Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Orlofsíbúðir BÍ
Bændasamtökin eiga og reka
parhús á Hólum í Hjaltadal og
íbúð í Þorrasölum í Kópavogi.
Félögum í BÍ býðst að leigja
þær til orlofsdvalar í lengri eða
skemmri tíma allt árið um kring.
Yfir sumartímann er svo einnig
mögulegt að fá aðgengi að íbúð
á Flúðum.
Félagsmenn í BÍ eru hvattir
til að tryggja sér pláss sem fyrst.
Umsóknareyðublað á pdf-formi má
finna á vefsíðunni bondi.is þar sem
hægt er að fylla út umsókn. Eins er
hægt að fylla út auglýsingu sem er
á bls. 44 í blaðinu í dag.
Auk parhússins á Hólum eiga
Bændasamtökin íbúð í fjölbýlishúsi
í Þorrasölum 13–15 í Kópavogi og
rúmar hún auðveldlega fjóra gesti.
Leigutími getur verið frá einum
sólarhring og upp í viku (hugsanlega
lengur við sérstakar aðstæður).
Skiptidagar eru alla daga nema
laugardaga og sunnudaga. Sængur
og sængurver eru í íbúðinni.
Þeim sem hug hafa á að taka
orlofsíbúð á leigu hjá BÍ er bent
á að hafa samband við Halldóru
Ólafsdóttur hjá Bændasamtökum
Íslands í síma 563-0300 eða í
netfangið ho@bondi.is.
Jón Baldur Lorange, fram-
kvæmda stjóri Búnaðarstofu
Matvælastofnunar, segir að
drátturinn á greiðslum til
sauðfjárbænda eigi sér sínar
skýringar, en fyrirkomulagið hafi
verið í samræmi við reglur.
Svo virðist vera að einhverjir
sauðfjárbændur hafi gert ráð fyrir
að fyrstu stuðningsgreiðslur ársins
vegna búvörusamninga kæmu
þann 1. febrúar. Búnaðarstofa
Matvælastofnunar gaf út tilkynningu
þann dag um að vonast væri til að
hægt yrði að ganga frá ársuppgjöri
beingreiðslna 2017 síðar þann dag
og fyrstu beingreiðslum ársins
daginn eftir. Það dróst hins vegar
til 5. febrúar.
„Í fyrri búvörusamningi var
fyrirkomulag með öðrum hætti sem
kann að hafa valdið misskilningi.
Samkvæmt samstarfssamningi
um sauðfjárrækt milli ríkis og
bænda sem tók gildi 1. janúar
2017 skal Matvælastofnun
gera ársáætlun eigi síðar en 15.
febrúar um heildargreiðslur allra
framleiðenda,“ segir Jón Baldur.
Fyrsta greiðsla í febrúar
„Fyrsta greiðsla ársins skal fara
fram í febrúar þegar búið er að
ganga frá framsali greiðslumarks,
en bændur höfðu frest til 15. janúar
til að gera það. Enn fremur þarf
ársáætlun og uppgjör síðastliðins
árs að liggja fyrir svo hægt sé
að greiða bændum. Ársuppgjör,
ársáætlun og fyrsta greiðsla þriggja
styrkjaflokka af fimm var tilbúin
innan tímamarka, en vinna við
útreikning og greiðslu á sérstökum
stuðningi stjórnvalda í janúar vegna
kjaraskerðingar olli töfum á frágangi
á svæðisbundnum stuðningi og
býlisstuðningi. Heildarársáætlun
fyrir allar stuðningsgreiðslur var
birt undir rafrænum skjölum á
Bændatorginu 28. febrúar, og hafa
bændur 20 daga frá birtingu hennar
til að gera athugasemdir við hana,“
segir Jón Baldur.
Jón Baldur segist skilja það
að sauðfjárbændur hafi viljað fá
fyrstu stuðningsgreiðslur ársins
fyrr. „Við lögðum mikla áherslu
á að koma fyrstu greiðslu ársins
sem allra fyrst til sauðfjárbænda.
Verkefni okkar fyrstu daga ársins
eru hins vegar einfaldlega það
mörg og þetta verður allt að
vinnast í réttri röð.
