyrir að kúnum
muni fjölga og afurðirnar aukast.
Nú þegar, nokkrum mánuðum eftir
að mjaltaþjónarnir voru teknir í
notkun, segir Jan-Erik að allt
bendi til þess að áætlun þeirra
gangi upp og að það muni ekki
taka mörg ár fyrir fjárfestinguna
að skila sér. Þannig hafi t.d. dagleg
mjólkurframleiðsla aukist úr 33
kílóum mjólkur á dag á hverja
kú í 37 kíló við það að skipta um
mjaltatæknina enda eru kýrnar nú
mjólkaðar tæplega þrisvar á dag
að jafnaði í stað tvisvar.
Mikilvægast að horfa í
kostnaðinn
En hvernig er hægt að byggja
svona hratt upp á tiltölulega fáum
árum? Jú, með því að horfa alltaf í
kostnaðinn, segir Jan-Erik. Maður
eigi ekki að horfa á tekjur búsins
heldur kostnaðarhliðina og vera
sífellt að leita að leiðum til þess
að spara. Með því móti næst aukin
framlegð og hagkvæmni. Í hvert
skipti sem afurðastöðvaverðið
hefur lækkað hafa þeir feðgar
lækkað markvisst kostnað á sama
tíma til þess að mæta lækkuninni.
Þá er afar mikilvægt að gera sér
vel grein fyrir því að örfáar krónur
til eða frá geta skipt sköpum fyrir
afkomu búsins. T.d. þá kaupi búið
inn um 400 tonn af áburði árlega
og ef tonnið hækkar um 1 þúsund
krónur eru strax horfnar 400
þúsund krónur út úr rekstrinum.
Auðhumla svf (AH) óskar að ráða ráðgjafa
í mjólkureftirlit með aðstöðu á Akureyri.
Viðkomandi yrði aðili að öflugu
þverfaglegu teymi ráðgjafa í
mjólkureftirliti AH sem hafa aðsetur á
nokkrum stöðum á landinu. Um er að
ræða fullt starf.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jarle
Reiersen verkefnastjóri í síma 854-6006
eða jarle@audhumla.is
Með umsókninni þarf að fylgja
starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknir sendist á Jarle@audhumla.is
Umsóknarfrestur
er til og með 26. janúar 2018
RÁÐGJAFI -
MJÓLKUREFTIRLIT
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Ráðgjafi fylgist m.a. með gæðum
innviktaðar mjólkur, sinnir eftirfylgni með
sýnatökum, gæðaskoðunum og ráðgjöf
til mjólkurframleiðenda.
Menntun og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði mjólkurfræði,
búvísinda eða sambærilegt.
• Haldgóð þekking á hreinlæti, mjöltum
og mjaltatækni.
• Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri.
Æskilegt er að hafa góða þekkingu á
öðru norðurlandamáli og ensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Þjónustulund og sveigjanleiki.
• Sjálfstæð vinnubrögð og metnaður í
starfi.
• Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
Samvinnufélag mjólkurframleiðenda
Auðhumla er samvinnufélag í eigu
um 550 mjólkurframleiðenda um land
allt. Auðhumla hefur það hlutverk að
taka við mjólk frá félagsmönnum
sínum og umbreyta í mjólkurafurðir
sem eru seldar á markaði á Íslandi og
erlendis. Það gerir félagið með
aðkomu sinni og eign í
Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er
móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Starfssvæðið
Ísafjörður Akureyri
Búðardalur
Reykjavík
Selfoss
Egilsstaðir
Starfssvæði Auðhumlu
vinna við mjaltaþjónana þá er það einkar aðgengilegt eins og sjá má.
Í hverjum hóp, sem mjólkaður er af þremur mjaltaþjónum, er sérstök biðstía við einn mjaltaþjóninn fyrir kýr sem þarf
að sækja til mjalta. Þegar stían er tóm opnast hliðgrindin sjálfkrafa og þar með geta aðrar kýr nýtt mjaltaþjóninn.
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akureyri | Borgarnes| Egilsstaðir| Ísafjörður| Reykjanesbær| Sauðárkrókur | Selfoss
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is