Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201812
FRÉTTIR
Sveitarstjórn Blönduósbæjar
mótmælti fyrir skömmu harðlega
skertri þjónustu Arion banka
á Blönduósi en bankinn stytti
afgreiðslutíma útibúsins.
Í samþykkt sem gerð var á fundi
sveitarstjórnar nýverið segir að í
stefnu bankans um samfélagsábyrgð
standi að bankinn setji sig í spor
viðskiptavina og leitist stöðugt við að
gera betur í dag en í gær. Sveitarstjórn
geti ekki séð að boðaðar breytingar
samræmist þessari stefnu.
Arion banki tilkynnti um breyttan
afgreiðslutíma í útibúinu á Blönduósi
í lok síðasta mánaðar, en frá og með
5. júní sl. er opið frá klukkan 10–12
og 12.30–15 alla virka daga. Áður
var opið frá 9–12 og 12–16 virka
daga. /MÞÞ
Sveitarstjórn Skagastrandar skorar á ríkisstjórn Íslands sem aðaleiganda Landsbankans að taka stjórnarhætti og
hugmyndafræði stjórnenda bankans til alvarlegrar skoðunar. Mynd / HKr.
Niðurskurði í útibúi Landsbankans á Skagaströnd mótmælt:
Starfsfólki öllu stefnt í musteri
í miðborg Reykjavíkur
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur
mótmælt harðlega niðurskurði
í útibúi Landsbankans á
Skagaströnd við bankastjóra
Landsbankans.
Í ályktun sem sveitarstjórn
hefur sent frá sér segir að með
uppsögn á einu og hálfu starfi í
eina bankaútibúi Landsbankans í
Austur-Húnavatnssýslu, þar sem
íbúafjöldinn sé um 1.800, sé höggvið
í sama knérunn og í öðrum byggðum
þar sem Landsbankinn segir upp
starfsfólki í ellefu útibúum víðs
vegar um landið.
Hægt að nýta starfsfólk
þvert á búsetu
„Í nafni hagræðingar sé störfum í
litlum byggðum fórnað á forsendum
þess að tæknivæðingin hafi leyst
fólkið af hólmi. Það mótmæli því hins
vegar enginn að þróun og framfarir
breyti störfum og verkefnum en
með sömu tæknivæðingu og þróun
væri hægt að nýta starfsfólk þvert
á alla búsetu þar sem þekking og
reynsla starfsmanna er notuð á nýjum
forsendum, á nýjan hátt. Í þessu
hlutverki hafi Landsbankinn alfarið
brugðist og virðist ætla að stefna
sem flestu starfsfólki sínu saman í
musteri sem stjórnendur bankans
eru að reisa í miðborg Reykjavíkur,
sjálfum sér til dýrðar. Kostnaðurinn
við það musteri, sem hlaupi sennilega
á tug milljarða, geri hagræðingu með
uppsögn nokkurra starfsmanna á
taxtalaunum næsta hjákátlega,“ segir
í ályktuninni.
Sveitarstjórn Skagastrandar skorar
á ríkisstjórn Íslands sem aðaleiganda
bankans að taka stjórnarhætti og
hugmyndafræði stjórnenda bankans
til alvarlegrar skoðunar. /MÞÞ
Blönduós:
Mótmæla harðlega skertri
þjónustu Arion banka
Frá Blönduósi. Mynd / HKr.
Gestastofan á Þorvaldseyri. Mynd / HKr.
Stjórn Kötlu Jarðvangs á Suð-
ur landi vinnur nú að því að
taka Gestastofuna á Þorvalds-
eyri undir Eyjafjöllum á leigu
sem þýðir að hún verður þá
gestastofa jarðvangsins.
„Það er ekki búið að útfæra
nánar með hvaða móti gestastofan
verður, en þar verða veittar
upplýsingar um jarðvanginn,
fræðsla, jafnvel einhver
minjagripasala o.fl. Málið er í
vinnslu og er frekari frétta að
vænta á næstunni. Ef allt gengur
upp þá ætti opnun gestastofunnar
að verða um áramót, þetta er
spennandi verkefni,“ segir Anton
Kári Halldórsson, sveitarstjóri
Rangárþings eystra og formaður
stjórnar Kötlu Jarðvangs. /MHH
Fjölmenni mætti við formlega opnun nýju Gestastofunnar á Þingvöllum,
Guðmundsson, alþingismaður og formaður Þingvallanefndar, en þeir eru
hér í fremstu röð til vinstri. Myndir / MHH
Ný og glæsileg gestastofa fyrir
ferðamenn á Þingvöllum
Nýlega var opnuð ný og glæsileg
gestastofa á Hakinu í þjóð-
garðinum á Þingvöllum í þeim
tilgangi að útbúa betri aðstöðu
fyrir móttöku ferðamanna fyrir
ofan Almannagjá.
Í nýju stofunni eru fjölnota
fyrir lestrarsalur, glæsileg gagnvirk
sýning um sögu og náttúru
Þing valla, rúmgott anddyri
fyrir upplýsingagjöf, verslun,
veitingasala, skólastofa og skrif-
stofurými
„Við erum afskaplega stolt og
ánægð með nýju gestastofuna
því með henni opnast enn meiri
möguleikar í miðlun á sögu og
náttúru Þingvalla og upplýsingagjöf
til gesta þjóðgarðsins sem er einn
fjölsóttasti ferðamannastaður
landsins með um eina og hálfa
milljón ferðamanna á ári,“
segir Einar Á. E. Sæmundsen
þjóðgarðsvörður. /MHH
Gestastofan á Þorvaldseyri:
Katla Jarðvangur tekur
stofuna á leigu
Með gagnvirkni stofunnar er m.a.
hægt að læra um ferðalög fornmanna
til Þingvalla með gagnvirkum hætti,
bregða sér í hlutverk lögsögumanns
í lögréttu í sýndarveruleika, fræðast
um lífríki Þingvallavatns og jarðsögu
svæðisins.
