Bændablaðið - 06.09.2018, Page 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201834
Stórar dráttarvélar í
dag eiga það flestar
sameiginlegt að vera
fjórhjóladrifnar, með
öll dekkin í sömu
stærð og vera knúnar
af hundruð hestafla
sex strokka dísilvél.
Bræðurnir Doug
og Maurice stigu sín
fyrstu skref í hönnun
og smíði dráttarvéla í
gamalli hlöðu á kúabúi
sínu í Minnesota-ríki í
Bandaríkjum Norður-
Ameríku um miðjan áratug síðustu
aldar. Hugmyndin var að smíða
stóra og kraftmikla dráttarvél
sem uppfyllti allar kröfur búsins.
Traktorinn, sem að sjálfsögðu var
kallaður Steiger, var frumsýndur
vorið 1957 og reyndist vel og
margir sýndu honum áhuga.
Fjöldaframleiðsla
Árið 1963 hófu þeir fjölda-
f r a m l e i ð s l u á
dráttarvélunum og
settu saman 125 slíkar
af ólíkum gerðum í
fjóshlöðunni næstu árin.
Allir áttu dráttarvélar
Steiger bræðra það
sameiginlega að vera
fjórhjóladrifnar, öll
hjólin jafnstór og vélin
vel yfir hundrað hestöfl
og knúin áfram af sex
strokka dísilvél. Hönnunin var
svo vel heppnuð að flestar stórar
dráttarvélar byggja á henni enn
í dag.
Steiger dráttarvélarnar hafa
frá upphafi verið stórar og
kraftmiklar. Frumgerðin var 238
hestöfl og vélarnar sem fyrir tækið
framleiddi á árunum 1963 til 1974
voru á bilinu 118 til 300 hestöfl.
Að sex árum liðnum
var orðið nauðsynlegt
að stækka við sig og
byggðu bræðurnir
með hjálp fjárfesta
dráttarvélaverksmiðju í
Fargo og réðu 26 manns
í vinnu. Framleiðsla
óx hratt næstu árin og
traktorarnir seldust vel og Steiger
náði 36% markaðshlutdeild í
sölu á stórum dráttarvélum í
Bandaríkjunum og Kanada.
Árið 1974 var reist enn önnur
verksmiðja og er það verksmiðjan
þar sem Steiger dráttarvélar eru
settar saman í dag.
Stærð og afl
dráttarvélanna hélt
áfram að aukast á
níunda áratug síðustu
aldar í ríflega 500
hestöfl. Steiger vélarnar
þykja vandaðar og eru
þær auglýstar sem
lífstíðareign.
Erfitt efnahagsástand
á níunda áratug
tuttugustu aldarinnar
reyndist fyrirtækinu
erfitt og um tíma starfaði
það á 25% afkastagetu.
Árið 1986 var fyrirtækið
sett í gjaldþrotaskipti og sama ár
keypti Case þrotabúið.
Framleitt fyrir aðra
Eftir að nýja verksmiðjan var
tekin í notkun tók fyrirtækið að
sér að setja saman dráttarvélar
fyrir framleiðendur eins
og Allis-Chalmers, CCIL
Canadian CO-OP og
International Harvester.
Árið 1979 setti
fyrirtækið saman sína tíu
þúsundustu dráttarvél.
18 mínútur að setja
saman dráttarvél
Reyndar er búið
að margendurbæta
verksmiðjuna frá 1974
og í dag vinna þar um 1.100
manns og er sagt að það taki menn
og vélmennin ekki nema átján
mínútur að setja sama fullbúna
nýja dráttarvél. /VH
UTAN ÚR HEIMI
Steiger – stórir traktorar
Erfðatækni og búfjársjúkdómar:
Gera svín ónæm fyrir alvarlegum
PRRS vírussjúkdómi
Vísindamönnum í Skotlandi hefur
tekist með hjálp erfðatækninnar
að gera svín ónæm fyrir alvar-
legum vírussjúkdómi sem
veldur bændum og svínakjöts-
framleiðendum í Evrópu og víðar
milljarða tjóni á ári.
Vírusinn sem um ræðir leggst
á öndunarfæri svína og kallast
á ensku „porcine reproductive
and respiratory syndrome“, eða
PRRS. Sýkt svín eru ekki hættuleg
til neyslu en vírusinn veldur
öndunarörðugleikum, grísadauða
og fósturmissi hjá gyltum.
