Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 45 Þegar ég starfaði fyrir stjórnar- svið landbúnaðarmála og dreif býlisþróunar hjá fram- kvæmdas tjórn Evrópu sam- bandsins á árunum 2004 til 2010 kröfðust margir bændur, einkum kúabændur, þess að njóta verndar gegn því sem þeir töldu vera óréttmæta viðskiptahætti. Bændunum, sem gjarnan voru einyrkjar eða störfuðu í litlum samvinnufélögum, fannst þeir fara halloka gagnvart stóru smásölukeðjunum og efndu til mótmæla til að vekja athygli á ástandinu. Á meðal þeirra aðgerða sem Mariann Fischer Boel, yfirmaður landbúnaðarmála hjá framkvæmdastjórninni, greip til var að setja á fót samstarfsvettvang til að rannsaka það sem betur mætti fara í matvælakeðjunni. Þetta starf leiddi til þess að lagðar voru fram siðareglur á vegum SCI (Supply Chain Initiative), framtaksverkefnis evrópskra hagsmunasamtaka í matvælaiðnaði þar sem fulltrúar matvælageirans, merkjavöruframleiðenda, smásala, lítilla og meðalstórra fyrirtækja og aðila í landbúnaði eiga fulltrúa. Markmiðið með reglunum er að stuðla að sanngjörnum viðskiptaháttum í matvælakeðjunni. SCI vill enn fremur tryggja að fyrirtæki útkljái deilur á sanngjarnan og gagnsæjan máta og án þess að umkvartendur þurfi að óttast hefndaraðgerðir. Þetta framtak einkageirans hefur borið nokkurn árangur, en nú orðið tímabært að bæta um betur með því að setja lagareglur og gefa landsyfirvöldum færi á að grípa til refsiaðgerða gegn þeim sem gerast brotlegir við reglur. Markaðurinn klikkar stundum Nýlegar skoðanakannanir sýna að almenningur er sammála um að bændur skuli fá sanngjarna greiðslu fyrir afurðir sínar, að neytendur eigi að greiða sanngjarnt verð og að smásalar eigi sömuleiðis að njóta sanngjarnrar hlutdeildar. Bændur geta þá haldið áfram að fjárfesta í nýsköpun og framleiða afurðir sem uppfylla kröfur neytenda hvað varðar gæði og siðlega framleiðsluhætti. Því miður er það stundum svo að markaðurinn getur ekki skapað sanngjarnt viðskiptaumhverfi vegna þess að einn aðilinn er svo miklu öflugri en hinir. Og ef markaðurinn getur ekki tryggt bændum sanngjarnt verð, hvernig er þá hægt að betrumbæta markaðinn þannig að landbúnaður verði áfram arðbær og gefi kost á nýsköpun? Valdaójafnvægi verslunar og bænda Í evrópska matvælageiranum eru skýr merki um valdaójafnvægi á milli aðila í matvælakeðjunni. Ég veit að þessi mál hafa einnig verið til skoðunar á Íslandi. Evrópusambandið hefur nú ákveðið að grípa til markvissra aðgerða til að finna viðeigandi lausnir. Í matvælakeðjunni eru það gjarnan sjálfstæðir bændur sem eru einkar berskjaldaðir gagnvart óréttmætum viðskiptaháttum þar sem þeir eiga oft ekki annarra kosta völ en að reiða sig á stórar smásölukeðjur eða heildsala til að koma vörum sínum til neytenda. Þessir smásalar verða sífellt stærri, færri og valdameiri. Framleiðendur og birgjar eru hins vegar enn af öllum stærðum og gerðum, allt frá einyrkjum og fjölskyldubýlum til alþjóðlegra stórfyrirtækja. Mikill meirihluti evrópskra framleiðenda eru litlir eða meðalstórir og það ætti að vera pláss á markaði fyrir alla slíka birgja, burtséð frá stærð þeirra eða samningsstyrk. Á heilbrigðum markaði gætu framleiðendur valið úr fjölda kaupenda. Aðgerðir ESB Það hefur reynst erfitt að setja reglur