Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 14

Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201814 FRÉTTIR „Það var mikil eftirvænting hjá okkur félögum þegar haldið var af stað í veiði fyrir skömmu,“ sagði Hörður Heiðar Guðbjörnsson, en Litla-Þverá rennur neðarlega í Haukadalsá í Dölum. „Litla-Þverá var eitthvað sem við vissum ekkert um og mjög erfitt að fá upplýsingar um hvernig hefði gengið á síðasta ári. Eina og kannski besta ráðið var að kíkja í bókina sem gefin var út um árið fyrir Þverá, Kjarrá og Litlu-Þverá. Það var reyndar lítið skrifað um Litlu en við treystum á það sem við lásum og heyrðum. Við græjuðum okkur vel og fylltum vel á nestið (a.m.k. sumir) því það var langur dagur fram undan. Það var algjör veðurblíða, logn og sól sem er kannski ekki það besta fyrir veiðimenn, nema þá helst til að vera að njóta. Ekki sérlega bjartsýnir Þegar við keyrðum upp með ánni vorum við lítið bjartsýnir, enda var mjög lítið vatn og sums staðar nánast vatnslaus. Við vorum farnir að ræða það hvar við gætum eytt deginum ef þetta yrði það sem koma skyldi. Við keyrðum beint á efsta stað sem er Fossinn. Við byrjuðum á því að stelast til að kíkja í staðinn (sem er í raun ekki gott því þá gæti fiskurinn farið ef hann er á annað borð á svæðinu). En viti menn, þarna lágu nokkrir fiskar og voru ekki mikið að velta því fyrir sér hvort þarna væru einhverjir að kíkja á sig, enda lágu þeir bara í makindum við einn steininn. Við græjuðum okkur og héldum til veiðar, fullir bjartsýni. Eftir nokkur köst var hann á, nei, það var ekki lax, það var einn lítill urriði, en takan var komin og það jókst enn á bjartsýnina við þetta að setja í lax. En það var mun erfiðara. Við reyndum alls konar brögð, með litlum, meðalstórum og stórum flugum ásamt því að reyna að „hitsa“. En eftir langa og stranga bið tókst það, hann var á og sigurinn var unninn. Fimm punda hængur og gleðin ósvikin. Eftir þetta gáfum við hylnum frið og fengum okkur kaffi. Þá kíktum við aftur í fossinn en hann vildi ekki taka. Síðan gengum við niður gilið til að skoða fleiri staði. Veiðivörðurinn kíkti á okkur og gaf okkur ráð um staði og sagði okkur frá fiskum sem hann hafði séð. Það var hárrétt hjá honum, það voru fiskar á nokkrum stöðum, en allir frekar slakir í sólinni. Einn var vel vænn og lét ekki plata sig. Sáttir við daginn Við héldum niður með ánni til að skoða enn fleiri staði áður en heim var haldið og þegar það var vel liðið á daginn náðum við að setja í einn til viðbótar, sama stærð, og þar voru líka nokkrir aðrir fiskar sem vildu ekki kíkja á agnið okkar. Þegar hér var komið var liðið vel á daginn og við ákváðum að skoða nokkra staði í viðbót áður en heim var haldið. Við skráðum veiðina í veiðibók í veiðihúsinu við Þverá-Kjarrá. Þar sagði einn við okkur að við værum að veiða meira þarna en allt hollið hefði veitt í Þverá-Kjarrá þennan dag. Þannig að við vorum vel sáttir við daginn, enda góður félagsskapur, gott veður og fiskar að gleðja okkar litla hjarta. Svo er bara að bíða eftir næsta túr, annar okkar er að fara í Langadalsá 2. september en undirritaður fer sennilega ekki fyrr en um miðjan september í Langá, það verður eitthvað,“ sagði Hörður, sem alls ekki er hættur að veiða þetta sumarið. Gunnar Bender gunnarbender@gmail.com Hörður Heiðar Guðbjörnsson með lax úr Litlu-Þverá. Litla-Þverá í Borgarfirði Góð gæsaferð. Margir fengið vel í soðið „Gæsaveiðin hefur farið nokkuð vel af stað hjá okkur vinunum en við erum búnir að fara þrisvar og legið fyrir þeirri gráu. Fengið 13 fugla og upp í 30 fugla, sem er bara nokkuð gott,“ sagði Reynir M. Sigmundsson, stang- og skotveiðimaður. Gæsaveiðitíminn er rétt byrjaður og margir farið að skjóta en fuglinn virðist samt víða vera ennþá uppi á fjöllum og komi alls ekki niður fyrr en kólnar verulega. „En miðað við að tímabilið er bara rétt farið af stað finnst mér ungarnir mun betur haldnir en á sama tíma í fyrra og töluvert hefur sést af henni hérna í túnum á Vesturlandi. Og ástæðan er, að ég held, að það er lítið sem ekkert af berjum hérna núna,“ sagði Reynir enn fremur. Er þetta virkilega eitthvað sem veitir ánægju? „Við vorum við veiðar í Laugardalsá og lentum í afar sérstökum aðstæðum,“ sagði Stefán R. Dagsson í samtali við Bændablaðið en hann var að veiða í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi fyrir skömmu. „Við erum á stað 15 og sjáum hvar eitthvað gulbrúnt kemur upp ána á móti straumnum, fer svo að fara í hringi í hylnum. Við fylgjumst með og ræðum okkar á milli hvað þetta sé sérstakt. Svo flækist línan og flugan í einhverju, eðlilega dregið inn til að losa. Um leið rýkur „þetta“ af stað og hefst baráttan um að landa þessum sérstaka hlut. Loks tekst að landa og í eftirdragi er 63 cm lax. Sem sagt fyrirbærið var eitthvert flot „kleinuhringur“ með sökkum og öngli og að auki gömlum maðki. Er þetta virkilega eitthvað sem veitir ánægju? Mun ódýrara er að kaupa lax í næstu fiskbúð ef það er málið. Sportið og ánægjan við að veiða lax er miklu meira en þetta,“ sagði Stefán eftir þetta skrýtna veiðidót í Laugardalsá. Laxinn og búnaðurinn sérkennilegi sem notaður var við veiðarnar í Laugardalsá. Ytri-Rangá: Bragi með flottan lax Eystri-Rangá er gjöfulasta lax- veiðiáin þessa dagana og Ytri- Rangá þar rétt fyrir neðan. Síðan kemur Þverá í Borgarfirði næst. „Já, ég var að koma úr Ytri-Rangá og þetta slapp til, fékk einn ansi góðan og nokkra í viðbót,“ sagði Bragi Guðbrandsson, sem var á veiðislóðum fyrir fáum dögum. „Sá stóri tók Black Collie litla túbu og var 83 sentímetrar. Fiskurinn fór beint í klakið,“ sagði Bragi enn fremur. Bragi var fyrr í sumar á urriðas- væðinu í Þingeyjarsýslu og veiddi vel, flotta fiska. Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is KLEFAR Kæli- & frystiklefar í miklu úrvali. Vottaðir gæðaklefar með mikla reynslu á Íslandi. Einfaldir í uppsetningu. HILLUR fyrir kæli- & frystiklefa. Mikið úrval og auðvelt að setja saman. Sérhannaðar fyrir matvæli. KÆLI & FRYSTI BÚNAÐUR Hafðu samband í síma 587 1300 og við sérsníðum lausn sem hentar þér! Bragi Guðbrandsson með 83 sentí- metra laxinn.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.