Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 29

Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 og rýmri búrum í minkaeldinu að hætti Dana. Danir höfðu þegar fyrir nokkrum árum lokið að mestu við að skipta út gömlum galvaníseruðum vírbúrum fyrir ný endingarbetri og stærri búr með ryðfríu stálneti. Það er mjög kostnaðarsöm aðgerð. Sú endurnýjun hittir nú á versta tíma fyrir íslenska loðdýrarækt vegna mikils verðfalls á skinnum samhliða hækkandi launakostnaði og háu gengi krónunnar. Það er samt yfirlýst stefna yfirvalda að standa við bakið á loðdýraræktinni hér á landi. Vonast Björn því til að minkabændur komist yfir þennan erfiða hjalla þótt fimm bændur hafi hætt í greininni í haust og þar á meðal hann sjálfur. Aðeins þrjú uppboðshús eftir á heimsvísu Björn segir að þegar best lét hafi verið fjögur skinnauppboðshús á Norðurlöndunum. Þau voru hjá Kobenhagen Fur í Danmörku, í Osló í Noregi, í Stokkhólmi í Svíþjóð og í Helskinki í Finnlandi. Þar að auki voru uppboðshús í Leningrad í Rússlandi, Seattle í Bandaríkjunum, Toronto í Kanada og stærsta uppboðshúsið var á sínum tíma Hudson Bay í London. Nú eru aðeins þrjú uppboðshús eftir í heiminum, þ.e. í Danmörku, í Finnlandi og í Toronto í Kanada. Af þessum húsum er Kopenhagen Fur langsamlega stærst og þar selja íslenskir loðdýrabændur öll sín skinn. Dýravelferð og sjálfbærni eru lykilatriði í evrópskri skinnaframleiðslu Þótt Danir séu leiðandi í loðdýrarækt og sölu á skinnum þá eru Kínverjar líka mikilvirkir minkaskinnsframleiðendur. Þar er regluverkið þó ekki í samræmi við kröfur sem þekkjast í Evrópu, m.a. hvað varðar dýravelferð, og þess vegna selur ekkert uppboðshúsanna skinn frá kínverskum bændum. Kínverjar hafa aftur á móti verið öflugir kaupendur á gæðaskinnum frá Evrópu en talið er að offramleiðsla á skinnum á árunum 2013 og 2014 hafi leitt til ofmettunar á markaði sem enn sér ekki fyrir endann á. „Frá árinu 2020 munu uppboðshúsin svo ekki selja neitt nema vottuð skinn hvað varðar dýravelferð og aðbúnað búanna samkvæmt evrópskum reglum. Það gildir bæði um ref og mink.“ – Nú hefur verð á skinnum verið í lægð, er eitthvað í sjónmáli að úr því rætist á næstunni? „Það er þó nokkuð í land ennþá að þau lönd sem eru með hæstan framleiðslukostnað séu að fá nægilega hátt verð. Það er hins vegar þannig að á undanförnum tæpum áratug hafa samkeppnisskilyrði versnað mikið í Norður- og Vestur- Evrópu í samanburði við Suður- og Austur-Evrópu. Það er að segja launakostnaður, orkukostnaður og fóðurkostnaður hefur hækkað mjög mikið sem og raunar allur annar framleiðslukostnaður. Verðið eins og það er fyrir skinn í dag hefði dugað okkur á Íslandi ágætlega fyrir tíu árum síðan. Jafnvel þótt við séum með jafn fíflalega skráð gengi nú og raunin er þar sem það er um 20% of hátt. Nú vantar okkur talsvert upp á til að ná endum saman og þar vega vinnulaunin á öllum stigum framleiðslunnar þyngst. Við þurfum að umreikna okkar kostnað í dollara þar sem tekjurnar eru í þeirri mynt. Þar erum við á síðustu þrem til fjórum árum að taka á okkur um 50% hækkun á launum.