Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 31
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Fyrir nokkrum árum keypti
ég kú, sem ég á enn; hún
heitir Kola. Hún er engin
framúrskarandi mjólkurkýr
og sæti, eftir frammistöðu sinni
í þeim efnum, við röðun varla
fyrir ofan miðjan bekk. En ef
raða ætti eftir greind og öðrum
mannlegum eiginleikum kæmi
þykkja í mig fyrir hennar hönd
ef hún fengi ekki að sitja efst.
Þegar ég eignaðist Kolu átti
ég aðra kú, er öðrum fremur leit
eftir kálfum sem fylgdu kúnum,
en þegar Kola fór að kynnast tók
hún alveg að sér þetta starf. Var
hún ávallt öftust af kúnum
og kálfarnir þar hjá henni. Yfir
um á fara kýrnar stundum oft á
dag, fram og aftur. Hafði Kola þá
jafnan þann sið að nema staðar í
miðri ánni, hversu djúpt sem var.
Stóð hún þar baulandi og beið eftir
kálfunum, og er þeir komu lét hún
þá fara fram hjá sér og á undan
það sem eftir var yfir um, svo að
hún sæi hvað þeim liði. Aldrei
vantaði svo kálfana á kvöldin
að ekki vantaði Kolu líka. Hún
mat meira að líta eftir þeim en
að fylgja kúnum heim til mjalta
á venjulegum tíma. Ef hret var
hafði hún kálfana ýmist í skjóli
við sig ef hún lá eða undir kverk
sér ef hún stóð.
Veturinn næstan eftir var
kálfur undan Kolu látinn lifa,
ásamt öðrum kálfi á sama aldri.
Um þessa kálfa lét hún sér mjög
annt er farið var að hleypa þeim
út um vorið. En er kom fram á
sumarið varð vart vanheilinda
á kálfi Kolu. Sást það brátt að
hann mundi dragast upp, og lét
ég því slátra honum. Kálfurinn var
tekinn úr fjósinu um morguninn
og kúnum hleypt út rétt á eftir.
Kola hafði veður af því að farið
var með kálfinn heim að bæ.
Hljóp hún því beina leið heim að
bæjardyrum með miklu skerandi
öskri; stóð hún þar langan tíma
og horfðu margir á að tár runnu
ótt og títt ofan vangana. Hún var
gröm, grenjaði af sorg og vildi
heimta aftur afkvæmi sitt er hún
unni svo heitt, en hafði nú verið
svipt. Í nokkra daga á eftir kom
hún á hverjum morgni heim að bæ
og stóð þar stundarkorn öskrandi;
hún er ekki gleymin.
Ekki leit hún það sumar sem
eftir var við hinum kálfinum,
enda var hún ein og utan við sig.
Næsta sumar kom og leið. Kálfar
voru með kúnum, en ekki sinnti
Kola þeim. Veturinn næsta var
aftur látinn lifa kálfur sem hún
átti. Þá fyrst náði hún sér aftur,
og þegar sumarið kom fór hún á
ný að hugsa um kálfana og annast
þá eins og fóstra.
/Úr bókinni Forustu Flekkur
SÖGUR &SAGNIR ÚR SVEITINNI
Kola
STARF RÁÐGJAFA HJÁ RML
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðgjafa sem gæti
sinnt fjölbreyttu ráðgjafar- og þróunarstarfi á sviði landbúnaðar.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
» Starf í ráðgjafateymi RML.
» Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við
annað starfsfólk RML.
» Þróunar og ráðgjafavinna tengd tækniþróun og umhverfis-
málum í landbúnaði.
» Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
» Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði
raungreina, náttúruvísinda tækni eða hagfræði æskileg.
» Þekking á forritun og gagnavinnslu er kostur.
» Þekking á verkefnastjórnun og aðferðafræði LEAN er kostur.
» Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
» Geta til að vinna undir álagi.
» Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í
sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna
að ráðgjafastarfsemi RML.
Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri eða
Selfossi.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu
bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er
dreifð um landið á 13 starfsstöðvum.
Við bendum áhugasömum á heimasíðu ráðgjafarfyrirtækisins
www.rml.is þar sem sótt er um starfið og einnig hægt að kynna
sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og
Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
volundarhus.is · Sími 864-2400
GLÆSILEGT ÚRVAL
AF SUMARHÚSUM á frábærum verðum
www.volundarhus.is