Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 23
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Það kom fólki á óvart hversu mikið rusl reyndist vera á svæðinu. Mikið var um plast en einnig fúaspýtur, eldhúsáhöld,
rúmdýna og meira að segja eitt stykki baðkar sem hafði verið skilið eftir á víðavangi. Myndir / Norðurorka
Starfsfólk Norðurorku stofnaði „grænan her“:
Ógrynni af rusli tínt upp
við höfuðstöðvarnar
Starfsfólk Norðurorku tók sig til
eftir vinnu einn góðan veðurdag
í sumar og breytti sér, mökum
og börnum í „grænan her“ sem
heldur betur tók til hendinni og
safnaði saman rusli í nágrenni
vinnustaðarins.
Á vorin bíða ýmis verkefni en
eitt af þeim er að fegra umhverfið
með því að tína upp rusl sem finna
má á víð og dreif eftir veturinn.
Því miður er það svo að rusl
fýkur út um víðan völl og að því
komst ruslatínslufólk Norðurorku
fljótlega. Það kom fólki á óvart
hversu mikið rusl reyndist vera á
svæðinu, ekki síst plast en einnig
fúaspýtur, eldhúsáhöld, rúmdýna
og meira að segja eitt stykki
baðker sem hafði verið skilið eftir
á víðavangi! Á tveimur tímum var
ógrynni af rusli safnað saman.
Umhverfismál hafa fengið
aukið vægi
Umhverfismál hafa á undanförnum
árum fengið aukið vægi hjá
Norðurorku og rímar þetta rusla-
söfnunarátak vel við umhverfis-
stefnu Norðurorku. Fyrirtækið
leggur áherslu á virðingu við
náttúruna og jákvætt kolefnisfótspor
en í því felst m.a. að draga úr
losun gróðurhúsa lofttegunda og
lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.
Í þessu sambandi má geta þess
að um þriðjungur þjónustubíla
Norðurorku gengur fyrir
vistvænum orkugjöfum,
ellefu metangasbílar og
einn rafmagnsbíll.
Slíkur rusla hreinsunar-
dagur Norðurorku hefur
ekki verið árviss viðburður
en í ljósi þess hversu mikið
rusl safnaðist á aðeins
tveimur tímum í gær var
hið vaska ruslatínslufólk
sammála um að þetta þyrfti
að hafa sem fastan lið á
hverju vori.
Að loknu góðu dagsverki
var sjálfboðaliðunum að
sjálfsögðu boðið upp á
pitsu. /MÞÞ
Að loknu góðu dagsverki var sjálfboðaliðunum að sjálfsögðu boðið upp
á pitsu.
Makar og börn starfsfólks Norðurorku
mynduðu „grænan her“ sem heldur betur tók
til hendinni og safnaði saman rusli í nágrenni
vinnustaðarins. Var þeim að sjálfsögðu
umbunað með ýmsu góðgæti að verki loknu.
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Vogue
fyrir heimil ið
bíður uppá alhl iðalausn fyr i r
hótelherbergið eða gist iheimi l ið.
Fundurinn hefst föstudaginn 5. október, kl. 14:00 með
venjulegum aðalfundarstörfum.
Að venju verður málþing og áhugaverð erindi flutt um
málefni skógræktarinnar.
Árshátíð skógarbænda verður haldin laugardagskvöldið
6. október.
Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst á fundinn og í gistingu
hjá Hlyni Gauta Sigurðssyni, framkvæmdastjóra LSE, í
síma 775 1070 eða á netfangið hlynur@skogarbondi.is.
Nánari upplýsingar er að finna á skogarbondi.is.
AÐALFUNDUR
LANDSSAMTAKA SKÓGAREIGENDA
Haldinn á Hótel Stracta, Hellu, dagana 5. og 6. október 2018