um óréttmæta viðskiptahætti þar sem samkeppnisréttur tekur ekki endilega til þess hvað sé „sanngjarnt“ eða „óréttmæt“ heldur til aðstæðna þar sem einn eða fáir aðilar eru ráðandi á markaði. Phil Hogan, núverandi yfirmaður landbúnaðarmála hjá ESB, lagði nýlega til löggjöf til að styrkja stöðu bænda í matvælakeðjunni og berjast gegn óréttmætum viðskiptaháttum í Evrópu. Á meðal þess sem lagt er til að banna er dráttur á greiðslum fyrir vörur sem hætt er við skemmdum, afpantanir á síðustu stundu, einhliða eða afturvirkar samningsbreytingar og kvöð á birgjum til að greiða smásölum fyrir óseldar vörur eða þær sem hafa rýrnað. Aðrir viðskiptahættir verða einungis heimilaðir ef til staðar er skýrt samkomulag milli aðila, t.d. um skil á óseldum matvörum til birgja eða framleiðenda, greiðslur framleiðenda til smásala til að tryggja eða viðhalda birgðasamningum og greiðslu framleiðanda eða birgis fyrir kynningu á þeim matvælum sem verslunin selur. Samkvæmt löggjöfinni yrði öllum Evrópulöndunum skylt að útnefna eftirlitsstofnun sem sér um að framfylgja nýju reglunum og getur gripið til viðeigandi refsiaðgerða eftir atvikum. Þetta mun tryggja bæði skilvirkni og sanngirni og að tekið sé á vandamálum í landinu þar sem þau koma upp. Auk þess geta ESB-ríkin sjálf gengið lengra en þessar lágmarksreglur segja til um. Bóndinn beri ekki byrðina einn Í nútímasamfélagi er ætlast til þess að bændur lagi sig stöðugt að óskum neytenda, sem leggja síauknar kröfur á herðar þeirra um gæði, uppruna, lífrænar afurðir og sjáfbærni. Um leið eru gerðar sífellt meiri kröfur til bænda um að halda verði niðri. Bændur geta þó ekki einir borið allan kostnað af þróun og nýsköpun. Síðustu átta árin hefur framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins unnið að því að bæta starfsumhverfi bænda. Nú í desember var samþykkt að auðvelda bændum að gera sameiginlega kjarasamninga til að bæta stöðu sína í matvælakeðjunni. Næsta skref verður að berjast gegn óréttmætum viðskiptaháttum, eins og ég minntist á hér að ofan, en þriðja skrefið, átak til að auka gagnsæi, fylgir í kjölfarið síðar í ár. Þessar aðgerðir koma til með að styrkja stöðu bænda í matvælakeðjunni og skapa sanngjarnara og gagnsærra viðskiptaumhverfi, bændum, neytendum og samfélaginu öllu til hagsbóta. Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi LESENDABÁS Bændur verndaðir gegn óréttmætum viðskiptaháttum Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Gjafagrindur fyrir stórgripi. Verð aðeins kr. 3 .900 auk vsk. Upplýsingar og pantanir í símum 899 1776 og 669 1336. GÓÐAR & ÓDÝRAR GJAFAGRINDUR Meira fyrir aurinn Svartárdeild Veiðifélags Skagafjarðar óskar hér með eftir tilboðum í urriðaveiði á starfssvæði félagsins í Svartá ofan Reykjafoss að Írafellsfossi fyrir árin 2019 til 2023, að báðum/öllum árum meðtöldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum. Útboðsgögn eru afhent hjá umsjónarmanni útboðsins Stoð ehf. verkfræðistofu í netfangi stod@stodehf.is og verða þau afhent gegn 10.000 kr. skilagjaldi. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út 20. september 2018 kl.13:00 og verða tilboðin þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Útboð Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.