Bændablaðið - 08.03.2018, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Bændur græða landið:
Rúm sjö tonn af fræi
Bætt dýravelferð í svínaeldi á Íslandi og hefðbundnum geldingum hætt:
Um 99% galtargrísa eru nú
bólusettir gegn galtarlykt
Hefðbundin gelding á galtargrísum
þekkist varla lengur hér á landi og
er það mikil breyting á stuttum
tíma til bættrar dýravelferðar og
sennilega sú hraðasta sem þekkist
í heiminum.
Vigdís Tryggvadóttir, sérgreina-
dýra læknir svínasjúkdóma og súna
hjá Matvælastofnun, segir að mikil
breyting hafi orðið á hvað varðar
geldingu á galtargrísum í svínaeldi
hér á landi á stuttum tíma. „Í dag er
afar sjaldgæft að galtargrísir séu geltir
á hefðbundinn hátt með skurðaðgerð
en þá eru eistun fjarlægð. Aðgerðin
er framkvæmd undir staðdeyfingu
og verkjastillingu.“
Upplýsingar um bólusetningu
galtargrísa byggja á seldum
skömmtum bóluefnis, eftirliti Mast
og upplýsingum frá bændum.
Bændur ánægðir með
bólusetninguna
„Til 2014 voru galtargrísir geltir
án deyfingar en eftir mikla
fjölmiðlaumræðu og tilkomu
nýrra laga um velferð dýra ákváðu
svínabændur að fá dýralækna til að
gelda galtargrísina með staðdeyfingu
og verkjastillingu.
Strax í kjölfarið var farið að skoða
aðrar og betri leiðir til að koma í veg
fyrir galtarlykt og galtarbragð með
því að bólusetja. Aðferðin reyndist
vel og fleiri bændur fóru að bólusetja
og er sú aðferð allsráðandi í dag,“
segir Vigdís.
Galtarlykt og bragð
Gelding grísagalta er framkvæmd
vegna þess að galtarlykt og
eða galtarbragð í kjöti galta
eftir kynþroska veldur mörgum
óþægindum og óbragði við eldun
á svínakjöti.
Stór hluti neytenda er næmur
fyrir lyktinni, sem er neytendum
hættulaus, og til að hindra að
svínakjöt með galtarlykt fari á
markað eru galtargrísir geltir. Lyktin
og bragðið er sama eðlis og þegar
talað er um hrútabragð af kjöti.
Vigdís segir að tvennt valdi
galtarlykt. „Annars vegar
kynhormónið androstenone og
hins vegar lífræna efnasambandið
skatole. Skatole myndast í þörmum
allra svína, jafnt gyltum sem og
göltum, en þar sem lifur svína brýtur
niður skatole veldur það venjulega
ekki galtarlykt. Androstenone
myndast í eistum galtargrísa við
kynþroska. Androstenone veldur
galtarlykt eitt og sér en það dregur
líka úr niðurbroti skatole í lifrinni
sem safnast þá upp og veldur þá
enn frekar galtarlykt hjá kynþroska
göltum.“
Bóluefnið stuðlar að myndun
mótefna
„Bóluefnið gegn galtarlykt,
Improvac, er ekki hormón eins og
margir halda og hefur ekki bein áhrif
á hormónakerfið. Galtargrísirnir
eru sprautaðir tvisvar með fjögurra
vikna millibili með próteini sem
örvar ónæmiskerfið til að mynda
mótefni.
Mótefni hefur þau áhrif að eistu
galtargrísa fá ekki skilaboð að
mynda androstenone. Þannig dregur
það úr galtarlykt hjá galtargrísum,
bæði beint með að hindra myndun
androstenone og óbeint með að lifrin
vinnur án áhrifa frá androstenone
og brýtur skatole niður líkt og í
gyltum.“
Íslensk svínabú í fararbroddi
„Bóluefni gegn galtarlykt kom á
markað fyrst árið 1998 í Ástralíu
og hefur verið notað þar síðan.
Lyfið fékk síðan markaðsleyfi hjá
Lyfjastofnun Evrópu árið 2009, en
til að fá markaðsleyfi þurfa að liggja
fyrir ítarlegar rannsóknir um öryggi
þess.