Deilan endalausa um vegagerð í Austur-Barðastandarsýslu:
Ábúendur tveggja jarða senda sveitar-
stjórn Reykhólahrepps athugasemdir
– Segja að vegalagning um Reykjanes muni kljúfa sex jarðir á svæðinu
Ábúendur á tveim bæjum á
Reykj anesi við Þorskafjörð hafa
ritað sveitarstjórn Reyk hóla-
hrepps bréf vegna hugmynda
um vegalagningu um Reykjanes
sem nú er til skoðunar í stað vegar
um Teigsskóg sem skilgreind er
sem leið Þ.H. í gögnum Vega-
gerðarinnar
Bréfið sem Bændablaðið
hefur fengið afrit af
var undirritað af 7
einstaklingum sem
tengdir eru bæjunum
Stað og Árbæ þann
3. júlí 2018. Á þeim
jörðum er m. a. mikið
æðarvarp. Í bréfinu
segir:
„Vegna þeirrar nýju
hugmyndar um þverun
Þorskafjarðar og veg um
Reykjanes, í stað Þ.H.
leiðar viljum við koma
eftirfarandi á framfæri. Þ e s s i
vegur klífur í sundur land 6 jarða
sem stundaður er búskapur á. Slíkur
vegur með mikilli umferð gerir
alla nýtingu erfiða og spillir mjög
gildum jarðanna. Varðandi jarðirnar
Stað og Árbæ kemur vegurinn yfir
ósnortið land, varphólma með miklu
friðlýstu æðarvarpi, vog og tjarnir
með fjölskrúðugu fuglalífi. Að
margra mati hefur svona landsvæði
ekki minna verndargildi heldur en
margumtöluð Þ.H. leið.“
Meinað um aðgang að bréfinu
nema gegn skilyrðum
Kristinn H. Gunnarsson, fyrr-
verandi þingmaður, greinir frá
því á vefsíðu sinni, kristinn.is,
að Ingimar Ingimarsson, oddviti
Reykhólahrepps, hafi þann 10.
ágúst sl. neitað blaðinu Vestfirðir
um aðgengi að fyrrgreindu bréfi
nema gegn ströngum skilyrðum og
framvísun persónugagna.
Ingimar segir í svari til Kristins
að þetta sé ekki neitun en ber fyrir
sig persónuverndarlögum og að
þetta sé í samræmi við
15. gr. upplýsingalaga.
Kallað eftir endurmati
í kjölfar keypts álits
Bréfið er tilkomið
vegna ákvörðunar
núverandi sveitar-
stjórnar um að óska
eftir endurmati
Vega gerðarinnar á
lagningu vegar um
Reykjanes með
þverun yfir mynni
Þorskafjarðar. Sveitarstjórn hafði
í mars samþykkt að unnið yrði
samkvæmt tillögu Vegagerðarinnar
um vegagerð um Teigsskóg.
Var þeirri ákvörðun síðan slegið
á frest í kjölfar keypts álits
athafnamanna í Reykjavík frá
norskri verkfræðistofu. Þar var
lagt til að lagður verði vegur yfir
mynni Þorskafjarðar í stað vegar um
Teigsskóg. Vegagerðin hafði áður
gert úttekt á þessari leið og taldi
hana ekki koma til greina vegna
kostnaðar. Í rökum Vegagerðarinnar
var m.a. bent á að endurbyggja þurfi
upp allan veginn um Reykjanes þar
sem hann beri ekki umferð sem hlýst
af tengingu þjóðvegar um Reykjanes
og yfir í Melanes eða Skálanes. Þá
hafa talsmenn Vegagerðarinnar
bent á að þessar vegabætur um
Reykhólasveitarveg með tengingu
inn á aðalveg við Berufjörð séu
ekki inni í kostnaðargreiningu
norsku verkfræðistofunnar. Þrátt
fyrir það er Vegagerðin nú með
þessa leið til endurskoðunar,
enda er skipulagsvaldið í höndum
Reykhólahrepps.
Samkvæmt samtölum Bænda-
blaðsins við íbúa á svæðinu er alveg
ljóst að vegagerð um Reykjanes mun
ekki verða að veruleika átakalaust
frekar en Teigsskógarleiðin. Er m.a.
bent á að eftir eigi að meta áhrif á
landbúnað sem þarna er starfræktur
og lífríki svæðisins og þar með á
viðkvæmt æðarvarp.
Pólitískt vandræðamál
Virðist ákvörðun forsvarsmanna
Reykhólahrepps frá því í vor því
ekki skapa sátt heldur vera að steypa
málinu í enn harðari deilur. Mál þetta
er líka orðið verulega vandræðalegt
fyrir stjórnvöld í landinu. Þá sýnir
þetta að margra mati í hvaða
ógöngur umhverfisverndarumræðan
er komin, þar sem hægt er að
tefja þjóðhagslega mikilvæg
mál án úrlausnar með kærum,
að því er virðist í það endalausa.
Í áratugi hefur heldur engin
ríkisstjórn, samgönguráðherra né
umhverfisráðherra treyst sér til
að höggva á þennan hnút. Hefur
þetta ráðleysi viðgengist þrátt
fyrir margítrekaðar ályktanir
sveitarstjórna og hagsmunaaðila um
að tafir á vegabótum á þessu svæði
hafi haft verulega hamlandi áhrif
á atvinnuuppbyggingu og byggð á
Vestfjörðum. /HKr.