Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 20188
FRÉTTIR
Verðlagsnefnd búvara:
Hækkun á heildsöluverði
mjólkur og mjólkurafurða
Verðlagsnefnd búvara hefur
tekið ákvörðun um
að heildsöluverð á
mjólk og mjólkur-
afurðum sem
nefndin verð-
leggur, hækki
um 4,86% þann
1. septem ber nk.,
nema smjör sem
hækkar um 15%.
Vegin hækkun
heildsöluverðs er
5,30%. Tilkynnt er um þetta
á vef atvinnuvega ráðuneytisins.
Lágmarksverð mjólkur til bænda
hækkar um 3,52%, úr 87,40 kr. í
90,48 kr.
Í rökstuðningi verðlagsnefndar
er sagt að verðhækkunin sé til
komin vegna kostnaðarhækkana við
framleiðslu og vinnslu mjólkur.
Síðasta verðbreyting
var gerð 1. janúar
2017. Frá síðustu
v e r ð l a g n i n g u
hafa gjaldaliðir
í verðlags grund-
velli kúabús
hækkað um
3,60% og reiknuð
hækkun vinnslu- og
dreifingarkostnaðar
afurðastöðva hækkað
um 7,14%. Nefndin samþykkti
þessa niðurstöðu en annar fulltrúi
velferðarráðherra greiddi atkvæði
gegn henni.
Sveitarfélög landsins eiga
von á glaðningi á næstu
dögum frá NTÍ (Náttúru-
ham faratryggingu Íslands),
áður Viðlaga tryggingu,
í tilefni laga breytinga og
nýs nafns stofnunarinnar.
Um er að ræða bókina
Náttúruvá á Íslandi sem
kom út fyrir nokkrum árum
á vegum stofnunarinnar og
Háskólaútgáfunnar.
„Við vorum að ljúka við
að pakka og koma í póst
rúmlega 70 eintökum af þessari
gríðarlegu efnismiklu bók sem
vegur heil 3 kg, enda inniheldur
hún mikinn fróðleik um eldgos
og jarðskjálfta á Íslandi
og nýtist bæði sem
fræði- og uppsláttarrit,“
segir Hulda Ragn-
heiður Árnadóttir, fram-
kvæmda stjóri NTÍ.
Margir hels tu
sérfræðingar landsins á
sviði náttúruvár nærri
60 manns, lögðu til efni
í bókina sem er tæplega
800 síður með um
1.000 ljósmyndum og
skýringarmyndum. Þar
er fjallað ítarlega um rannsóknir,
eldvirkni og jarðskjálfta sem valdið
hafa Íslendingum þungum búsifjum
gegnum tíðina.
Vaxandi eftirspurn hefur verið
eftir vistvænum umbúðum fyrir
matvörur í stað plastumbúða
sem tröllriðið hafa markaðnum
á undanförnum árum. Nú hefur
fyrirtækið 1000 ára sveitaþorp
ehf. hafið markaðssetningu
á kartöflum úr Þykkvabæ
í smekklega hönnuðum
bréfpokum.
Ársæll Markússon er
hugmyndasmiðurinn á bak við
þetta fyrirtæki, en hann býr á
bænum Hákoti í Þykkvabæ þar sem
faðir hans, Markús Ársælsson, og
Halldóra Hafsteinsdóttir, móðir
hans, hafa verið kartöflubændur í
yfir 30 ár. Hann segir að sér hafi
sviðið að sjá allt það plast sem notað
er við pökkun á kartöflum auk þess
sem þar fer mikið plast til spillis.
„Vegna þessarar
sóunar á plasti fór ég
að hugsa hvort ekki
væri hægt að gera þetta
á umhverfisvænni hátt.
Ég er síðan búinn að vera
með umbúðirnar í þróun
og vinnslu í um hálft ár.
Pokarnir eru framleiddir
fyrir okkur í Danmörku og
hafa samskiptin við Danina
snúist talsvert um að gæði
pokanna séu nægilega mikil.
Ég kaupi kartöflur
af foreldrum mínum og
kartöflubændum hér í kring.
Síðan er þeim pakkað í höndum,
pokarnir vigtaðir og saumað fyrir
með handvirkum saumavélum.
Ef þetta gengur upp þá vonast
maður til að geta keypt
aðeins stærri pökkunarvélar
sem keppt geti við
plastpokapökkunina.
Sem stendur eru
kartöflurnar frá 1000 ára
sveitaþorpi eingöngu í boði
í öllum Krónubúðunum,
en ég hef fullan áhuga á
að útvíkka starfsemina.
Viðtökurnar hafa verið
mjög fínar, enda hittir
markaðssetningin á þessu
fyrir tilviljun á plastlausan
september,“ segir Ársæll
Markússon. /HKr.
Fyrirtækið 1000 ára sveitaþorp ehf.