Þriðjungur svína sýkt
Til þessa hefur engin lækning
verið við sjúkdómnum og þrátt
fyrir varnaraðgerðir til að hefta
útbreiðslu hans er talið að um 30%
eldissvína í Evrópu séu að jafnaði
smituð.
Samkvæmt því sem segir í
fréttum um áfangann náðist ónæmið
með því að fjarlægja þann hluta
erfðaefnis svínanna sem var veikt
fyrir PRRS sýkingunni. Í tilraunum
þar sem svín sem erfðaefnið hafði
verið fjarlægt úr voru hýst með
sýktu svínunum sýndi engin merki
um sýkingu. Svo virðist að það að
hafa fjarlægt hluta erfðaefnisins hafi
ekki haft nein önnur áhrif á svínin
en að gera þau ónæm fyrir PRRS.
Þrátt fyrir að ekki sé enn ljóst
hvort erfðabreytingin falli undir
lög sem banna eldi á erfðabreyttum
gripum í Evrópu til manneldis eru
vonir enn bundnar við að áfanginn
eigi í framtíðinni eftir að hafa mikil
áhrif til aukinnar dýravelferðar
og eigi ekki síst eftir að spara
svínakjötsframleiðendum háar
fjárhæðir vegna betra heilsufars
dýranna.
Vonast er til að áfanginn sé
skref í þá átt að draga úr notkun
á sýklalyfjum í landbúnaði enda
PRRS einungis einn af mörgum
alidýrasjúkdómum sem talið er
að koma megi í veg fyrir með
erfðatækni.
Lagaflækjur
Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu sem
fjármagnaði rannsóknirnar, Genus
Pic, segir að nú sé verið að skoða
lagalega hliðina á því að setja kjöt af
svínunum á markað. Fastlega er gert
ráð fyrir að það muni gerast fyrst
í Bandaríkjunum Norður-Ameríku
þar sem lög um erfðabreytingar eru
ekki eins strangar og í Evrópu. /VH
Talið er að 30% alisvína í Evrópu séu sýkt í öndunarvegi vegna víruss sem fyrst varð vart í Bandaríkjum Norður-
Ameríku á miðjum níunda áratug síðustu aldar.
Aukin kjötneysla mun hafa
slæm áhrif á umhverfið
Ný greining á kjötneyslu í
heiminum bendir til að neysla á
kjöti muni aukast með auknum
fólksfjölda og að aukning í neyslu
kjöts muni hafa verulega slæm
umhverfisáhrif.
Í grein sem birt var í Science
er haft eftir faraldsfræðingi við
háskólann í Oxford að kannanir sýna
að neysla á kjöti í heiminum sé að
aukast og að flest bendi til að hún
eigi eftir að aukast enn meira á næstu
áratugum vegna aukins mannfjölda.
Samkvæmt greininni er ekki nóg
með að mikil kjötneysla sé slæm
fyrir umhverfið, meðal annars vegna
áhrifa kjötframleiðslu til aukinnar
hlýnunar jarðar, því mikil kjötneysla,
sérstaklega unnar kjötvörur,
eykur líkur á ristilkrabbameini og
hjartasjúkdómum.
Fram kemur að meðalneysla á
kjöti jókst úr 23 kílóum árið 1961 í
43 kíló á mann árið 2014. Aukningin
í framleiðslu á kjöti í heiminum
frá 1961 til okkar tíma er ríflega
fjórföld.
Reyndar hefur dregið úr
kjötneyslu í nokkrum löndum
heims undanfarin ár. Kjötneysla
á Bretlandseyjum hefur til dæmis
minnkað um 4,2% og neysla á
beikoni um 7% frá 2012. Aðra sögu
er að segja frá Kína og mörgum
löndum í Austur-Asíu þar sem
neysla á kjöti hefur aukist um 76%
og er enn að aukast frá aldamótum.
Neysla á nautakjöti í Asíu hefur
aukist um 69% og svínakjöti um
42% á sama tíma.
Í dag eru íbúar jarðar tæplega
7,7 milljarðar og gera spár ráð
fyrir að þeir verði 10 milljarðar
árið 2050 ef ekkert alvarlegt
gerist til að draga úr fólksfjölda.
Í greininni í Science segir að ekki
sjái fyrir endann á því hvernig eigi
að sjá stórum hluta þess fólks fyrir
kjöti án þess að ganga alvarlega á
umhverfið og valda gríðarlegum
umhverfisspjöllum. /VH
Neysla á nautakjöti í Asíu hefur aukist um 69% og svínakjöti um 42%.