Ég tel aðferðina tvímælalaust
stórt skref fram á við hvað
dýravelferð varðar og aðferðin er
hvergi jafn útbreidd og hér á landi.
Vitað er að verið er að bólusetja að
hluta í sumum Evrópulöndum, svo
sem Belgíu, Svíþjóð og Noregi,
en víðast hvar annars staðar er
hefðbundin gelding algengust og
jafnvel án deyfingar.“
Hefð fyrir galtakjöti til staðar
erlendis
„Í sumum löndum er geldingu
sleppt og framleitt svínakjöt með
galtarlykt. Hefð fyrir þess konar
kjöti er algeng í Bretlandi, Spáni
og Ítalíu og það er algengt á markaði
þar. Í öðrum löndum er galtargrísum
einfaldlega slátrað áður en þeir ná
kynþroska og þannig komið í veg
fyrir galtarbragðið,“ segir Vigdís.
Hættulaust neytendum
Vigdís segir að svínakjöt frá
bólusettum svínum sé hættulaust
neytendum og engin hætta á að
efnið berist áfram upp fæðukeðjuna.
„Bóluefnið hefur enga virkni við
inntöku þar sem meltingarensím
eyðileggja byggingu þess og þar
með virkni. Bóluefnið er uppbyggt af
próteinum og líkt og önnur prótein,
brotnar það niður í amínósýrur í
meltingarkerfinu.
Bóluefnið er aftur á móti ekki
hættulaust í meðhöndlun líkt
og mörg önnur lyf sem notast
er við. Notaðar eru sérstakar
öryggisinngjafasprautur og
haldin hafa verið námskeið fyrir
dýralækna um notkun og meðferð
á inngjafasprautunum og lyfinu.
Dýralæknar hafa síðan þjálfað þá
starfsmenn svínabúa sem sinna
bólusetningum.
Strangar öryggiskröfur gilda um
meðferð lyfsins og möguleg slys,
svo sem stunguslys.“ / VH
Síðastliðið haust greindust tveir
plöntusjúkdómar í tómatrækt
hérlendis og einn í agúrkurækt.
Um er að ræða pepino mosaic virus
(PepMV) og spóluhnýðilssýkingu
(Potato Spindle Tuber Viroid) í
tómatrækt og cucumber green
mottle mosaic virus (CGMMV)
í agúrkurækt.
Í kjölfarið birti atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytið reglugerð
um aðgerðir til varnar útbreiðslu
plöntusjúkdóma og Matvælastofnun
birti leiðbeiningar um smitvarnir við
garðyrkjurækt. Einnig var ráðgerð
sýnataka í tómatrækt, agúrkurækt
og kartöflurækt.
Eins og fram kemur í reglugerð
933/2017 um aðgerðir til varnar
útbreiðslu plöntusjúkdóma er
ræktendum garðyrkjuafurða
gert að taka upp smitvarnir til
þess að takmarka útbreiðslu
plöntusjúkdóma.
Í leiðbeiningum um almennar
smitvarnir fyrir ræktendur
garðyrkjuafurða sem Mast hefur birt
á heimasíðu sinni, http://www.mast.
is/frettaflokkar/frett/2018/03/01/
Leidbeiningar-um-smitvarnir-thrif-
og-sotthreinsun-a-grodurhusum/,
segir meðal annars:
Ræktendur þurfa að greina
umfang eigin rekstrar og taka
smitvarnir föstum tökum til þess að
fyrirbyggja að smit berist til og frá
ræktunarstöðum. Birtar hafa verið
lágmarks smitvarnir sem miða að
þríþættri nálgun smitvarna:
1. Smitvarnir við inn- og útganga
2. Svæðaskipting og skipulag
húsnæðis
3. Staðlað verklag starfsmanna.
Mikilvægt er að ræktendur taki upp
eins víðtækar smitvarnir og kostur
er.
