Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Nemendur í öðrum bekk í matreiðslu í
Verkmenntaskólanum á Akureyri glíma
við margvísleg og áhugaverð verkefni í
sínu námi. Eitt þeirra var að útfæra hinn
vinsæla en árstíðabundnda rétt, saltkjöt
og baunir, á nýstárlegan hátt. Og spreyta
sig síðan á gómsætum eftirrétti, sem var
hjónabandssæla.
Hallgrímur F. Sigurðsson, matreiðslumeistari
á Akureyri, var gestakokkur dagsins, en hann
rekur tvo veitingastaði í Menningarhúsinu
Hofi, 1862 Nordic Bistro og Nönnu Seafood,
auk þess barinn R5 við Ráðhústorg.
Útkoman þótti einstaklega vel heppnuð
og staðfestu nemendur með vinnu sinni að
saltkjöt er miklu meira en saltkjöt sem er soðið
á sprengidaginn með baunasúpunni. Úr því
er nefnilega hægt að gera dýrindis rétti sem
myndu sóma sér vel á matseðlum veitingahúsa.
Miðlaði kunnáttu en lærði í leiðinni
Hallgrímur segist hafa ánægju af því að prófa
sig áfram með óhefðbundið hráefni eins og
saltkjöt og meðlæti sem passar með því.
Hann útbjó sína útfærslu af saltkjötsréttinum
og hjónabandssælueftirréttinum og miðlaði
kunnáttu sinni til verðandi matreiðslumanna.
„Ég lærði gríðarlega mikið og reyndi að
gefa af mér eitthvað af því sem dottið hefur
inn í reynslubanka minn síðustu 25 árin, eða
svo,“ segir Hallgrímur. /MÞÞ
Nemar í matreiðslu í VMA:
Nýmóðins hjónabandssæla og vellukkuð
útfærsla á saltkjöti og baunum
MÆLT AF
MUNNI FRAM
F átt er dýrmætara en glöggir lesendur ritaðs máls, svo ekki sé nú talað um vísur sem birtar eru á prenti. Oftlega
fæ ég líka athugasemdir við birtar vísur
og eða óskir um leiðréttingu. Í síðasta
vísnaþætti birtist brot úr rímu Höskuldar
Einarssonar frá Vatnshorni ortri til
Sigurðar frá Brún. Þar tókst mér að misfara
með tvær vísur. Sigríður Höskuldsdóttir
á Kagaðarhóli vakir yfir verkum mínum,
og þó sérlega vísum föður síns, enda á
hún þessa rímu föður síns ritaða hans eigin
hendi. Því birti ég hér þær tvær vísur úr rímu
Höskuldar sem ekki reyndust rétt skráðar:
Feyskist víðir, fölna tún,
fjölgar hríðum stærri,
alltaf síðan Siggi Brún
sást ei ríða nærri.
Veðra um gnúinn fjallafald
ferð hann snúa kunni,
við að búa upp tösku og tjald
talaði drjúgum munni.
Síðan rennur ríma Höskuldar áfram:
Valda augum ofsýni,
óró taugum góðum,
þokuhaugar þreifandi
þar á draugaslóðum.
Veðrin þeysa voðadans,
veldið geysa fanna.
Auðnuleysi útlagans
eyðihreysin sanna.
Freðið hauður, fátt um skjól
ferill nauðum skráður,
þar hefir dauðinn búið ból
bjargarsnauðum áður.
Eiga brall við ófarir
eggjar snjalla guma.
Töfrar fjalla táldrægir
trylla og kalla á suma.
Vorið breytir veðrunum,
vermast leiti og hjallar,
tíbrá heit þá titrar um
tröllasveitir allar.
Sindrar glóð um sendinn hól,
seytlur hljóðar glitra,
fjallagróður fer á ról,
fjólur rjóðar titra.
Hæðir reika í hillingum,
hefjast leikir víða,
hvar úr bleikum hverunum
hvítir reykir líða.
Mera barna er misjöfn gerð,
margt er skarni bundið.
Oft hefur þarna einn á ferð
í þeim kjarna fundið.
Stundir langar þurfti þó,
þóf við angurgapann,
uns lét ganga ærsla jó
upp í fangi spakan.
Í þriðja hluta rímunnar breytir um
bragarhátt. ( hringhent og samhent):
Nóttin svalar sárþreyttum,
setur kala af jöklunum,
hestaval á hagblettum
hafa skal í áningum.
Þá er vært í verunum,
vatnið tært í stóránum,
Sigga fært á sandinum,
sumblið kært úr pelanum.
Víða er grýtt með vörðunum,
vegað lítt á öræfum,
þó er frítt á fjöllunum,
frelsið vítt í hreinviðrum.
Væri svöl um veðraskil
vikudvölin hérumbil,
yfir Kjöl og Kiðagil
kastar föli af og til.
Sporagreiðum hestum hann
hottaði á leið er dagur rann,
kaldur reið í kontrosann
kuldinn sveið hann hélaðan.
197
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Það vafðist ekki fyrir nemunum, undir styrkri handleiðslu Hallgríms F. Sigurðssonar, að útfæra hinn vinsæla en árstíðabundnda rétt, saltkjöt og
baunir, á nýstárlegan hátt. Myndir / Óskar Þór.
LÍF&STARF
Hallgrímur F. Sigurðsson, matreiðslumeistari
á Akureyri, var gestakokkur dagsins. Hjónabandssæla, glæný útgáfa.
Læjartún í Ásahreppi:
Opið hús í Uppspuna helgina 17. og 18. mars
Hjónin Tyrfingur Sveinsson og Hulda
Brynjólfsdóttir, sem reka fyrirtækið
Uppspuna í Lækjartúni í Ásahreppi, hafa
ákveðið að vera með opið hús laugardaginn
17. mars frá kl. 13.00 og 11.00 til 16.00 á
sunnudeginum 18. mars.
Þar ætla þau að kynna nýju
smáspunaverksmiðjuna sína, allir eru
velkomnir. Í Uppspuna er verið að framleiða
band, æfa ýmsar útfærslur, prófa sig áfram,
læra nýja hluti og þróa vörur. „Æfingarnar hafa
skilað það góðu að við erum komin með fjórar
tegundir af garni í sölu. Við höfum líka komist
að því að hægt er að vinna 100% hreina ull í
vélunum og garnið er heldur mýkra en hingað
til hefur þekkst.
Í samstæðunni er vél sem skilur að tog
og þel og gefur það marga nýja möguleika.
Markmið okkar er að vinna með sauðalitina
eins og þeir koma af kindinni og eykur það
fjölbreytnina, því mjög margir litir leynast
í íslenska fjárstofninum,“ segir Hulda, sem
hvetur fólk til að koma og sjá vélarnar og
sjá hvað þær geta gert en þær voru keyptar í
Kanada hjá fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir
ullarvinnsluvélar fyrir lítil fyrirtæki og kalla
þær „Mini Mill“. /MHH vörur sem framleiddar eru hjá Uppspuna. Mynd / Hulda Brynjólfsdóttir.