Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 24

Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Svava Hrönn Guðmundsdóttir er upprunnin frá Akureyri, en amma hennar átti heima á Árskógsströnd. Hún er lyfjafræðingur að mennt og starfaði við þá grein bæði í Svíþjóð og hér heima þar til hún missti vinnuna í hruninu. Þá sneri hún við blaðinu og fór í skóla og hóf að framleiða sinnep. Svava sýndi vörur sínar undir nafninu Sælkerasinnep Svövu, ásamt mörgum öðrum matvælaframleiðendum og bændum á matarmarkaði Búrsins í Hörpu um helgina. En hver skyldi hafa verið kveikjan að því að íslenskur lyfjafræðingur ákveður að hefja framleiðslu á sinnepi sem sækir bragð í íslenska náttúru? „Ég bjó í Svíþjóð í mörg ár þar sem mikil hefð er fyrir að borða sinnep af ýmsum toga með öllu mögulegu. Þegar ég flutti heim vantaði mig sinnep, sem Svíarnir kalla Skánskt sinnep, til að glassera hamborgar hrygg inn og sænsku jólaskinkuna. Þá var ekki um annað að ræða en Dijon sinnep eða SS sinnep. Þar sem ég var búin með birgðirnar frá Svíþjóð sagði bóndinn við mig, „getur þú ekki bara gert þetta sjálf?“ Nú, ég vann sem lyfjafræðingur í apóteki í Svíþjóð og þar var búið til sinnep fyrir jólin. Ég fór því að fikta og endaði með eina gerð af sinnepi sem er nú grunnurinn hjá mér. Þetta sinnep framleiddi ég í meira en 25 ár, einungis fyrir fjölskylduna mína. Þetta hlóð utan á sig og brátt var þetta stórfjölskyldan, sem og vinir, kunningjar og þeirra vinir.“ Missti vinnuna, fór í Hólaskóla og gerðist sinnepsframleiðandi „Svo gerðist það að ég missti vinnuna í upphafi efnahagshrunsins. Þá var ég orðin svo gömul að það var ekki hlaupið að því að fá aðra vinnu. Ég ákvað því að fara í skóla og tók viðburðastjórnun í fjarnámi á Hólum. Þar gerði ég fyrstu rekstraráætlunina. Ég fór svo bara af stað með þessa framleiðslu á einni tegund 2014 og byrjaði að selja hana á jólamarkaðnum í Hörpu. Síðan fór ég að prófa mig áfram og reyna að gera sinnepið meira íslenskt, eins og að bæta við aðalblá- berjum sem ég fæ af Vest fjörðum og blóðbergi. Bjór, sem ég nota í sinnepið, er Kaldi lager af Árskógssandi. Núna er ég svo komin með sinnep sem er með Flóka gini. Þá er ég að gera sinneps- pestó. Þar skipti ég út parmesan ostinum og set sinnep í staðinn. Þeir sem einungis borða veganfæði geta því einnig borðað þetta pestó. Þess ber að geta að ég nota í þetta repjuolíuna frá þeim á Vallarnesi. Það var reyndar ekki fyrr en ég fór að nota hana að þetta small almennilega saman.“ Takmarkið að gera sænska hefð að íslenskri „Mitt takmark er að nota alltaf í mínar vörur íblöndunarefni, kryddjurtir og annað sem ekki eru keypt af stóru fyrirtækjunum, heldur fengin frá heimafólki úr héraði vítt og breitt um landið. Það má eiginlega segja að ég taki sænska hefð með það að takmarki að gera hana íslenska. Um leið er ég að kenna Íslendingum að það er hægt að borða sinnep með ýmsu öðru en pylsum. Það er nefnilega hægt að borða sinnep nánast með öllu.“ Svava selur sínar vörur m.a. í Búrinu, hjá Frú Laugu, Melabúðinni, Hverfisbúðinni í Grafarvogi og Fiskkompaníinu á Akureyri. Hún segist ekki vera að selja sínar vörur á netinu sem stendur. Þar hafi hún prófað að selja í gegnum Reko en það virtist ekki virka. Skilar ekki háum launum en er skemmtilegt „Þetta hefur bara gengið bærilega,“ segir Svava. „Fyrirtækið borgar svo sem ekkert sérstaklega hátt kaup, þegar maður fær laun á annað borð. Þetta er hins vegar skemmtilegt, annars væri ég ekki að þessu. Til að láta þetta ganga upp vinn ég svo aðeins með þessu sem lyfjafræðingur, dag og dag eða viku og viku í apótekinu í Costco,“ segir Svava Hrönn Guðmundsdóttir. /HKr. Kristín Helga Ármannsdóttir, bóndi á sauðfjárbúinu á Ytra- Hólmi, skammt austan við Akranes, segist vera búin að fikta við fullvinnslu sauðfjárafurða í nokkur ár. Hún var að kynna afurðir sínar í Matarmarkaði Búsins í Hörpu um liðna helgi ásamt Láru Ottesen þegar tíðindamann Bændablaðsins bar að garði. Kristín segist hafa nýtt sér leyfisvarða aðstöðu utan búsins til framleiðslunnar en sé nú að koma sér upp aðstöðu heima fyrir. Eingöngu afurðir af eigin býli „Hér er ég eingöngu með afurðir af okkar býli. Þar er ég aðallega með kofareykt sveitabjúgu, tvíreykt hangikjöt og grafinn ærvöðva. Svo er ég aðeins að fikta við að vinna úr lambakjöti, en hingað til hef ég eingöngu verið með ærkjöt.“ Hún segir að hugsunin hafi verið sú að ná meiri verðmætum út úr ærkjötinu en þau fái hún í gegnum skilaverð frá sláturhúsunum sem er mjög lágt. Segir hún ærkjötið líka henta mun betur í ýmsa framleiðslu en lambakjötið og það hafi komið mjög vel út. Hún segist ekki skilja hvernig hægt sé að klúðra markaðssetningu á þessu kjöti. Ærkjötið er frábært „Þetta er frábært hráefni og ekkert er betra en ærkjöt í bjúgu. Geymsluþolið er þó kannski ekki eins mikið.“ Kristín segir að útlendingar séu svolítið að kaupa þessar afurðir úr ærkjöti þótt þeir fitji jafnvel upp á nefið þegar minnst er á lambakjöt. Hún hafi því alveg hætt að minnast á lambakjöt þegar hún spjallar við ferðamenn og tali þess í stað bara um kindakjöt. „Annars er þetta mín handavinna og ég er ekki farin að prjóna ennþá,“ segir sauðfjárbóndinn Kristín Ármannsdóttir. /HKr. Kristín Helga Ármannsdóttir, bóndi á sauðfjárbúinu á Ytra-Hólmi: Nær auknum virðisauka með framleiðslu á bjúgum og öðru góðgæti úr ærkjöti Krístín Helga Ármannsdóttir, bóndi á sauðfjárbúinu á Ytra-Hólmi, og Lára Ottesen. Mynd / HKr. Lyfjafræðingurinn Svava Hrönn Guðmundsdóttir gerir sænska hefð að íslenskri : Efnahagshrunið var kveikjan að framleiðslu á íslensku sinnepi Lyfjafræðingurinn Svava Hrönn Guðmundsdóttir kennir Íslendingum að meta sinnep að hætti Svía. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.