Ég tek þó fram að fyrirkomulag
greiðslna nú er í fullu samræmi
við reglur, sem kveða á um að
greiðslurnar berist í febrúar.“
Miklar annir hjá Búnaðarstofu
„Skýringarnar á því að ekki
náðist að greiða 2. febrúar, eins
og við stefndum að, eru nokkrar.
Óvenju margar tilkynningar um
framsal á greiðslumarki í sauðfé
vegna komandi árs bárust okkur,
vinna við fyrsta innlausnardag
greiðslumarks mjólkur, þar sem um
100 kúabændur óskuðu eftir kaupum
á greiðslumarki, tók sinn tíma og
að síðustu fólst mikil vinna við
umsýslu vegna aðgerða stjórnvalda
til handa sauðfjárbændum vegna
kjaraskerðingar. Sú vinna varð að
vera í forgangi en reglugerð var sett
um þær 16. janúar og við greiddum
fyrsta hluta stuðningsins til bænda
19. janúar og síðari hluta þann 26.
janúar.
Það breytir ekki því að við
höfum fullan skilning á því að
sauðfjárbændur vilja fá fyrstu
greiðslu ársins fyrr, en til þess að
það sé hægt þarf að búa svo um
hnútana að okkur sé það mögulegt.
Það er rétt að halda því til haga að
árangur okkar í fyrra, á fyrsta ári
nýrri búvörusamninga, verður að
teljast ásættanlegur, þegar haft er
í huga að allar greiðslur komu til
bænda á réttum tíma í samræmi við
búvörusamninga og reglugerðir
stjórnvalda.
Matvælastofnun hefur lagt
metnað okkar í að byggja
upp rafræna stjórnsýslu til að
tryggja fagmennsku, gegnsæi
og traust við framkvæmd
búvörusamninga. Atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið hefur
staðið dyggilega við bakið á okkur í
þessum verkefnum sem hefur skipt
sköpum,“ segir Jón Baldur. /smh
Verð á korni og mjólkurvörum á
heimsmarkaði hækkaði lítillega
í febrúar síðastliðnum en verð á
jurtaolíu er enn lágt. Verðhækkun
á korni ræðst af spám um minni
uppskeru á þessu ári en því síðasta
vegna óhagstæðra veðurskilyrða.
Verð á kjöti stóð nánast í stað milli
mánaða að því undanskildu að verð
á fuglakjöti féll fjórða mánuðinn í
röð. Verð á jurtaolíu hefur haldið
áfram að falla og er núna það
lægsta í 19 mánuði. Pálmaolía féll
mest og er verðlækkunin rakin til
aukinnar birgðasöfnunar í Malasíu
og Indónesíu.
Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu FAO er verð á sykri
það lægsta í tvö ár vegna aukinnar
framleiðslu á sykurrófum. /VH
Heimsmarkaðsverð á korni hækkar
FRÉTTIR
Fyrirkomulag greiðslna til sauð-
fjárbænda í samræmi við reglur
– segir framkvæmdastjóri Búnaðarstofu Matvælastofnunar
Jón Baldur Lorange framkvæmdastjóri Búnaðarstofu Matvælastofnunar.
Mynd / smh
Landgræðslan:
Gamlir lúpínuakrar til leigu
Áhugi fyrir að brjóta nýtt land
til ræktunar hefur aukist hér á
landi. Í eigu Landgræðslu Íslands
er land sem hæglega er hægt að
nota í þessum tilgangi og því
hefur Landgræðslan ákveðið að
leigja óbrotið land til ræktunar í
Gunnarsholti í Rangárþingi ytra.
Reyni r Þors te insson ,
deildarstjóri framkvæmdadeildar
Landgræðslunnar, segir á heimasíðu
Landgræðslunnar að auðvelt sé að
koma við stórum vinnuvélum á
þessum svæðum sem eru slétt og
víðfeðm. „Um er að ræða gamla
lúpínuakra sem hættir eru að þjóna
tilgangi sínum en eru hentugir til
annars konar ræktunar svo sem
fyrir korn eða tún. Í Gunnarsholti
eru tugir hektara, þar sem áður
voru lúpínuakrar, komnir í korn
eða túnrækt.“
Leiguverð er samkvæmt gjaldskrá
Landgræðslunnar. Umsóknir skal
senda á netfangið reynir@land.is
og er umsóknarfrestur til 10. apríl
næstkomandi. Nánari upplýsingar
veitir Reynir í síma 892-1347.
