Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201818
HROSS&HESTAMENNSKA
Fyrir nokkru gerðu konur í Hörgársveit sér glaðan dag og héldu árlega kvennareið. Þær létu ekki rigninguna spilla gleðinni enda hlýtt í veðri og reiðleiðin um Hálsaskóg í algeru logni. Héru eru
talið frá vinstri: Borghildur Freys, Grjótgarði, Jónína Garðarsdóttir, Litlu-Brekku, Anna Guðrún Grétarsdóttir, Fornhaga II, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Akureyri og Erla Elísabet Sigurðardóttir,
Akureyri. Myndir / Anna Guðrún Grétarsdóttir
Guðbjörg Helga Andrésdóttir, Akureyri og Þórdís
Þórisdóttir, Auðbrekku.
Líney Emma Jónsdóttir, Staðartungu og Sigríður Hrefna
Jósefsdóttir, Þrastarhóli.
Kvennareið í Hörgársveit
Bráðsniðug hnakkageymsla til að ferðast með sem rúmar tvo hnakka.
Afmælisgjöf handa hestamanninum:
Ferðasett fyrir hnakka
Fyrir nokkru átti Hjörtur L.
Jónsson, tækjapistlahöfundur
Bænda blaðsins, leið í Vallar braut
sem flytur inn ýmis landbúnaðar-
tengd tæki og tól. Þar vakti nýstár-
legur gripur athygli hans.
„Á meðan ég stoppaði þar sá ég
starfsmann fyrirtækisins vera að
draga tunnu á hjólum sem ég hélt vera
ruslatunnu, en þegar ég sá smellur á
hliðinni öðrum megin og lamir hinum
megin vaknaði forvitnin,“ segir
Hjörtur.
„Þarna var hann að taka út úr gámi
nýjung sem ég hafði ekki séð áður,
en þetta er hnakkageymsla fyrir tvo
hnakka og pláss fyrir aukabúnað og
jafnvel nesti.
Sem dellukall í öðru sporti þar sem
sjálfsagt þykir að eiga ýmsan búnað
undir hjálma, föt og brynju held ég að
þetta sé skyldueign allra hestamanna.“
Hnakkatunnan kostar 117.000 krónur
að sögn Jóns Vals Jónssonar í Vallar naut.
ELDVARNIR
BORGA SIG
Yfirvöld setja ákveðnar reglur um bruna-
varnir og slökkvibúnað í byggingum.
Til dæmis eru kröfur um reykskynjara
og slökkvibúnað í íbúðarhúsnæði.
Hvað getur þú gert sem bóndi til þess
að lágmarka áhættu af sökum elds á
þínu býli?
ER ÞITT BÚ
ÖRUGGUR
OG GÓÐUR
VINNUSTAÐUR?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
Vaka Sigurðardóttir, Dagverðareyri og Ingunn M. Hallgrímsdóttir,
Dalvík.