Bændablaðið - 06.09.2018, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201824
Snilldarlausn í sláturtíð fyrir bændur og veiðimenn á afskekktum stöðum:
Sláturhús og vinnsla á hjólum
– Hentar jafnt fyrir kjúklinga, sauðfé, stórgripi, sem vinnslu á hreindýrum uppi á heiðum
Nú er ekki lengur nauðsynlegt
að keyra sláturgripi um langan
veg í sláturhús. Í stað þess er nú
hægt að koma með sláturhús
á hjólum heim til bóndans eða
veiðimannsins úti á mörkinni.
Þetta fyrirbæri er nefnt TriVan
Mobile Slaughter Trailer og
hugmyndin kviknaði 2002. Þá
setti Samvinnufélag bænda í
San Juan-sýslu í Bandaríkjunum
sér það markmið að slátra sjálft
öllum sínum búfénaði. Var útbúið
fullkomið sláturhús í gámavagni
sem dreginn var af dráttarbíl á milli
staða. Var þetta fyrsta færanlega
trukkasláturhúsið sem hlaut
samþykki landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna.
Með 16 ára reynslu
Frá 2002 hefur TriVan trukka-
sláturhúsið (Truck Body) verið
notað víða og boðið þjónustu sína
um alla Norður-Ameríku. Þannig
hefur það verið notað við slátrun
og vinnslu á hreindýrum í Alaska,
nautgripum og kjúklingum í
Kanada, við slátrun á buffalóum
í Norður-Dakota í Bandaríkjunum
og ýmsu öðru.
Sláturhúsið hefur töluverða
afkastagetu og hægt er að nota
það þótt veðurfar sé slæmt.
Boðið er upp á margs konar
staðlaða hönnun sem og hönnun
sem byggð er á séróskum hvers
og eins. Þannig er hægt að nota
færanlegar kjötvinnslur fyrir mikil
afköst sem henta staðbundnum
aðstæðum og einnig fyrir
sjálfbæran búskap.
Til sýnis í Washingtonríki
Framleiðendur bjóða viðskipta-
vinum að koma og skoða
TriVan Truck Body sláturhús
og kjötvinnslur á 1.300 fermetra
sýningarsvæði hjá Bob Lodder í
Ferndale í Washington. Netfangið
er blodder@trivan.com. /HKr.
551 5000
Ármúla 15, 108 Reykjavík - www.proventus.is - proventus@proventus.is
TIL FJÖLBREYTTRA
STARFA UM LENGRI
EÐA SKEMMRI TÍMA
Útvegum starfsmenn
Nánari upplýsingar í síma 551 5000 eða sendið
fyrirspurn á netfangið proventus@proventus.is
UTAN ÚR HEIMI
Alifuglaslátrun.
TriVan sláturhús á hjólum. Sláturhúsbíllinn mættur til að vinna kjöt veiðimanna úti í haga.
Dádýr á leið í vinnslu.
Slátrun stórgripa og vinnsla er ekki vandamál. Hönnun er miðuð við að hægt sé að gæta ítrasta hreinlætis.
Þrif að lokinni vinnslu eru mjög auðveld.