Bændablaðið - 08.03.2018, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
BÚNAÐARÞING 2018
Syðri-Hofdalir
Í umsögn sem ráðuneytið hefur tekið
saman um Nes segir:
„ Í Hofstaðabyggð í Skagafirði er
býlið Syðri-Hofdalir. Frá árinu 1936
hefur búið þar sama fjölskyldan –
nýir ættliðir tekið við af þeim eldri.
Núverandi bændur þar eru hjónin
Trausti Kristjánsson og Ingibjörg
Aadnegard, og sonur þeirra, Atli Már
Traustason, og Klara Helgadóttir,
kona hans, ásamt 3 börnum sínum
og tengdadóttur. Um tíma bjuggu 5
ættliðir undir sama þaki. Árið 2015 var
stofnað einkahlutafélag, Hofdalabúið
ehf., um allan búreksturinn sem er
blandaður – mjólkurframleiðsla,
nautgripaeldi, sauðfé og hross.
Allt frá því þegar afi og amma
Trausta komu frá Atlastöðum í
Svarfaðardal 1936, hefur búið
stækkað og nú eru þar um 45 árskýr
og greiðslumarkið liðlega 300.000
lítrar. Búið hefur mörg undanfarin ár
lagt inn úrvalsmjólk og flokkað sem
fyrirmyndarbú.
Allir nautkálfar eru settir á til
kjötframleiðslu og í fyrra voru það
22 gripir með um 320 kg meðalþunga.
Sauðfénu hefur fækkað nokkuð en
telur um 650 hausa og greiðslumarkið
860 ærgildi. Áhersla er lögð á að koma
sem flestum lömbum í sumarslátrun
og var rúmum helmingi lambanna
lógað á þeim tíma síðastliðið haust.
Hrossaræktin er nú mest til
skemmtunar en nokkuð er samt tamið
og þjálfað og eitt og eitt hross selst, í
eigu búsins eru um 40 hross. Þá eru
vantalin varphænsn og fjárhundur.
Ræktað land er um 140 ha. Árlega
eru um 20 ha í endurræktun og einnig
er stunduð kornrækt, í smáum stíl þó.
Ábúendur leggja mikið upp úr
góðri umgengni og snyrtimennsku
og hefur búið meðal annars hlotið
umhverfisviðurkenningu í sínu
heimahéraði.
Búið hefur til margra
ára verið verknámsbær frá
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri og er sá verknemi sem mætir í
Syðri-Hofdali í vor númer 31.
Ábúendur hafa lagt sig fram
við að kynna íslenskan landbúnað.
Boðið hefur verið upp á opna daga á
sauðburði og allri þjóðinni var boðið
upp á beina útsendingu sjónvarpsins,
„Beint frá burði“, að frumkvæði RÚV
og Gísla Einarssonar.
Sagan heldur áfram á Syðri-
Hofdölum og Friðrik Andri, elsti sonur
Atla og Klöru, er að koma heim eftir
nám á Hvanneyri ásamt unnustu sinni
og fyrirhugaðar eru byggingar sem
gjörbylta aðbúnaði bæði fyrir menn
og nautgripi.“ /smh
Fjárhúsin. Á búinu er um 650 fjár.
Fjósið í Syðri-Hofdölum. Þar eru nú um 45 árskýr.
Syðri-Hofdalir. Myndir / úr einkasafni
Bændurnir í Syðri-Hofdölum taka við viðurkenningu frá ráðherra.
Erlendir gestir á Búnaðarþingi
Fimm erlendir gestir voru
viðstaddir nýliðið Búnaðarþing.
Það er hefð fyrir því að
systursamtök BÍ sendi fulltrúa á
þingið en þeir hafa aldrei verið
fleiri en nú. Í fyrsta sinn var
formaður Færeyska bóndafélagsins
viðstaddur Búnaðarþing ásamt
öðrum stjórnarmanni.
Hópurinn brá sér bæjarleið
hluta úr degi og kynnti sér
starfsemina í Lambhaga, en það er
eitt stærsta garðyrkjubýli landsins.
Þar tók Hafberg Þórisson bóndi
á móti gestunum og fræddi þá
um starfsemina. Á eftir var keyrt
til Þingvalla og gengið niður
Almannagjá.
Hittu forseta og ráðherra
Að kvöldi fyrsta þingdags fóru gestirnir
í heimsóknir til stjórnmálaflokka
ásamt búnaðarþingsfulltrúum.
Höfðu þeir á orði að tengsl bænda
og íslenskra stjórnmálamanna væru
til mikillar fyrirmyndar. Norski
fulltrúinn var hissa á því að hitta
á sama sólarhringnum forseta
Íslands, landbúnaðarráðherra,
utanríkisráðherra og fjölmarga
þingmenn. Sagði hann að norskir
stjórnmálamenn mættu taka íslensk
starfssystkin sín til fyrirmyndar. Þeirra
eigin forsætisráðherra hefði fimm
sinnum verið boðið við setningu
aðalfundar Norges bondelag og aldrei
þegið boðið.
-
-
Það var kalt en fagurt á Þingvöllum. Myndir / TBHafberg sýnir Sigert tækjakost gróðrarstöðvarinnar í Lambhaga.