Bændablaðið - 08.03.2018, Page 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
HUGMYNDA
SAMKEPPNI
Orka náttúrunnar, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og
Nýsköpunarmiðstöð Íslands efna til hugmyndasamkeppni
um nýtingu varmaorku á Suðurlandi.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem finnst víða á Suðurlandi og
býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka
fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi.
Um er að ræða almenna hugmyndasamkeppni og hún er öllum opin. Hugmyndir verða áfram eign þeirra sem
skila inn tillögum. Ekki er gerð krafa um að hugmyndir verði framkvæmdar.
Heildarupphæð verðlauna er 3.000.000 kr. og verða fyrstu verðlaun að lágmarki 1.500.000 kr.
Tillögum skal skila með tölvupósti á netfangið samkeppni@sass.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. apríl 2018.
Ítarlegri upplýsingar má finna á slóðinni www.sass.is/hugmyndasamkeppni
Veðrið getur haft
áhrif á glókollinn
„Veðrið getur farið illa með
smáfugla, eins og glókoll,
auðnutittling og músarrindil.
Stofnar þessara fugla sveiflast eftir
veðri og hafa slæm vetrarveður
verst áhrif á þá. En þeir virðast
alltaf ná sér á strik aftur.
Þetta er sérstaklega áberandi
hjá hinum nýja landnema, glókolli.
Stofninn hefur tvisvar hrunið á
þeim 20 árum sem þeir hafa orpið
hér, en þeir hafa náð sér vel á
strik aftur á þremur árum,“ segir
Jóhann Óli Hilmarsson, formaður
Fuglaverndarfélags Íslands, þegar
hann var spurður hvernig veðrið
eins og það hefur verið eftir áramót
hefur farið með fugla landsins.
Meðfylgjandi mynd tók Jóhann Óli
af glókolli í garðinum við Hallskot
í Friðlandinu í Flóa en þessi fugl er
minnsti fugl í Evrópu. /MHH
Sigursveinn Sigurðsson, sem sest í
stól skólameistara Fjölbrautaskóla
Suðurlands 1. ágúst í sumar.
Mynd / MHH
Yngsti skóla-
meistari landsins
Sigursveinn Sigurðarson, kennari
við Fjölbrautaskóla Suðurlands
á Selfossi, hefur verið ráðinn
skólameistari í eitt ár við skólann,
frá 1. ágúst 2018 til 1. ágúst 2019.
Um er að ræða þann tíma sem Olga
Lísa Garðarsdóttir skólameistari
tekur sér ársleyfi frá störfum.
Sigursveinn er ekki nema 38 ára og
þá mjög líklega yngsti skólameistari
landsins. Hann á ekki langt að sækja
skólameistaratitilinn því pabbi
hans, Sigurður Sigursveinsson, var
skólameistari Fjölbrautaskólans í 14
ár. „Starfið leggst mjög vel í mig,
þetta er mikil og spennandi áskorun
sem ég er að fara að takast á við,“
segir Sigursveinn. /MHH
Lágu afurða-
verði mótmælt
Aðalfundur Fjárræktarfélags
Sveinsstaðahrepps, var haldinn á
Blönduósi nýverið.
Samþykkt var ályktun þar sem
fundurinn mótmælti harðlega því
verði sem SAH-Afurðir greiddu fyrir
sauðfjárafurðir síðastliðið haust.
Aðalfundurinn skorar á fyrirtækið
að greiða sambærilegt verð og aðrar
afurðastöðvar gera.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300