Með kartöflur úr Þykkvabæ á markað
í vistvænum pappírsumbúðum
Ársæll Markússon m Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Náttúruhamfaratrygging Íslands:
Gefur sveitarfélögum bókina
Náttúruvá á Íslandi
Landbúnaðarsýningin 2018:
Undirbúningur gengur vel og útlit fyrir mikla aðsókn
– Uppselt á úti- og innisvæði, segir Ólafur M. Jóhannesson sýningarhaldari
Undirbúningur fyrir stórsýninguna
„Íslenskur landbúnaður 2018“
í Laugardal í Reykjavík dagana
12.–14. október stendur nú
sem hæst. Að sögn Ólafs M.
Jóhannessonar sýningarhaldara
er uppselt á sýningarsvæðið en
um 90 aðilar hafa pantað bása á
inni- og útisvæði. Hann segir að
fjölbreytnin verði í fyrirrúmi og
að svona stór og fjölbreytt sýning
muni lyfta upp ímynd íslensks
landbúnaðar.
„Ég er handviss um að sýningin
mun vekja mikla athygli og gagnast
landbúnaðinum í heild. Þetta er
atvinnugrein sem byggir á gömlum
merg en er jafnframt ákaflega mikils
virði fyrir land og þjóð til framtíðar
litið. Landbúnaður spannar allt landið
og er afar mikilvægur í samfélaginu.
Sjálfur er ég búinn að vera viðloðandi
sýningarhald í 24 ár og halda ótal
sýningar, bæði sjávarútvegs-,
veiði- og hótelsýningar, mikið
af heilsusýningum og fleiru. Það
kom mér satt að segja á óvart hvað
landbúnaðargeirinn er fjölbreyttur og
stór. Bændur eru að fást við marga
hluti sem er aðdáunarvert. Sjálfur held
ég að greinin muni eflast í framtíðinni
því að ungt fólk sækir í fjölbreytnina.
Íslenskur landbúnaður er síður en
svo einhæfur og getur byggt á sínu
góða orðspori sem felst í hreinum og
hollum framleiðsluvörum.“
Tæki, rekstrarvörur, þjónusta og
matur
Ólafur segir að gestir geti búist
við fjölbreyttri sýningu þar sem
fyrirtæki, félög og stofnanir kynni
sínar áherslur. „Það verður mikið
af stórum og litlum tækjum – allar
tegundir í raun sem sýndar verða
á úti- og innisvæði. Þarna verða
allir helstu vélasalar landsins og
þjónustufyrirtæki landbúnaðarins.
Mikið af ýmsum rekstrarvörum
verða kynntar og ekki síst framleiðsla
bænda. Matvæla- og afurðafyrirtæki
sýna það sem þau hafa fram að
færa. Þá eru fyrirtæki sem tengjast
ferðaþjónustu og húsbyggingum
ýmiss konar áberandi ásamt fleirum.“
Fyrirlestrar um landbúnað
Í hliðarsal í Laugardalshöllinni verða
haldnir fyrirlestrar um allt milli
himins og jarðar tengt landbúnaði,
bæði fyrir lærða og leikna. „Það
verða á annan tug fyrirlestra
sem verða fluttir á laugardag og
sunnudag. Það verður t.d. fjallað
um smávirkjanir í landbúnaði, nýja
holdanautakynið, fóðrun, skógrækt,
votlendi og rannsóknir í landbúnaði
og matvælaframleiðslu,“ segir Ólafur
og minnir á að dagskráin verði birt
á bbl.is þegar hún liggur endanlega
fyrir.
Á sýningarsvæðinu verður nóg
að bíta og brenna. „Það verður
Bændakaffi þar sem gestir geta
fengið veitingar á sanngjörnu verði.
Að auki munu bændur grilla á teini
fyrir utan Laugardalshöllina þar sem
hægt verður að smakka íslenskar
úrvalsafurðir.“
Ólafur á von á því að fjöldi bænda
leggi leið sína á sýninguna en hún er
líka opin almenningi. „Félagsmönnum
í Bændasamtökunum er öllum boðið á
sýninguna og þar að auki fá fyrirtækin
sem taka þátt fjölda boðsmiða til þess
að koma til sinna viðskiptavina. Við
finnum mikinn áhuga hjá almenningi
á sýningunni sem er til marks um
áhuga á íslenskum landbúnaði í dag.“
Opið frá föstudegi til sunnudags
Sýningin hefst með opnunarhófi
kl. 13.00 föstudaginn 12. okt. Þann
dag er opnunartími 14.00–19.00,
á laugardag 13. okt. 10.00–18.00
og sunnudag 14. okt. 10.00–17.00.
Miðar gilda alla helgina en miðaverð
er kr. 1.000 og frítt fyrir aldraða,
öryrkja, námsmenn og börn yngri
en 12 ára í fylgd með fullorðnum.
Sem áður segir munu félagsmenn
í Bændasamtökum Íslands fá
senda boðsmiða á sýninguna sem
gilda alla sýningardagana. Tímarit
Bændablaðsins kemur út vikuna
fyrir sýningu og mun þjóna sem
sýningarblað. /TB
Mynd / TB