Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 33
árum. Búið er að bæta verulega
við sýningaraðstöðu undir þaki og
endurbæta aðstöðuna utanhúss,
auka rými bæði fyrir dýrin sem
þarna er að finna og gestina.
Þá hefur dýrum verið fjölgað
og finna má ýmis framandi dýr
eins og skjaldbökur og auðvitað
páfagaukana sívinsælu.
Búið er að taka eldhúsmálin
fyrir veitingastaðinn í gegn
samkvæmt ströngustu kröfum og
endurbæta alla aðstöðu innanhúss
og auka við veitingaplássið. Þar
eru að sjálfsögðu vínveitingar eins
og á vel flestum veitingastöðum
landsins. Vatns-
og raflagnir hafa
einnig verið
endurnýjaðar og
stígar utanhúss.
Helgi segir
einstaklega gam-
an að sjá hvað
fólk er viljugt
að koma og
njóta þess sem
þarna er upp á að
bjóða. Þarna er
líka gott aðgengi
fyrir fatlaða og
góð aðstaða
fyrir barnafólk
til að njóta þess
sem í boði er.
Í mínígolfinu
geta líka allir
verið með, allt
frá smábörnum
og upp í afa og
ömmur.
Slakki er vel staðsettur á
því mikla ferðamannasvæði
sem Suðurland er orðið. Ekki
minnkaði gildi staðsetningarinnar
við nýju brúna yfir Hvítá sem
skapaði hringleið fyrir ofan
Reykholt og yfir á Flúðir. Þá
hefur Helgi og margir aðrir líka
horft vonaraugum á væntanlega
brú frá Árnesi og yfir Þjórsá þegar
þar verður reist virkjun. Í dag eru
um 90 kílómetrar frá Slakka í
Galtalæk en það mun styttast niður
í um 30 kílómetra eða svo með
tilkomu brúar úr Árnesi og yfir.
Þá verður öll Rangárvallasýslan
komin á kortið hjá Slakka og
öllum öðrum þjónustuaðilum á
stóru svæði. Bættar samgöngur
og vegtengingar skipta svæðið því
verulegu máli. /HKr.
Danuta og Kuba er par frá Póllandi sem er að ljúka
dýralæknanámi. Þau una sér vel í Slakka þar sem þau
annast eftirlit með dýrunum.
aldar. Það varð síðan kveikjan að því að ráðist var í að breyta gróðrarstöðinni í dýra- og skemmtigarð 1993.
Púttvöllurinn inn af veitingasölunni er alltaf vinsæll.
Grýtubakkahreppur:
Tillögur þóttu
ófullnægjandi
Tveir aðilar óskuðu eftir sam-
starfi við Grýtubakkahrepp
og sendu inn hugmyndir að
upp byggingu ferðaþjónustu í
hreppnum, en hvorug þótti full-
nægjandi
Hreppurinn auglýsti á liðnu
vori eftir samstarfsaðilum um
slíka uppbyggingu sem og afnot
af landi í eigu hreppsins til
þyrluskíðamennsku eftir árið 2021.
Hafa báðir aðilar í framhaldinu
mætt á fund sveitarstjórnar og kynnt
sínar hugmyndir. Sveitarstjórn
hefur farið yfir hugmyndirnar og
metið, m.a. með tilliti til þess hvort
þær séu raunhæfar og líklegt að
þær gangi eftir.
Áfram unnið með hugmyndir
Niðurstaða sveitarstjórnar var að
hvorugur aðili hefði skilað inn
tillögum sem væru fullnægjandi
til þess samstarfs sem lagt var upp
með í auglýsingunni. Niðurstaða
hefur því ekki fengist í málinu og
engin ákvörðun tekin um framhald
samnings um þyrluskíðamennsku
að sinni.
Sveitarstjórn mun áfram vinna
með þær hugmyndir sem hafa verið
uppi og þrátt fyrir að ekki kæmi
niðurstaða nú, hefur sveitarstjórn
fulla trú á því að á næstu árum
verði myndarleg uppbygging í
ferðaþjónustu í hreppnum. /MÞÞ