Bændablaðið - 06.09.2018, Page 38

Bændablaðið - 06.09.2018, Page 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201838 UPPBYGGING&TÆKNI Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal reisti átta íbúða hús fyrir starfsmenn sína: Átta íbúða hús tilbúið á einu ári – Það tók aðeins um hálfan mánuð að reisa þetta fyrsta hús sem byggt er í Bíldudal í nær þrjá áratugi Rúmlega eitt ár leið frá því Íslenska kalkþörungafélagið fékk út hlutað lóð við Tjarnarbraut á Bíldu dal til að byggja þar hús þar til það var tekið í notkun fullbúið. Húsið er raðhús á tveimur hæðum, alls 435 fermetrar að stærð og í því eru átta litlar íbúðir. „Það hefur verið viðvarandi skortur á húsnæði í öllu héraðinu, ekki bara á Bíldudal heldur líka í nágrannabyggðum, Patreksfirði og Tálknafirði,“ segir Einar Sveinn Ólafsson, nýfjárfestingastjóri hjá Marigot hér á landi, en félagið er eigandi Ískalks á Bíldudal. Íbúðirnar eru ætlaðar fyrir starfsfólk félagsins. Ekki hefur verið byggt nýtt hús á Bíldudal í tæplega þrjá áratugi, eða frá árinu 1989. Smíðað í Eistlandi og allt fylgir með Bæjarstjórn Vesturbyggðar úthlutaði félaginu lóðinni í fyrrasumar. Húsið er smíðað í Eistlandi og flutt hingað til lands. Húsið var tekið í notkun með opnu húsi fyrir íbúa Bíldudals og nærsveita, sveitarstjórnarfólk og alþingismenn voru á meðal gesta og eins kom Ásmundur Einar Daðason, ráðherra húsnæðimála. Um eitt hundrað manns litu inn og skoðuðu húsið og íbúðirnar. Húsið er smíðað frá grunni í Eistlandi, hjá byggingafyrirtækinu Akso-Haus, sem einnig annaðist uppsetningu þess í Bíldudal og sá um allan frágang en íbúðirnar eru afhentar fullbúnar til innflutnings, búið að mála, leggja gólfefni, setja upp eldhúsinnréttingu og raftæki, húsgögn sömuleiðis og á baðherbergi sem er dúkalagt eru öll tilheyrandi tæki. Gólfhiti er í gólfum baðherbergja en sérstök varmadæla í hverri íbúð hitar önnur rými. Gekk hratt fyrir sig Einar Sveinn segir að verkið hafi gengið hratt fyrir sig. Skipafélagið Atlantic Shipping ehf., umboðsaðili Akso-Haus, sá um flutning húseininganna til landsins ásamt steyptri botnplötu sem framleidd var í Eistlandi og eins flutti það öll húsgögn í íbúðirnar átta en þau fylgdu með í kaupunum. „Frá því flutningaskipið með farminn lagðist að bryggju við Bíldudal tók aðeins um hálfan mánuð að reisa húsið, tengja lagnir og leggja lokahönd á verkið til að unnt yrði að flytja inn,“ segir hann. Eina færa leiðin Ástæðu þess að Íslenska kalkþör- unga félagið fer þessa leið, aflar sér byggingaleyfis og reisir hús á Bíldudal, segir Einar Sveinn vera þá að mikill og viðvarandi skortur hafi verið á húsnæði í Bíldudal og hefði það hamlað nýráðningum til að uppfylla mannaflaþörf fyrirtækisins. Forsendur hafi ekki verið til staðar fyrir einstaklinga, einkum ungt fólk, til að ráðast í húsbyggingar á staðnum né heldur hafi verið kostur á kaupum á eldra húsnæði, auk þess sem lánastofnanir láni einungis að hámarki fyrir 70% af fasteignamati. „Við töldum að þetta væri eina færa leiðin, að ráðast á eigin kostnað í byggingu íbúðarhúsnæðis á Bíldudal sem við síðar getum selt á almennum markaði ef og þegar aðstæður skapast til þess,“ segir hann. Fjárfestingakostnaður við verkið er í kringum 300 milljónir króna með smíði, húsgögnum, flutningi, uppsetningu og öllu sem til þarf til að flytja inn í íbúðirnar. /MÞÞ Það tók aðeins um hálfan mánuð að reisa húsið, tengja lagnir og leggja lokahönd á verkið til að unnt yrði að flytja inn. Hönnun íbúðanna er öll hin snotrasta. Húsið var tekið í notkun í sumar með opnu húsi fyrir íbúa Bíldudal og nærsveita, sveitarstjórnarfólk og alþingismenn voru á meðal gesta. Húsið er raðhús á tveimur hæðum, smíðað í Eistlandi. Í því eru átta litlar íbúðir. Þægilegur prjóna-/skel jakki úr prjónuðu pólýester og fóðraður að innan með flís. Vasi með rennilás á vinstri ermi og tveir vasar á hliðum. Stórir vasar að innanverðu. Litir: Grár/svartur Stærðir: XS-4XL Prjónasoftshell jakki Verð: kr. 4.900,- KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is Húsið er raðhús á tveimur hæðum, smíðað í Eistlandi. Í því eru átta litlar íbúðir. Um 100 manns mættu í opið hús þegar Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal sýndi nýtt 2. hæða og 8 íbúða raðhús, hið fyrsta sem reist er á Bíldudal í tæp 30 ár. Frá vinstri eru Jane María Sigurðardóttir ásamt ungri dóttur sinni, Ólafíu Maríu, Einar Sveinn Ólafsson, nýfjárfestingastjóri Marigot, eigandi Ískalks á Bíldudal, Gísli Þrastarson, framkvæmdastjóri Atlantic Shipping og eiginmaður Jane Maríu, Einar Ásmundur Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra,sem jafnframt fer með húsnæðismál, og Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins. Rúmlega eitt ár leið frá því Íslenska kalkþörungafélagið fékk úthlutað lóð við Tjarnarbraut á Bíldudal til að byggja þar hús þar til það var tekið í notkun fullbúið.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.