Matvælastofnun beinir því enn
fremur til ræktenda sem ákveða að
þrífa og sótthreinsa hús hjá sér að
kynna sér aðferðir og efnanotkun
vandlega áður en tekist er á við
verkefnið. Við slík þrif er mikið
undir og afar mikilvægt að þrif
og sótthreinsun beri árangur.
Reglubundin þrif á gróðurhúsi eru
mikilvæg fyrir gott plöntuheilbrigði.
Birtar hafa verið leiðbeiningar um
þrif og sótthreinsun gróðurhúsa sem
verða uppfærðar eftir því sem við á.
/VH
MAST hvetur ræktendur til að þrífa
og sótthreinsa gróðurhús
Nýlega kom út ársskýrsla
um samstarfsverkefnið
Bændur græða landið, fyrir
árið 2017. Bændur græða
landið er samstarfsverkefni
L a n d g r æ ð s l u n n a r o g
landeigenda um stöðvun rofs
og uppgræðslu heimalanda.
Á árinu 2017 voru skráðir
þátttakendur 548, af þeim voru
á árinu 499 virkir þátttakendur. Í
skýrslunni segir að þátttakendur í
verkefninu hafi í heildina borið á
1063,9 tonn af áburði og sáð 7.170
kíló af fræi.
Samstarfsverkefni bænda og
Landgræðslunnar
Bændur græða landið er
samstarfsverkefni bænda og
Landgræðslunnar um uppgræðslu
heimalanda. Verkefninu var
formlega hleypt af stokkunum
árið 1994 en fyrirrennarinn var
óformlegra samstarf bænda og
Landgræðslunnar um uppgræðslu
á heimalöndum.
Markmið verkefnisins er
einkum uppgræðsla heimalanda
og skilyrði fyrir þátttöku í
verkefninu er að á landinu
séu lítt eða ógróin svæði og
að beitarálag þar sé hóflegt.
Starfsmenn Landgræðslunnar
sjá um faglega ráðgjöf og eftirlit
með verkefninu en þátttakendur
sjá um beina vinnu við verkefnið,
s.s. pöntun á áburði, áburðargjöf
og sáningu. Landgræðsla ríkisins
styrkir bændur um 85% af verði
uppgræðsluáburðar og lætur þeim
í té fræ ef þess gerist þörf.
Kostnaður
Sértekjur verkefnisins voru
framlög sveitarfélaga sem námu
ríflega 3,5 milljónum króna.
Kostnaður vegna verkefnisins var
rúmar 68 milljónir króna.
Í lokaorðum skýrslunnar segir
að verkefnið eigi upphaf sitt í
svokölluðu heimalandaverkefnis
sem hófst árið 1990 og hefur því
verið rekið með nær óbreyttu
sniði í 27 ár. Frá upphafi hefur
BGL verið eitt af mikilvægustu
verkefnum Landgræðslunnar og
fyllilega sannað gildi sitt.
Í gegnum verkefnið hefur
fjölmörgum hekturum ógróins eða
illa farins lands verið umbreytt í
gróið land, jarðvegsrof hefur verið
stöðvað, auk þess sem verkefnið
er grundvöllur öflugs og náins
samstarfs Landgræðslunnar við
bændur og aðra landeigendur um
allt land.
Með verkefninu hefur
skilningur bænda á landnotkun og
landgræðslu aukist og einnig hefur
bæst verulega í þekkingarbrunn
Landgræðslunnar. /VH
FRÉTTIR
Bólusetning gegn galtarlykt er stórt skref fram á við hvað dýravelferð varðar og aðferðin er hvergi jafn útbreidd
og hér á landi.
Vigdís Tryggvadóttir, sérgreina-
dýralæknir svínasjúkdóma og súna
hjá Matvælastofnun.
Gyltur eiga 8 til 12 grísi í goti sem
eru frá 400 til 800 grömm að þyngd
við got.
Síðastliðið haust greindust tveir
plöntusjúkdómar í tómatrækt
hérlendis og einn í agúrkurækt.
/Mynd Odd Stefán.
Í heildina báru þátttakendur í verkefninu Bændur græða landið á 1063,9
tonnum af áburði og sáðu 7.170 kíló af fræi árið 2017.