Bændablaðið - 11.01.2018, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Í mörgum tilfellum er fólk lítið
að hugsa um öryggi þegar verið
er að kaupa nýjan bíl. Eftir að
hafa prófað um 20 bíla á síðasta
ári koma upp nokkur atriði sem
mætti huga að þegar verið er að
kaupa nýjan bíl sem meiningin
er að eiga næstu fimm til tíu árin.
Fyrst vil ég nefna blind horns-
vara, en svoleiðis öryggisbúnaður
er sérlega góður fyrir þá sem
sjaldan eru í mikilli umferð.
Blindhornsvarinn er kominn í
marga nýja bíla og er það mín
skoðun að svoleiðis útbúnaður
ætti að vera í öllum bílum. Einnig
er gott að vera með akreinalesara,
sérstaklega fyrir þá sem eru að keyra
langar vegalengdir, en gallinn við
akreinalesarana er ekki búnaðurinn
sjálfur. Vandamál akreinalesaranna
er slæm merking vega og viðhald,
en þar sem vantar vegmerkingar
er búnaðurinn ekki að virka sem
skyldi og því lítið gagn í þessum
annars ágæta öryggisbúnaði.
Þægindi er alltaf eitthvað sem er
vinsælt
Að líða vel við akstur er nauðsynlegt,
en í flestum bílum eru sætishitarar,
en í of fáum er kæling í sætunum
sem er afar þægilegt, sérstaklega í
langkeyrslum.
Margir bílar eru komnir með
hitara í stýrið, en svoleiðis útbúnaður
finnst mér hreint æðislegur á köldum
vetrardögum og ef maður kemur inn
í bílinn blautur um hendur á miklum
rigningardögum.
Þeir sem lesa reglulega þessar
greinar mínar hafa eflaust tekið eftir
því að ég lasta alltaf varadekkslausa
bíla enda er vegakerfi Íslands ekki
boðlegt fyrir varadekkslausan bíl.
Það er þó smá klór í bakkann að vera
með varadekk
það sem ég kalla
„aumingja“ sem
er yfirleitt dekk
sem ekki má aka
á hraðar en 80 km
hraða (hef líka séð
„aumingja“ sem
má ekki fara yfir
60).
Eru
rafmagnsbílar
lausn eða
vandamál?
Um 3% af
íslenskri mengun
kemur frá bílaflota
landsmanna, en
vissulega er leitun
að stað þar sem
hleðslurafmagnið
e r e i n s
um hverfisvænt og hér. Síðustu þrjá
mánuði 2017 var þriðji hver seldur
bíll rafmagnsbíll, en vandamálið
við rafmagnsbíla er að flestir þeirra
eru varadekkslausir. Hins vegar
virðist eins og að þöggun sé um
hversu skaðlegir þeir eru í raun
bæði í framleiðslu
á rafhlöðu og
við eyðingu á
rafhlöðunni þegar
skipta þarf henni út
fyrir nýja. Ég hef
lesið tvær greinar
um förgun og gerð
b í l a r a fh laðna .
Í annarri grein-
inni var sagt að
förgunar mengunin
væri svipuð og
ársmengun frá
v e n j u l e g u m
meðalbíl. Í hinni
var miðað við allt
mengunarferli á
meðal rafbíls frá
Japan sem kominn
var til USA og með
skipaflutningi. Við
smíði og förgun
jafngilti mengunin
V8 350 bensínvél á
2/3 snúning í heilt
ár. Frekar sláandi
fullyrðingar, en
vert umhugs unar-
efni.
Stutt yfirlit um
vænlegustu
bílana sem ég
prófaði 2017
Það er enginn vafi
á að brúklegasti
bíllinn sem ég
prófaði á síðasta
ári er RAM 3500
pallbíllinn, en
hann hefur allt
sem brúklegur
bíll þarf að bera.
Hann er rúmgóður, kraftmikill og
með mikið notkunargildi.
Af fólksbílum eru hagstæðustu
kaupin í Dacia Logan sem
fjölskyldubíl til að komast frá a til b,
bíllinn er með mikið farangursrými,
sparneytinn á eldsneyti og kostar
lítið í innkaupum.
Af jeppum voru tveir sem stóðu
upp úr: Jaguar F-Pace er einhver
kraftmesti og skemmtilegasti
jepplingur sem ég hef ekið og
verðið kom mér á óvart. Hinn
jeppinn var 33" breyttur Ssang Yong
Rexton á ótrúlega góðu verði með
breytingu. Jeppi sem er fullkomlega
samkeppnisfær við aðra jeppa.
Erfitt að velja rafmagnsbíl vegna
mikils fjölda
Þeir rafmagnsbílar sem ég prófaði
á síðasta ári voru allir með annars
vegar rafmagn eða venjulega
mótora. Flestir af þessum bílum
gáfu þann möguleika að vera
með báðar vélarnar í notkun í
einu sem orkugjafa. Án efa bar af
kraftmesti og sportlegasti bíllinn,
VW Passat Variant GTE Premium,
sem skilaði með báðar vélarnar í
einu 217 hestöflum. Hins vegar
var sá rafmagns/bensínbíll sem
mér kom mest á óvart, Mini.
Ótrúlega stöðugur fjórhjóladrifinn
bíll sem var hreinn unaður að
keyra. Það skemmtilega við þann
bíl var að rafmagnsmótorinn sá
um afturhjólin og bensínmótorinn
um framhjól. Saman unnu þessi
drif svo vel saman að það var
hreint með ólíkindum. Hef sjaldan
skemmt mér svona vel á bíl í
fljúgandi hálku.
„Rúsínan í pylsuendanum“
Einn var sá bíll sem kom mér á óvart
og er örugglega vanmetinn sem bíll
í snjó og hálku. Það var Fiat Panda
Cross. Á dekkjunum sem voru
undir honum þegar ég prófaði hann,
komst ég ótrúlega mikið í snjó. Ef
maður myndi setja minni felgur á
bílinn, breiðari og hærri dekk með
nöglum væri eflaust hægt að nota
hann við sambærilegar aðstæður og
breyttan jeppa á 35" dekkjum með
lágmarkslofti í dekkjunum til að fá
flot og grip í snjó og hálku.
Hafa ber í huga að ofangreint
eru mínar persónulegu skoðanir
og eflaust væri listinn öðruvísi
hjá mismunandi fólki sem myndi
prófa þessa sömu bíla og ég prófaði
á árinu 2017.
P próf ð 2017:gt t áe ór es nul ma u bíum lum
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Ram 3500 Limited, án efa brúklegasti bíllinn sem ég prófaði á síðasta ári. Myndir / HLJ Ssang Yong Rexton hækkaður um 115 mm á ótrúlega góðu verði með breytingu. Jeppi sem er
fullkomlega samkeppnisfær við aðra jeppa.
Jaguar F-Pace er einhver kraftmesti og skemmtilegasti jepplingur sem ég hef ekið og verðið
kom mér á óvart.
Blindhornsvari er kominn í marga
bíla og ætti að vera í öllum bílum.
Fiat Panda Cross 4x4 kom mér á óvart og er örugglega vanmetinn sem bíll
í snjó og hálku.
unaður að keyra.
VW Passat Variant GTE Premium er án efa kraftmesti og sportlegasti tvinn-rafbíllinn.