Bændablaðið - 06.09.2018, Qupperneq 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201854
Byggðastofnun hefur úthlutað
rúmlega 170 milljónum króna
í verkefnastyrki til Brothættra
byggða á undanförnum árum.
Markmið verkefnisins er að
stöðva viðvarandi fólksfækkun
í smærri byggðarkjörnum og í
sveitum landsins.
Byggðalög sem flokkast undir
Brothættar byggðir og hlotið hafa
styrk eru Árneshreppur á Ströndum,
Bíldudælur, Borgarfjörður
eystri, Breiðdalshreppur,
Grímsey, Hrísey, Raufarhöfn,
Skaftárhreppur, Þingeyri og
Öxarfjörður.
Margvísleg verkefni
Hátt á annað hundrað verkefni hafa
hlotið styrki að heildarupphæð
170.300.000 króna. Verkefnin sem
hafa fengið styrki eru fjölbreytt
og segja má að þar sé að finna
eitthvað fyrir alla.
Dæmi um verkefni sem
fengið hafa styrk eru uppsetning
á frisbígolfvelli í Grímsey,
skútlægi í Norðurfirði,
uppbygging tjaldsvæðis og
skógræktar í Vesturbyggð, þjálfun
nýliða í Golfklúbbi Bíldudals,
matvælavinnsla beint frá býli og
Strandminjasafn að Hnausum í
Skaftárhreppi svo dæmi séu nefnd.
Skoða má yfirlit yfir allar
úthlutanirnar á heimasíðu
Byggðastofnunar undir Brothættar
byggðir.
Frisbígolfvöllur í Grímsey
Umsækjandi er Kiwanis klúbburinn
Grímur í Grímsey. Frisbígolf nýtur
sívaxandi vinsælda hér á landi og
hafa Kiwanis-félagar í Grímsey
áhuga á því að útbúa nyrsta
frisbígolfvöll á Íslandi. Hugmyndin
er að fá sérfræðinga frá Fuzz til að
koma og veita ráðgjöf við hönnun
og gera tilboð til að hægt verði að
koma hugmyndinni í framkvæmd
sem fyrst. Tillagan er að hanna
völlinn þannig að síðasta karfan
verði yfir heimskautsbaug og með
því má áætla að völlurinn komi
til með að vekja áhuga hjá nýjum
markhóp að koma og heimsækja
eyjuna og kemur það þá til með
að styrkja og efla ferðaþjónustu
í eyjunni. Völlurinn er ekki
síður hugsaður fyrir heimamenn
sem fellur vel að markmiði um
samheldið og þróttmikið samfélag.
Einnig fellur allt verkefnið vel að
starfsmarkmiði um að sérstaða
Grímseyjar verði betur nýtt til
markaðssetningar. Sótt er um
styrk fyrir hönnunar-, efnis- og
ferðakostnaði.
Verkefninu var úthlutað
1.800.000 krónur.
Skútulægi í Norðurfirði
Verkefnið snýr að því að setja út
átta legufæri sem skútur geta lagst
við og bjóða þannig upp á nýja
þjónustu við skútusiglingafólk
sem kemur í Norðurfjörð. Hvert
legufæri er hannað á þann hátt
að skútur allt að 50 fetum geta á
öruggan hátt legið þar og skipverjar
geta farið í land og skilið bátinn
eftir. Hvert legufæri samanstendur
af lóði sem situr á botninum, taug
frá lóðinu í belg og tveimur grennri
tógum sem báturinn er bundinn
við. Baujurnar verða staðsettar
útaf höfninni í Norðurfirði á um
10 til 12 metra dýpi. Þjónustan
yrði auglýst á vefsvæði Cruicing
Association, sem eru alþjóðleg
samtök skútusiglingafólks með
höfuðstöðvar í London. Verkefnið
er áhugavert og góð viðbót við
skútumenningu staðarins ásamt
Húsnæði
Óska eftir íbúð/húsi á leigu í
Hveragerði/ á Selfossi. Sumar-
bústaður í næsta nágrenni kemur
vel til greina. Uppfylli öll skilyrði sem
leigusali óskar sér. Uppl. í síma 662-
5320 eða kolla.magg@icloud.com
Sumarhús
Rotþrær og heitir pottar. Rotþrær-
heildarlausnir með leiðbeiningum
um frágang. Ódýrir heitir pottar
- leiðbeiningar um frágang fylgja.
Borgarplast.is - sími 561-2211,
Mosfellsbæ.
Þjónusta
í síma 663-9589 til að fá uppl. og
tilboð. HP transmission Akureyri,
netfang: einar.g9@gmail.com,
Einar G.
RG-Bókhald. Alhliða bókhalds þjón-
usta fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Upplýsingar: ragna@rgbokhald.is
Til leigu
Tveggja herbergja íbúð til leigu
í Hafnarfirði með húsgögnum
og þvottavél. Uppl. á netfang
steinunn654@simnet.is
Smáauglýsinga-
síminn er:
563 0300
Eldri blöð má
finna hér á PDF:
Volvo Fh16 - Árgerð 2012
Ekinn 650.000 km, 750 hestöfl, glussakerfi.
Lækkað verð: 6.400.000 kr. + vsk
TIL SÖLU
KLETTAGARÐAR 8-10
590 5100 www.klettur.is
DAF FTT XF105 - Árgerð 2008
Ekinn 580.000 km, 500 hestöfl, ný dekk.
Verð: 2.700.000 kr. + vsk
Scania P280 - Árgerð 2009
Ekinn 298.000 km, Vélapallur, góð dekk.
Verð kr. 5.900.000 kr. + vsk
MAN TGA 18.390 - Árgerð 2005
Ekinn 570.000 km, 390 hestöfl.
Verð kr. 1.800.000 kr. + vsk
ER ÞITT BÚ
ÖRUGGUR
OG GÓÐUR
VINNUSTAÐUR?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
FJÓRHJÓL ERU
EKKI LEIKTÆKI
BARNA
Á síðustu árum hafa orðið
mörg slys af völdum fjórhjó-
la. Í flestum tilvikum eru
þessi tæki án veltigrindar.
Gæta skal varúðar við notkun
fjórhjóla og ætíð nota tilskilinn
hlífðarbúnað.
Fjórhjól eru ekki leiktæki barna.
Til sölu er rekstur fyrirtækisins TV verk ehf. á
Trésmiðir
- frábært tækifæri -
Brothættar byggðir. Mynd / Byggðastofnun.
Brothættar byggðir – styrkjaúthlutun:
Markmið verkefnisins er að stöðva
viðvarandi fólksfækkun
– Meðal verkefna er frisbígolfvöllur í Grímsey og skútlægi í Norðurfirði