Bændablaðið - 11.01.2018, Side 47

Bændablaðið - 11.01.2018, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 Þegar James Bond-myndin var tekin upp á ísilögðu Jökulsárlóni var ísinn ekki mjög þykkur, en nógu þykkur til að hægt var að mynda og yfir 40 manns fengu vinnu við að gera skemmtilega hluti. Í frásögn Sigurjóns Rist af vatnamælingaferð að vetri, sem gekk brösótt var tæpt teflt og mistök urðu líka. Var notuð þessi regla að þykkt íssins í sentímetrum í þriðja veldi gaf burðarþol hans í kílógrömmum, t.d. er burðarþol á 10 sentímetra þykkum ís 1000 kg samkvæmt þessari reglu. Þetta á við sléttan og sprungulausan ís en sé hann sprunginn helmingast burðarþolið. Of oft sér maður fréttir af óhöppum út af veikum ís Aldrei hef ég verið mikill hestamaður, en mér hefur verið sagt af hestamanni að að ríða út á ísilögðu vatni sé með því skemmtilegasta í hestasportinu. Enda finnst mér alltaf flottustu myndir sem ég hef séð af hestum myndir sem teknar eru af reiðmönnum á ís. Það eina sem maður þarf að passa vel upp á er að ísinn þoli þann þunga sem á honum er. Oft hefur verið vitnað í óhapp þegar nokkrir hestar fóru niður um ís á Reykjavíkurtjörn þegar ísinn brast undan þunga hestanna. Í því tilfelli var ísinn ekki nema um 10 cm þykkur og þegar svo margir hestar voru saman hlið við hlið fór sem fór. Hefði verið nægilegt burðarþol fyrir 2–3 hesta hlið við hlið. Í þessu tilfelli varð engum meint af, en of oft hefur veikur ís verið orsök harmleiks. Til að vera viss um að ísinn þoli þungann sem á hann er lagður er gott að bora í hann á nokkrum stöðum og á meðfylgjandi mynd er ágætis viðmiðunartafla um styrk í mismunandi þykkum ís. Á að vera sjálfsagður hlutur að vara við hættum Á mörgum vötnum eru þekktir staðir þar sem ísinn er þynnri en annars staðar eða jafnvel vakir. Viti menn af svoleiðis á að vera sjálfsagður hlutur að vara við veikum ís til þeirra sem hyggjast fara út á ísinn. Förum varlega á ísnum og látum ekki óvarfærni skemma þá miklu skemmtun sem ísilögð vötn geta veitt manni. Góða veiði og skemmtun. KROSSGÁTA Bændablaðsins ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is LÖGMÁL ÁRS-GAMALL FÁLMA KK NAFN UPPNÁM MISBJÓÐA RÓMVERSK TALA VALD- SVÆÐI VONDUR RÖÐULL YFIRHÖFN HÆTTA VESÆLAR NÝJA SMÁBITI PRUFA FJÖLDI ÓLÆTI ÝKJUR TRÉ KVIKGRÓANDI DEYFA ÁFLOGUM STÓRT VÍN FLAN DÚKUR DÖGG HNUSA TUNGU-MÁL SAFNA SAMAN RISPAN VELDIS SPIL SVÖRÐ BEKENNA SVART- LIST NEYTA BRAK GLUMDI SNÆDDI KLAKA ÓNÁÐA GUFU- HREINSA AUÐUR STOPP HARLAOF LÍTIÐ STÆKKAÐI DANA LÆRA MJAKA ÁN SMÁU TALA FRÁ BEITA MJÓLKUR- AFURÐ EYJA Í EVRÓPU TVEIR EINS SAMTÖKFORMAST RÍKI Í ARABÍU VINNA AÐ TEMURÁREYNSLA MÁTTLAUS 75 Ef passað er upp á að kanna þykktina á ísnum þá á að vera auðvelt að meta samkvæmt teikningunni hversu mikinn þunga hann þolir. Þessir tveir voru búnir að koma sér vel fyrir á 30 cm þykkum ísnum á Hafravatni á fyrstu helgi nýja ársins. Heiðadeild Veiðifélags Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í silungsveiði á vatnasvæði veiðifélagsins sem er Blöndulón og þær þverár sem falla í lónið og Blöndu ofan Blöndustíflu. Annars vegar svæði 1, (austan Blöndu) sem er hluti af Blöndulóni ásamt Galtará, Haugakvísl, Ströngukvísl og Herjólfslæk. Hins vegar svæði 2 (vestan Blöndu) sem er hluti af Blöndulóni ásamt Kúlukvísl, Seyðisá, Beljanda, Þegjanda og Stóralæk. Einnig er hægt er að gera tilboð í vatnasvæðið í heild sinni. Ekki er um magnveiði að ræða á svæðinu, heldur einstaka upplifun í ósnortnu og friðsömu umhverfi, þar sem góðra umgengni og veiðisiða er krafist, svo sem að sleppa öllum ósárum fiski. Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðsfrestur er til 31. janúar 2018 og skal skila tilboðum til formanns félagsins, Ægis Sigurgeirssonar, sem veitir allar nánari upplýsingar. Netfang Ægis er stekkjardalur@simnet.is og síminn 896 6011. Stjórnin. ÚTBOÐ Á VEIÐIRÉTTI Á VATNASVÆÐI BLÖNDU FRAMAN BLÖNDVIRKJUNAR

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.