Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201826
Kartöfluræktendur á Suðurlandi hafa glímt við óvenju mikla vætutíð í sumar:
Slæmar uppskeruhorfur í Flóahreppi
– Væg frostanótt kom í Forsæti IV
Fyrir nokkrum vikum voru upp-
skeru horfur á bænum Forsæti IV
slæmar vegna stanslausra rign-
inga í sumar, en ágætt veður í
lok ágúst gaf þeim vonir um að
útkoman yrði ágæt þrátt fyrir allt.
Vægt næturfrost aðfaranætur 30.
ágúst hefur dregið nokkuð úr þeim
væntingum.
Hún er löng, saga kartöfluræktar
á bænum Forsæti IV í Flóahreppi.
Hjónin Kristján Gestsson og Anna
Guðbergsdóttir eru ábúendur þar og
hafa ræktað kartöflur frá 1972, þar
áður stunduðu foreldrar Kristjáns þar
hefðbundinn blandaðan búskap og
ræktuðu kartöflur frá 1960.
„Við vorum með kýr í smátíma,
en hættum þeim búskap fyrir þó
nokkrum árum og snerum okkur
alfarið að kartöflunum,“ segir
Kristján.
Góður jarðvegur sem þolir
talsverða vætu
„Jarðvegurinn er góður hér, frekar
þurrlent – hann þolir töluverða vætu,“
segir Kristján og brosir, en óvenju
mikið vatnsveður snemmsumars
olli búsifjum í tilteknum görðum í
Forsæti IV þar sem allt fór á flot
og ekki alveg útséð með hvernig
uppskeran verður þar á endanum.
„Við erum með þessar fjórar
sígildu tegundir; Gullauga, Rauðar
íslenskar, Milva, Premiere – og
svo reynum við að vera alltaf
með eitthvað nýtt af erlendum
tegundum til að prófa hvort
henti íslensku veðurfari. Það fer
mikið magn af þeim kartöflum í
matvælavinnslu og á veitingastaði,
en við seljum líka slíkar kartöflur í
verslanir. Langmest selst þó alltaf
af Gullauga og einnig mikið af
Rauðum íslenskum. Við seljum í
gegnum Sölufélag garðyrkjumanna
og koma pakkaðar kartöflur þaðan
merktar bænum okkar. Premiere
spretta hraðast en þær rauðu hægast
af þessum fjórum tegundum,“ segir
Kristján.
Spurður um hvort þær rauðu
séu viðkvæmari en hinar, til dæmis
hvort hættara sé á því að þær springi
við suðu, segir Kristján að svo sé
ekki. „Það gildir í raun það sama
um allar kartöflur; að þær þurfa að
jafna sig eftir upptöku þannig að
hýðið styrkist. Við viljum helst að
kartöflurnar bíði í jörðinni í um 10
daga með föllnum grösum áður en
sett er í hús.“
Eru búin að taka upp
í heilan mánuð
„Við erum búin að taka upp í heilan
mánuð núna af því sem var ræktað
undir plasti. Þetta leit vægast sagt
illa út með allt hitt fyrir nokkrum
vikum. Við höfum sem betur fer
fengið ágætt veður í ágúst og
vonum að svo verði áfram. Við
erum þó alltaf hrædd við frostið;
því þegar það kemur þá falla grösin,
kartöflurnar hætta að vaxa og við
verðum að taka allt upp,“ segir
Kristján. Þau Anna sjá að mestu
leyti um vinnu við framleiðsluna
en á mestu álagstímunum á haustin
fá þau meiri hjálp frá börnum og
tengdabörnum.
Ef við fengjum tíu daga til
hálfan mánuð í viðbót eins og
þetta hefur verið að undanförnu,
þá verður ástandið hér bara orðið
nokkuð gott. Maður vill helst fá
um 20–25 tonn á hektara úr þeim
24 hekturum sem við erum með í
ræktun, en það verður ekki núna.
Í raun urðum við fyrir tveimur
áföllum í sumar í ræktuninni. Fyrst
þessar rigningar þegar allt fór á flot
af þessu sem við vorum búin að
setja fyrst niður og má segja að um
10% af því sé ónýtt. Síðan hélt bara
áfram að rigna í sumar þannig að
vöxturinn varð mjög hægur.
Um 70 prósent framleiðslunnar
er í Flóahreppi
Kristjáns segir að ef það komi
fljótlega frost sé hægt að segja
að uppskeran verði ekki góð.
„Það er talsvert í húfi þar sem
að minnsta kosti 70 prósent
kartöfluframleiðslunnar á Íslandi er
hér í Flóahreppi og í Þykkvabænum.
Það er tíðarfarið sem yfirleitt
ræður mestu um það hversu lengi
íslenskar kartöflur eru í boði yfir
árið fyrir neytendur á Íslandi.
Kartöflubændum hefur fækkað,
en á móti kemur að þeir sem
eru enn í ræktun hafa aukið sína
framleiðslu.“
Mikilvægt að hafa góðan
vélakost
Að sögn Kristjáns er mikilvægt að
hafa góðan vélakost þegar tíðin er
hagstæð og til þess að geta vélvætt
sig vel hjálpar að hafa náð ákveðnu
umfangi, eða 20–30 hektara ræktun.
„Síðustu ár hefur verið það góð
uppskera að hún hefur dugað allan
ársins hring – og jafnvel þurft að
henda afgöngum. Núna hins vegar
horfir ekki eins vel.“
Aðfaranótt 30. ágúst, nóttina
eftir viðtalið við Kristján, féllu
kartöflugrösin til hálfs í vægu
næturfrosti.
Kristján segir að það þýði að
kartöflurnar vaxi áfram þótt mjög
hægist á vextinum. /smh
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Láttu dæluna
ganga!
Hjá Dynjanda færðu öflugar
háþrýstidælur fyrir fjölbreyttar
aðstæður og verkefni.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Myndir / smh
Ferskar íslenskar búvörur
í Litlu Melabúðinni
Það er svo sannarlega vel þess
virði fyrir þá sem unna ferskum
íslenskum búvörum að kíkja í
Litlu Melabúðina þessa dagana,
sem stendur við garðyrkjubýlið
Mela á Flúðum.
Þar reka hjónin Guðjón Birgisson
og Sigríður Helga Karlsdóttir
sveitaverslun sem býður upp á það
ferskasta sem bændur í héraðinu
geta boðið upp á. Mest er af fersku
grænmeti beint frá Melum – til
dæmis salat og kryddjurtir, en einnig
má þar til dæmis finna kjöt frá
Langholtskoti, silung frá Tungufelli,
svínakjöt frá Korngrís, brodd frá
Sólheimum, flatkökur, hverabrauð,
margs konar sultur og fleira góðgæti.
Uppskeran úr útiræktuninni
fer í verslunina
Vöruúrval byggist
á uppskeru
og framboði á
hverjum tíma
og segir Guðjón
að nú sé til að
mynda tími úti-
ræktaðs græn -
metis; blómkáls,
spergil káls, kína-
káls, hvítkáls og
flestar aðrar tegundir eru einnig í
boði. Hann hafi minnkað umfang
útiræktunar mjög á síðustu árum og
ræktar nú fyrst og fremst til sölu í
Litlu Melabúðinni. Þá eru gúrkur
og tómatar af ýmsu tagi alltaf til
sölu í Litlu Melabúðinni, sem eru
í heilsársræktun á Melum – auk
annarra gróðurhúsategunda. /smh
Myndir / smh