Bændablaðið - 08.03.2018, Side 22

Bændablaðið - 08.03.2018, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Landsýn – ráðstefna um aukið virði landafurða: Gera þarf stuðningskerfið sveigjanlegra – Bændur valdalitlir í verðmyndunarferlinu Á ráðstefnunni Landsýn, aukið virði landafurða, sem haldin var í Salnum í Kópavogi föstudaginn 23. febrúar, flutti Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, erindi þar sem tekist var á við spurninguna um hvert virði landbúnaðarafurðanna væri og hvað yrði um það. Hann greindi opinbera stuðninginn og það sem tölur liggja fyrir um, en einnig verðmætin sem liggja undir yfirborði umræðu og opinberra gagna. Heildar framleiðsluvirði landbúnaðarins 66 milljarðar Jóhannes byrjaði á að sýna glæru þar sem fram kom hvert framleiðsluvirði landbúnaðarins væri eftir greinum. Heildar grunnverð árið 2016 var 66 milljarðar króna og var hlutur nautgriparæktarinnar mestur, eða 34 prósent. Inni í þeim hluta eru allar greiðslur til bænda reiknaðar með – til að mynda beingreiðslur – en framleiðslutengdir skattar dregnir frá. Samanlagður jarðargróði til fóðurs annars vegar (19 prósent) og manneldis hins vegar (8 prósent) var næststærstur með 27 prósent og sauðfjárræktin var með 16 prósent. Því næst braut Jóhannes niður ráðstöfun framleiðsluvirðisins, en samkvæmt Jóhannesi er í heimildum Hagstofu Íslands einungis til yfirlit yfir þetta hjá öllum greinunum til samans. Þar kemur í ljós að mestur hluti fer í fóður og fóðuröflun, eða 38 prósent. Liðurinn „önnur aðföng“ fær 29 prósent og 14 prósent fer í liðinn „tekjur af atvinnurekstri“. Gögn vantar um raunverulega verðmyndun Að sögn Jóhannesar er aðeins hálf sagan sögð – og varla það – um virðiskeðjuna þegar þarna er komið sögu. Lítið sé til af opinberum gögnum um verðmyndun íslenskra landbúnaðarafurða frá haga til maga. Hann tók þó dæmi af verðmyndun lambakjöts árið 2012, sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri vann upp úr gögnum Hagstofu Íslands – og var framreiknað til ársins 2014. Bændur fengu í því dæmi 41 prósent afurðavirðisins, 24 prósent kom í hlut kjötvinnslu, verslunin 15 prósent og sláturhúsin fengu 14 prósent. Sex prósent kæmi svo í hlut ríkisins sem virðisaukaskattsgreiðslur. Inn í þetta dæmi þyrfti að taka til greina að frá árinu 2016 hefði lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda orðið 35-40 prósent. Á sama tíma hefði heildsöluverð á lambakjöti ekki lækkað að ráði. Hann sagði að ljóst væri að bændur hefðu misst stjórn á hlut sínum í verðmynduninni. Hann sagði að það væri oftast þannig að bóndinn væri litli aðilinn í virðiskeðjunni, sérstaklega í þeim greinum þar sem margir bændur væru að framleiða eina vöru – eins og ætti við um sauðfjárræktina. Kjötgreinar keppa innbyrðis á markaði Jóhannes fór svo aðeins ofan í hlut bænda í verðmynduninni. Greinarnar stæðu misvel, til að mynda gagnvart því að laga framboð að eftirspurn hverju sinni. Hann tók dæmi af kjúklingarækt þar sem þetta væri nærtækt, þar sem framleiðsluferillinn væri stuttur, fáir framleiðendur og slátrað allt árið um kring. Hann benti á að fyrirkomulag opinbers stuðnings geti haft veruleg áhrif á jafnvægi varðandi framboð og eftirspurn á kjötmarkaði. Offramboð af einni kjöttegund geti líka haft áhrif á aðrar, en kjötgreinarnar keppa innbyrðis á markaði. Til að setja málin aðeins betur í samhengi ræddi Jóhannes næst um opinberan stuðning við landbúnað á Íslandi. Þar kom fram – í tölum frá 2016 – að beinn stuðningur við bændur væri um 13 milljarðar. Tollvernd, sem væri munurinn á áætluðu innflutningsverði og innlendu verði, væri metinn sex til átta milljarðar á ári. Heildarframleiðslustuðningur árið 2015, sem hlutfall af tekjum bænda, var 44 prósent á Íslandi. Til samanburðar var hann 58 prósent í Noregi en 18 prósent í Evrópusambandinu. Af hverju eigum við að styðja við íslenskan landbúnað? Jóhannes sagði það augljóst að það kosti meira að framleiða mat hér heima en að flytja hann inn. Menn verði því að spyrja sig í hverju virði íslensks landbúnaðar liggi og hverjar séu raunverulegar ástæður fyrir því að styðja við innlenda framleiðslu. Nokkrar ástæður væru fyrir því sem kannski ekki nægjanlega oft væri haldið á lofti í almennri umræðu þótt þær kæmu gjarnan fram til dæmis við gerð búvörusamninga. Fæðuöryggi væri ein af þessum ástæðum; að Ísland sé sjálfstæðara í eigin fæðuöflun með innlendri framleiðslu en ef ódýrasta leiðin væri farin. Matvælaöryggi væri önnur ástæða en Íslendingar geta Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Jensen 704 umgjörð kr. 18.900,- Mynd / smh

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.