Bændablaðið - 06.09.2018, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 45
Þegar ég starfaði fyrir stjórnar-
svið landbúnaðarmála og
dreif býlisþróunar hjá fram-
kvæmdas tjórn Evrópu sam-
bandsins á árunum 2004 til 2010
kröfðust margir bændur, einkum
kúabændur, þess að njóta verndar
gegn því sem þeir töldu vera
óréttmæta viðskiptahætti.
Bændunum, sem gjarnan
voru einyrkjar eða störfuðu í
litlum samvinnufélögum, fannst
þeir fara halloka gagnvart stóru
smásölukeðjunum og efndu til
mótmæla til að vekja athygli á
ástandinu.
Á meðal þeirra aðgerða
sem Mariann Fischer Boel,
yfirmaður landbúnaðarmála hjá
framkvæmdastjórninni, greip til
var að setja á fót samstarfsvettvang
til að rannsaka það sem betur
mætti fara í matvælakeðjunni.
Þetta starf leiddi til þess að lagðar
voru fram siðareglur á vegum
SCI (Supply Chain Initiative),
framtaksverkefnis evrópskra
hagsmunasamtaka í matvælaiðnaði
þar sem fulltrúar matvælageirans,
merkjavöruframleiðenda, smásala,
lítilla og meðalstórra fyrirtækja og
aðila í landbúnaði eiga fulltrúa.
Markmiðið með reglunum
er að stuðla að sanngjörnum
viðskiptaháttum í matvælakeðjunni.
SCI vill enn fremur tryggja að
fyrirtæki útkljái deilur á sanngjarnan
og gagnsæjan máta og án þess
að umkvartendur þurfi að óttast
hefndaraðgerðir.
Þetta framtak einkageirans
hefur borið nokkurn árangur, en nú
orðið tímabært að bæta um betur
með því að setja lagareglur og gefa
landsyfirvöldum færi á að grípa til
refsiaðgerða gegn þeim sem gerast
brotlegir við reglur.
Markaðurinn klikkar stundum
Nýlegar skoðanakannanir sýna að
almenningur er sammála um að
bændur skuli fá sanngjarna greiðslu
fyrir afurðir sínar, að neytendur eigi
að greiða sanngjarnt verð og að
smásalar eigi sömuleiðis að njóta
sanngjarnrar hlutdeildar. Bændur
geta þá haldið áfram að fjárfesta í
nýsköpun og framleiða afurðir sem
uppfylla kröfur neytenda hvað varðar
gæði og siðlega framleiðsluhætti.
Því miður er það stundum svo
að markaðurinn getur ekki skapað
sanngjarnt viðskiptaumhverfi vegna
þess að einn aðilinn er svo miklu
öflugri en hinir. Og ef markaðurinn
getur ekki tryggt bændum sanngjarnt
verð, hvernig er þá hægt að
betrumbæta markaðinn þannig að
landbúnaður verði áfram arðbær og
gefi kost á nýsköpun?
Valdaójafnvægi verslunar
og bænda
Í evrópska matvælageiranum eru
skýr merki um valdaójafnvægi
á milli aðila í matvælakeðjunni.
Ég veit að þessi mál hafa einnig
verið til skoðunar á Íslandi.
Evrópusambandið hefur nú ákveðið
að grípa til markvissra aðgerða til að
finna viðeigandi lausnir.
Í matvælakeðjunni eru það
gjarnan sjálfstæðir bændur sem
eru einkar berskjaldaðir gagnvart
óréttmætum viðskiptaháttum þar sem
þeir eiga oft ekki annarra kosta völ en
að reiða sig á stórar smásölukeðjur
eða heildsala til að koma vörum
sínum til neytenda.
Þessir smásalar verða sífellt stærri,
færri og valdameiri. Framleiðendur
og birgjar eru hins vegar enn af
öllum stærðum og gerðum, allt frá
einyrkjum og fjölskyldubýlum til
alþjóðlegra stórfyrirtækja. Mikill
meirihluti evrópskra framleiðenda
eru litlir eða meðalstórir og það ætti
að vera pláss á markaði fyrir alla
slíka birgja, burtséð frá stærð þeirra
eða samningsstyrk. Á heilbrigðum
markaði gætu framleiðendur valið
úr fjölda kaupenda.