“ Sama lögmál í loðdýrarækt og í sauðfjárrækt „Þetta er nákvæmlega það sama og aðrar útflutningsgreinar og þar með matvælaframleiðendur á Íslandi eru að glíma við. Það er m.a. ein af skýringunum á því hvað sláturkostnaður hefur hækkað mikið í sauðfjárslátrun. Laun annarra sem vinna við þá framleiðslu hefur líka hækkað mikið. Neytendur vilja hins vegar borga sem minnst til að eiga sem mestan afgang, m.a. til að eiga fyrir utanlandsferðum. Þeir geta svo líka fengið innflutta vöru fyrir sáralítinn pening vegna hás gengis krónunnar. Sá eini sem ekki fær hagstæðari kjör er bóndinn, sem er neyddur til að taka á sig mikla tekjuskerðingu til að mæta auknum kostnaði af launahækkunum annarra í virðiskeðjunni. Þetta er sá veruleiki sem við þurfum líka að glíma við í loðdýraræktinni.“ Skýringin á lágu skinnaverði er fyrst og fremst offramleiðsla Björn segir að barátta dýraverndunarsinna gagnvart loðdýraræktinni skýri ekki nema að mjög litlu leyti, ef nokkru, það lága verð sem nú er á skinnum. Það sé fyrst og fremst heimsmarkaðsverð sem er lágt vegna langvarandi offramboðs. Á árunum 2010, 2011, 2012 og 2013 var gríðarlega mikil offramleiðsla á skinnum í heiminum. Á árinu 2012 komu rúmlega 80 milljónir skinna til sölu hjá uppboðshúsunum og 87 milljónir skinna árið 2013 en á árunum 2007 og 2008 var framleiðslan um 50 milljónir minkaskinna. Á þessum árum voru öll skinn seld fyrir mjög hátt verð. Það skýrðist helst af því að markaðurinn í Kína var að opnast. Þá var á hverju ári verið að opna fjölmargar verslunarmiðstöðvar í Kína með kannski 200–600 búðum sem seldu eingöngu pelsa. Ég man t.d. að á febrúaruppboði 2013 voru seld um 7 milljónir skinna í Kaupmannahöfn en það var nokkurn veginn sá fjöldi skinna sem á sama tíma fór til að fylla lager í einu nýju vöruhúsi í Kína. Þetta leiddi til þess að mikið safnaðist upp af skinnavöru sem var nánast öll eins vegna þess að á þeim tíma var nær engin tískuþróun í gangi í skinnavöru í Kína. Þeir vildu einfaldlega eignast pelsa eins og þeir höfðu séð myndir af frá Evrópu. Mikið af þessum pelsum eru ennþá til sölu í kínverskum verslunum því Kínverjar vilja nú kaupa sér annars konar pelsa, þ.e. samkvæmt nýjustu tísku, sem oft eru úr lituðum skinnum. Jafnvel úr skinnum með rökuðum eða klipptum hárum. Í slíkri vöru er nú fín sala og ágætis afkoma hjá þeim sem stíla inn á þann markað. Aftur á móti er sáralítil hreyfing á vörum úr skinnum sem framleidd voru fyrir sex til sjö árum. Því er verkefnið nú að reyna að aðstoða verslanir við að koma þeirri vöru í verð. Því er nú hægt að fá í Kína flotta slíka pelsa fyrir um 5.000 danskar krónur sem þykir lítið. Nú er gert ráð fyrir að á heimsmarkaði á þessu ári komi til sölu hjá uppboðshúsum um 45 milljónir skinna, eða um helmingur þess sem var þegar framleiðslan var í hámarki.