Einnig getur fólk sent fyrirspurnir
á netfangið reynir@land.is. /VH
Vöruviðskipti Íslands
óhagstæð í febrúar
Vöruviðskipti Íslands í febrúar,
reiknuð á fob verðmæti, voru
óhagstæð um 5,3 milljarða
króna.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands fyrir febrúar 2018
nam fob verðmæti vöruútflutnings
48,4 milljörðum króna og fob
verðmæti vöruinnflutnings 53,7
milljörðum króna.
Í febrúar 2018 var verðmæti
vöruútflutnings 16,9 milljörðum
króna hærra en í febrúar 2017 eða
53% á gengi hvors árs. Hækkun var
í öllum flokkum milli ára en mestu
munar um sjávarafurðir.
Verðmæti vöruinnflutnings í
febrúar var 9,4 milljörðum króna
hærra en í febrúar 2017 eða 21%
á gengi hvors árs. Mestu munar
þar um hrá- og rekstrarvörur og
eldsneyti og smurolíur. /VH
Hækkun á sérstöku innvigtunar-
gjaldi á umframmjólk
Stjórn Auðhumlu hefur ákveðið
að hækka gjald fyrir innvigtun á
umframmjólk frá 1. apríl 2018
vegna aukinnar framleiðslu.
Viðleitni til að draga úr
umframframleiðslu á mjólk,
segir formaður LK.
Í frétt á vef Auðhumlu segir að
mjólkurframleiðslan hafi verið
nokkuð meiri nú í byrjun árs en
2015 og 2016.
Í því ljósi hefur stjórn
Auðhumlu, á fundi sínum 28.
febrúar 2018, ákveðið að sérstakt
innvigtunargjald á umframmjólk
verði hækkað í 52 krónur á lítrann
frá 1. apríl 2018.
Arnar Árnason, formaður
Landssambands kúabænda, segir
að líklegustu áhrif hækkunar á
innvigtunargjaldi á umframmjólk
munu vera að slá á framleiðsluvilja
þeirra sem ekki hafa greiðslumark
fyrir allri framleiðslunni.
„Að mínu mati er hækkun
gjaldsins viðleitni til að draga
úr hvata til umframframleiðslu á
mjólk.“ /VH
Ófriður og veðrabreytingar
ógna fæðuöryggi þjóða
Fæðuöryggi íbúa Austur-Afríku
er víða ótryggt. Verðhækkun á
korni og ófriður á svæðinu er
helsta ástæða þessa. Stór hluti
íbúa landa eins og Búrúndi,
Úganda og Sómalíu þarf
mataraðstoð til að halda lífi.
Ófriður í fjölda landa í austan-
verðri Afríku er þess valdandi að
milljónir hafa misst heimili sín og
möguleika á að stunda búskap sér
til lífsviðurværis. Vegna skorts
á mat hefur verð á honum víða
margfaldast og svartamarkaðsbrask
með matvöru er mikið.
Ræningjahópar ráðast á
matvælaflutningalest hvort sem
þær eru á vegum innlendra aðila
eða erlendra hjálparstofnana. Minni
úrkoma vegna veðrabreytinga hefur
einnig leitt til uppskeruminnkunar
og uppskerubrests. Á sama tíma
og uppskerubrestur á korni leiðir
til verðhækkunar dregur hann úr
möguleikum fólks í Austur-Afríku
til að afla sér matar.
/VH
Í umfjöllunum hér í blaðinu
að undanförnu, um verðskrár
afurðastöðvanna, hefur heildar
meðalverð fyrir dilkakjötskílóið
ekki verið rétt hjá Fjallalambi.
Rangar tölur bárust fyrir
samantekt blaðsins og var verðið
sem birtist, 347,69 krónur á kílóið,
heildar meðalverð til bænda á öllu
kjöti. Rétt meðalverð dilka hjá
Fjallalambi var 374,63 krónur á
kílóið. /smh
Verðskrár afurðastöðvanna:
Leiðrétt verð hjá Fjallalambi