Aðgerðir ESB
Það hefur reynst erfitt að setja
reglur um óréttmæta viðskiptahætti
þar sem samkeppnisréttur tekur
ekki endilega til þess hvað sé
„sanngjarnt“ eða „óréttmæt“ heldur
til aðstæðna þar sem einn eða fáir
aðilar eru ráðandi á markaði.
Phil Hogan, núverandi yfirmaður
landbúnaðarmála hjá ESB, lagði
nýlega til löggjöf til að styrkja stöðu
bænda í matvælakeðjunni og berjast
gegn óréttmætum viðskiptaháttum í
Evrópu. Á meðal þess sem lagt er til
að banna er dráttur á greiðslum fyrir
vörur sem hætt er við skemmdum,
afpantanir á síðustu stundu, einhliða
eða afturvirkar samningsbreytingar
og kvöð á birgjum til að greiða
smásölum fyrir óseldar vörur eða
þær sem hafa rýrnað.
Aðrir viðskiptahættir verða
einungis heimilaðir ef til staðar er
skýrt samkomulag milli aðila, t.d.
um skil á óseldum matvörum til
birgja eða framleiðenda, greiðslur
framleiðenda til smásala til að tryggja
eða viðhalda birgðasamningum og
greiðslu framleiðanda eða birgis
fyrir kynningu á þeim matvælum
sem verslunin selur.
Samkvæmt löggjöfinni yrði
öllum Evrópulöndunum skylt að
útnefna eftirlitsstofnun sem sér um
að framfylgja nýju reglunum og getur
gripið til viðeigandi refsiaðgerða
eftir atvikum. Þetta mun tryggja
bæði skilvirkni og sanngirni og að
tekið sé á vandamálum í landinu þar
sem þau koma upp. Auk þess geta
ESB-ríkin sjálf gengið lengra en
þessar lágmarksreglur segja til um.
Bóndinn beri ekki byrðina einn
Í nútímasamfélagi er ætlast til
þess að bændur lagi sig stöðugt
að óskum neytenda, sem leggja
síauknar kröfur á herðar þeirra um
gæði, uppruna, lífrænar afurðir og
sjáfbærni. Um leið eru gerðar sífellt
meiri kröfur til bænda um að halda
verði niðri. Bændur geta þó ekki
einir borið allan kostnað af þróun
og nýsköpun.
Síðustu átta árin hefur
framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins unnið að því að
bæta starfsumhverfi bænda. Nú í
desember var samþykkt að auðvelda
bændum að gera sameiginlega
kjarasamninga til að bæta stöðu
sína í matvælakeðjunni. Næsta skref
verður að berjast gegn óréttmætum
viðskiptaháttum, eins og ég minntist
á hér að ofan, en þriðja skrefið, átak
til að auka gagnsæi, fylgir í kjölfarið
síðar í ár.
Þessar aðgerðir koma til
með að styrkja stöðu bænda
í matvælakeðjunni og skapa
sanngjarnara og gagnsærra
viðskiptaumhverfi, bændum,
neytendum og samfélaginu öllu til
hagsbóta.
Michael Mann,
sendiherra Evrópusambandsins
á Íslandi
LESENDABÁS
Bændur verndaðir gegn óréttmætum
viðskiptaháttum
Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.
Gjafagrindur fyrir stórgripi.
Verð aðeins kr. 3 .900 auk vsk.
Upplýsingar og pantanir í símum 899 1776 og 669 1336.
GÓÐAR & ÓDÝRAR GJAFAGRINDUR
Meira fyrir aurinn
Svartárdeild Veiðifélags Skagafjarðar
óskar hér með eftir tilboðum í urriðaveiði
á starfssvæði félagsins í Svartá ofan
Reykjafoss að Írafellsfossi fyrir árin 2019
til 2023, að báðum/öllum árum meðtöldum,
samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum
og fyrirliggjandi upplýsingum.
Útboðsgögn eru afhent hjá umsjónarmanni
útboðsins Stoð ehf. verkfræðistofu í netfangi
stod@stodehf.is og verða þau afhent gegn
10.000 kr. skilagjaldi.
Frestur til að skila inn tilboðum rennur út 20.
september 2018 kl.13:00 og verða tilboðin þá opnuð
í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Útboð
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300