Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 7
LÍF&STARF
Á dögunum voru að snöltra hér systir mín, Rósa Sigrún, og maki hennar, Páll Ásgeir Ásgeirsson,
borinn Vestfirðingur frá Þúfum. Páll er
liðugur hagyrðingur og afar vel skrifandi
bókahöfundur. Þau hjúin voru þessa daga
hér öll á iði, ýmist hjólandi eða hlaupandi
um vegi og vegleysur. Við Petra reyndum
að gera vel við þau í mat, og ekki síður
nesta þau ögn til suðurferðar að afloknu
þeirra randi. Ekki höfðu þau lengi ekið
til síns heima í Reykjavík, þegar tóku að
strjálast í símann vísur frá Páli Ásgeiri:
Bunar sviti og bólgna tær
er bratt ég hjóla drjúgum,
feginn verð að fékk í gær
faðm af reyktum bjúgum.
Sárt er hungur sverfur að
og sultarólin trosnar,
þá geymi ég á góðum stað
gæðabollur frosnar.
Af hungurvofu hef ég beyg
og hennar grönnu leggjum,
oft því sýp í einum teyg
úr átta hænueggjum.
Þegar vaxa vindaský
og veður fer að kárna,
þá er best að bíta í
bollurnar frá Árna.
Ekki dylst það dauðum, að vænt þykir Magnúsi
Halldórssyni á Hvolsvelli um, þegar hans er
getið í þessum þáttum. Vel get ég unað honum
athygli, enda fullt af vísum hans í símtæki
mínu. Fyrir nokkrum misserum var ég á ferð
um búsvæði Magnúsar á Suðurlandi. Missti ég
þar loft úr hjólbarða bifreiðar minnar. Ekkert
var því nærtækara en að hringja í Magnús og
biðja hann bónar til bjargar loftleysi mínu.
Magnús tók vel erindi mínu:
Hringir sosum ekki oft
okkur til að kæta,
en að skorti Árna loft
undrum þó mun sæta.
Vinátta þín væn og hlý
vart mun aðra þvinga.
Vel ég þoli vopnagný
og vindgang Þingeyinga.
Þó að ekki teljist ég mikilvirkur á
„fésbókarsíðum“, þá hef ég þó eignast þar
nokkra verðmæta vini. Þann vinahóp gistir
nú Ari læknir Jóhannesson á Akranesi.
Ari er ljómandi hagyrðingur og hefur
a.m.k. gefið út eina ljóðabók, „Öskudagar“.
Vinafundi okkar á „fési“ fagnaði Ari með
þessari verðmætu vísu:
Vart er ógnað vísnakyni;
vex og dafnar andans þing
ef ég fæ að eiga að vini
Árna Geirhjört hagyrðing.
Pétur læknir Pétursson á Akureyri las
vitnisburð Ara, en var þó mun hófstilltari
í umsögn sinni:
Manninn prýða margt ég tel,
og mun því flíka,
að Árni karlinn yrkir vel,
- en illa líka.
Nú er ögn tekið að hausta, og sér þess stað á
landi og lauftrjám. Einnig er kominn haustblær
á hugverk Ingólfs Ómars Ármannssonar.
Hann sendi nýverið þessar snjöllu vísur:
Hausts í skartið foldin fer,
fölva klæðist gráum.
Niðamyrkur úti er
andar kul að stráum.
Emja stormar, ýfast sund,
unn á skerjum brýtur.
Sölnuð hníga grös á grund,
grána fjallastrýtur.
Haustdögum fylgja svo göngur og réttir.
Ómar er kominn með hugann þangað:
Seggja heyri söngvaklið,
són með gáska léttum.
Glaðir stútinn glingra við
gangnamenn í réttum.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Það var höfundur Yarm sem fékk titilinn handverksmaður ársins 2018, en það er Erla Svava Sigurðardóttir sem hannar og framleiðir undir
merkinu Yarm.
Fjölmenni á Handverkshátíð 2018:
Höfundur Yarm fékk titilinn
handverksmaður ársins
Fjölmenni sótti árlega Handverkshátíð sem
haldin var á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit
í ágúst.
Líkt og undanfarin
ár var tilkynnt um þrjá
verðlaunahafa, en
verðlaun eru jafnan
veitt fyrir fallegasta
básinn, nýliða ársins og
handverksmann ársins.
Tilnefndir fyrir
fallegasta básinn voru:
Dottir, Vagg og velta,
og Aldörk og var það
Aldörk sem stóð uppi sem
verðlaunahafi. Tilnefndir
sem nýliði ársins voru:
Aldörk, Yarm og Íslenskir
leirfuglar og voru það
Íslenskir leirfuglar sem
hlutu verðlaunin. Að lokum
var það handverksmaður
ársins, tilnefndir voru:
Þórdís Jónsdóttir –
handbróderaðir púðar, Ásta
Bára og Ragney og Yarm.
Það var Yarm sem fékk
titilinn handverksmaður
ársins 2018.
Í dómnefnd voru
Bryndís Símonardóttir,
Einar Gíslason og
Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir.
Verðlaunagripirnir voru glæsileg eldsmíðuð
pitsahjól, smíðuð af eldsmiðnum Beate
Stormo, sem er búsett í Eyjafirði.
Félagið Beint frá býli var þátttakandi á
Bændamarkaði
Handverks hátíðar,
félagið var stofnað
árið 2008 og heldur
því upp á tíu ára
afmæli sitt á árinu.
Meginmarkmið félagsins er að tryggja
neytendum gæðavörur þar sem öryggi og
rekjanleiki vöru er í fyrirrúmi.
Glímusamband Íslands sýndi gestum
Handverkshátíðarinnar helstu tökin í
glímu og bauð svo fólki að prufa. Sýning
sambandsins þótti stórglæsileg og bauðst
gestum að fylgjast með flottum töktum.
Búsaga, búnaðarsögusafn tók þátt eins og
fyrri ár. Þema sýningar Búsögu var heyskapur
í hundrað ár. Á sýningunni gaf að líta amboð,
heyvinnuvélar fyrir hest og síðan dráttarvélar
og þróun búnaðar fyrir heyskap á síðustu öld
og fram á þessa. Mjög margir komu að skoða
vélarnar og keyptu dagatal Búsögu 2019 sem
prýtt er fjölda mynda af búvélum. /MÞÞ
Íslenskir leirfuglar hlutu verðlaunin Nýliði ársins.
Alda Erlingsdóttir hjá Aldörk hlaut verðlau
n fyrir besta bás sýningarinnar.
Þjóðbúningum var gert hátt undir höfði á
Handverkssýningunni í ár og allir sem mættu
í þjóðbúning á hátíðina þurftu ekki að greiða
aðgangseyri.
MÆLT AF
MUNNI FRAM