Bændablaðið - 08.03.2018, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Munið að p
anta fyrir
15
mars 201
8
Lambamerkin fást í tveimur útgáfum:
Rototag®
Tagomatic®
TagoMatic eru einföld og ódýr merki. Þau eru í
einu lagi og merkingin er laser-prentuð á merkið.
Þessi merki eru úr lakara næloni en Rototag
merkin, svokölluð sláturmerki og hönnuð til þess
að endast í eitt ár og duga vel í það. Tölurnar eru
stórar og greinilegar á merkinu. Þar sem merkið
er í einu lagi er fljótlegra að hlaða ísetningar-
töngina. - Einföld merki á frábæru verði.
Athugið: Lágmarkspöntun á öllum merkjum er nú 50 stk og fjöldi merkja þarf að standa á heilum tugum.
Sama töngin gengur ekki fyrir Tagomatic og Rototag. Helmingsafsláttur af ísetningartöngum með fyrstu pöntun.
Rototag eru gömlu og góðu Dalton lambamerkin.
Þau eru í tveimur hlutum, framleidd úr hágæða næloni.
Merkingin er laser prentuð
Verð kr.
án vsk.
27,-
Verð kr.
án vsk.
39,-
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Samhliða því að trjátegundum
í Evrópu fækkar dregur það úr
líffræðilegri fjölbreytni í álfunni.
Nýjar rannsóknir sýna að pöddum
af öllu tagi hefur einnig fækkað.
Ekki síst bjöllum sem lifa á trjám.
Ýmsum kann að þykja það kostur
að pöddum og skorkvikindum
fækki í nærumhverfi sínu en slíkt
er verulega vanhugsað. Pöddur af
öllu tagi eru nauðsynlegar til að
frjóvga plöntur, ekki síst ávaxtatré,
og pöddurnar eru nauðsynleg fæða
fugla og lítilla spendýra.
Bjöllum fækkar
Bjöllur geta verið skaðræðis-
kvikindi og valdið verulegum
búsifjum á ökrum og í skógrækt og
viðarvinnslu. Talning á bjöllum í
Evrópu sýnir að þeim hefur fækkað
gríðarlega og eru þær taldar til þeirra
pöddutegunda sem fækkar hraðast.
Á þetta sérstaklega við svokallaðar
barkarbjöllur sem lifa á eða undir
berki lifandi trjáa.
Bjöllufriðunarsinnar segja að allt
að 18% trjábjöllutegunda í Evrópu
séu í alvarlegri útrýmingarhættu.
Samkvæmt greiningum eru
bjöllutegundir í Evrópu hátt í 29
þúsund og um fjögur þúsund þeirra
lifa á gömlum og rotnandi trjám.
Staða bjöllunnar er ekki viðkvæm
fyrir þær sakir að margar þeirra eru
sérhæfðar þegar kemur að kjörlendi.
Sumar halda sig við ákveðnar
trjátegundir, á ákveðnum svæðum
og meira að segja trjátegundum á
ákveðnum aldri, ekki síst eldri tré.
Vegna þess er ekki nóg að huga
eingöngu að friðun bjöllunnar því
svo að slíkt sé mögulegt þarf að friða
tré og skóga.
Samhengi náttúrunnar
Skógaeyðing og einhæf útplöntun
trjátegunda fyrir eldri blandaða
skóga er því ekki einungis slæmt
fyrir tré heldur alla lífkeðjuna og
rífur hið dásamlega samhengi alls í
náttúrunni. /VH
Merkingar augnbrúna- og augnháralita ekki fullnægjandi
Umhverfisstofnun stóð nýverið
fyrir eftirlitsverkefni með
merkingum og innihaldsefnum
augnbrúna- og augnháralita.
Vörur til slíkrar notkunar
innihalda oftar en ekki efni
sem gera kröfu um að tiltekin
notkunarskilyrði og varnaðarorð
á íslensku fylgi þeim.
Á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar segir að verkefnið
hafi gengið út á að kanna hvort
merkingar vara í úrtaki eftirlitsins
væru í samræmi við gildandi
kröfur hvað þetta varðar og einnig
hvort öll innihaldsefni þeirra væru
leyfileg.
Í úrtaki voru sex birgjar.
Skoðaðar voru 22 vörur sem þeir
setja á markað, en af þeim voru
tvær vörur án frávika. Í 17 tilvikum
vantaði alfarið íslenskar merkingar
eins og krafa er um. Lagfæra þurfti
merkingar á þremur vörum. Engar
vörur reyndust innihalda bönnuð
efni. Birgjarnir fengu sendar
niðurstöður eftirlitsins þar sem fram
komu kröfur um úrbætur. Brugðust
þeir almennt vel við og urðu við
kröfum Umhverfisstofnunar, að
einum undanskildum, sem brást
ekki við innan tilskilins frests og
fór mál hans því til eftirfylgni hjá
stofnuninni.
Verkefni þetta sýnir að ekki
er vanþörf á að fylgst sé með
markaðssetningu á augnbrúna- og
augnháralitum sem þurfa íslenskar
merkingar af því að þeir innihalda
tiltekin innihaldsefni sem geta
valdið hættu. Þá þarf að leiðbeina
um gildandi reglur og fylgja því
eftir að merkingar séu í samræmi
við þær. /VH
Umhverfismál:
Bjöllur á undanhaldi
Maðksmoginn viður. Lirfur barkarbjalla lifa á við og mynda svona för eftir
því sem þær éta sig áfram.