“ Björn telur því að markaðurinn muni hægt og bítandi rétta úr kútnum og að skinnaverð fari að hækka. Því sé þetta spurning um hvort mönnum verði hjálpað til að þrauka yfir þennan erfiða tíma til að verja þau verðmæti sem felast í greininni. -En það heyrist samt utan úr heimi að mikill áróður sé fyrir að skipta úr náttúrulegum loðskinnum yfir í skinn sem búin eru til úr gerviefnum, þ.e. plastefnum. Mun það ekki eyðileggja grunninn fyrir loðdýraeldinu? „Nei, það mun ekki gerast. Það verður alltaf munur á gerviefni og náttúrulegu efni sem framleitt er með sjálfbærum hætti. Það kemur fram í endingartíma, áferð og mengunarfótspori. Þeir sem kynnst hafa raunverulegum pels úr náttúrulegu skinni sjá auðveldlega muninn á gæðunum. Það fólk sættir sig ekki við gerviefni. Gerviefnin geta út af fyrir sig verið ágæt ef mönnum finnst það allt í lagi að nota jarðolíu til að framleiða föt utan á sig. Einnig ef fólk sættir sig við að skilja eftir það spor í vistkerfinu sem hlýst m.a af örplasti sem nú dreifist um öll heimsins höf. Það er því mjög langt í það að gerviefnin geti komið í staðinn fyrir það besta í náttúrulegum afurðum.“ Nælon var efst á lista yfir sjálfbært hráefni til fatagerðar Björn segir að mikið sé nú horft til þess að framleiðsla af öllu tagi sé sjálfbær gagnvart náttúrunni. Það eigi líka við varðandi framleiðslu á loðskinnum. Nú sé í gangi mjög stórt evrópskt verkefni undir stjórn Evrópusamtaka loðdýraframleiðenda. Þar er verið að reikna nákvæmlega út kolefnissporið við framleiðslu á loðskinnum. Því er stjórnað af Hollendingi sem hefur verið að gera það sama varðandi lambaskinn. Ég hitti þennan mann í fyrra og hann sagði mér að það hafi verið ótrúlegur slagur gegn því sem hann var að gera. Hann hafi verið að hitta stóra framleiðendur á íþrótta- og tískuvörum sem voru farnir að hugsa mikið um sjálfbærni þeirra hráefna sem þeir notuðu. Þá hitti hann fólk sem var með lista um sjálfbærni ýmissa efna frá ráðgjafarfyrirtækjum. Þar var hráefnum raðað eftir sjálfbærnimati ráðgjafarfyrirtækjanna. Þessi maður komst í þessa lista og þar var nælon í efsta sæti hvað sjálfbærni varðaði og náttúruleg ull í neðsta sæti. Ég var svo á ráðstefnu í Ungverjalandi þar sem þetta var til umræðu og þar kom í ljós hvernig í pottinn var búið. Þar var kona frá Þýskalandi sem sýndi okkur tölvupóstsamskipti hennar við ráðgjafarfyrirtæki sem var að selja ráðgjöf til fataframleiðenda um hversu mikil sjálfbærni hráefnisins sem þeir notuðu væri. Þessi kona var að selja skinn og gat fengið það fært upp um þó nokkra flokka á listanum ef hún keypti bara auka ráðgjöf af þessu fyrirtæki. Þetta dæmi sýnir að menn eru að kaupa stimplana sem til þarf. Manni fallast eiginlega hendur við að sjá þetta því maður veit að peningamátturinn er svo ofboðslega mikill hjá þessum stóru aðilum sem eru að framleiða og selja gerviefnin. Þeirra hagsmunir eru svo gríðarlegir að einhverjir örfáir milljarðar evra í sölu loðskinna segir ekki neitt miðað við þá gríðarlegu fjármuni sem eru í Björn Halldórsson að skoða skinn í uppboðshúsi Köpenhagen Fur í Danmörku 2014 ásamr þeim Karvel L. Karvelssyni, framkvæmdastjóra Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarsins og Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bændasamtaka Íslands. Mynd / HKr. Það er oft mikið handapat og fjör á skinnauppboðum í Kaupmannahöfn. Þarna eru kínverskir kaupendur mjög áberandi. Mynd / HKr. störfum í stjórn Síl um leið og Björn. Mynd / HKr. – Framhald á næstu síðu.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.